Morgunblaðið - 20.07.1986, Síða 6

Morgunblaðið - 20.07.1986, Síða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 1986 Laufey Helgadóttir skrifar frá París Myndsmíðar Hreins Galleríin hér í París hafa oft þann hátt á, ef einhver af þeirra listamönnum tekur þátt í stórri samsýningu, að reyna að sýna verk hans samtímis. Þannig efnir gallerí Bama til einkasýningar á nýjum verkum eftir Hrein Friðfinnsson (opnuð 12. apríl) og gallerí Leif Stáhle vígði húsnæði sitt hér í París um svipað leyti með sýningu á verk- um sænska listamannsins Lars Englund sem einnig tekur þátt í sýningunni Norðanað. Leif Stáhle er upphafsmaður og forstöðumaður Konstmássan sem fer fram í Stokk- hólmi ár hvert (síðan 1980), nú síðast 12.-17. mars. Hann er einnig mikill Frakklandsvinur og án efa er stofnun gallerísins hér í París einn liður hans í því að auka menn- ingartengsl milli Frakklands og Norðurlandanna. Einnig má geta þess að hið nýútkomna norræna listtímarit Siksi (af því að) á vafa- laust eftir að stuðla að aukinni þekkingu meginlandsbúa á því sem er að gerast í norðrinu. ,,Ég- leita alltaf að auðri götu“ Þessa tilvitnun í Nam June Paik mætti vel yfírfæra á Hrein. Hann er stöðugt í leit að lítt könnuðum leiðum og kemur okkur þess vegna ætíð skemmtilega á óvart. í þetta skipti sýnir hann 6 verk og eina grafíkmynd. I þrem stærstu verk- unum, sem eru eins konar vegg- strúktúrar, verki no. 1, no. 2 og Attribute, er undirstöðuefnið viður. Myndlistartilraunir Hreins hafa alla Við verið í mjög sterkum tengslum við náttúruna og er því ekkert und- arlegt að hann skuli velja sér viðinn til að kljást við, náttúruefni par excellance. Himnaveldið háa eða halasíjarnan Halley Verk no. 1 er géomatrískt og afar sérkennilegt. Þar teflir lista- maðurinn saman krossviði og furu, dökkum og ljósum lit, hörðum og mjúkum línum og nær fram ein- kennilega myndrænni spennu. Það má vera að Hreinn hafí hugsað til komu Halley-halastjörnunnar sem birtist okkur nýlega í þrítugasta sinn, þegar hann vann verkið. Hall- ey-halastjaman hefur víða komið við sem kunnugt er, í sögunnar Attribute. rás, bæði sem boðberi góðra og illra tíðinda. Verk no. 2, sem hangir beint á móti verki no. 1, lætur minna yfír sér en er einnig sneisafullt af ljóð- rænum táknmyndum og andstæð- um. Frumeiningar géometríunnar, hringur, femingur, beinar línur og þríhymingar, leika þar hver á móti annarri. Hringurinn, tákn fullkom- leikans, eilífðarinnar, himinhvolfs- ins, svartur á lit, myndar samspil við mótheijann, djúprauðan feming sem gæti í þessu tilfelli verið tákn fyrir kyrrstöðuna eða hið jarð- bundna. Ljóðræn géometría og tónsmíðar Hafíð bláa hafíð ... o.s.frv. Þess- ar gömlu góðu ljóðlínur Amar Amar komu fram á varir mínar þegar ég gekk inn í minni salinn þar sem verkið Attribute hangir og smámyndaverkin no. 4, no. 5 og no. 6. Attribute, sem er fallegasta og samstæðasta verk sýningarinn- ar, er einnig samsett úr géometrísk- um formeiningum, þríhymingum, hluta úr hring, bogadregnum blálit- uðum línum á plexigler og rétt- hymingi. Kompósisjón sem sendir frá sér mjúka hraðbyrstóna og vek- ur jafnvel upp minningar um list forfeðra okkar. Smámyndaverkin no. 4, no. 5 og no. 6 em aftur á móti hvert um sig samsett úr þrem litlum myndum, Verk no. 1, án titils. Verk no. 2, án titils. Verk no. 4, án titils. form og litaleikir eða töflumyndir bamæskunnar .. . æskudrauma- löndin. * Osýnilegiir kraftur Nafnlausar, - þá hafa þessar myndsmíðar Hreins eitthvað óþekkjanlegt yfirbragð. Við kunn- um ekki að nefna þær nöfnum, en sem myndræn heild tengjast þær samt einhveiju sem við þekkjum, — bók Kandinskys, t.d. Punkt und Linie zu Fláche, eða formheimi Malvitch, jafnvel Mondrians. Þær búa yfír ósýnilegum krafti, hafa innbyggðar táknmyndir og dul- búnar andstæður eins og leitað sé stöðugt að jafnvægi. Þyngdin vegur salt mót léttleikanum, mýktin mót hörkunni o.s.frv. og bjartsýnisblær er yfir þeim öllum. Talan þrír og fmmformin, hringurinn, femingur- inn og þríhymingurinn, em alls staðar nálægt - þátíð, nútíð og framtíð. Þó að hér kveði við nýjan tón í verkum Hreins og þessi verk séu um margt ólík fyrri verkum hans (t.d. virðist ljósmyndavélin horfín), þá em ætíð einhver innbyrðis tengsl, grunnhugmyndir lista- mannsins sem tengja þau saman. Höfundur er listfræðingur og býr íParís. Einar Guðmundsson skrifar frá Amsterdam Þegar geislarnir komu Skýin em hinir einu og sönnu heimsborgarar, sem þekkja engin landamæri og fara allra sinna ferða um plánetuna. Þau senda kveðjur sínar þeim sem niðri em, og vanda þær því miður ekki alltaf sem skyldi — eitt eðli þeirra er að það að senda skít heim til föðurhúsa; í þeirra augum er mannkynið allt ein föður- hús. En mannkynið virðist vera á einhverju kmmmaskuðsstigi og þjóðimar hugsa ekki lengra en sem nemur einkahagsmunum. Eftir því sem dagblöð segja, er Tschemobyl í Úkraínu, Sovétríkjun- um — sem er víst ekki með öllu sannleikssnautt — en í ljósi kjam- urkuversslyssins sem þar varð á dögunum, færí kannski betur á að tala um plánetuna jörð: til að reyna að ná tökum á hinu raunverulega vandamáli sem við er að etja, og fjallar um lífshagsmuni allra sem jörðina byggja. Svo vildi til, að ég var staddur í Munchen í Þýzkalandi, dagana sem eiturskýin frá Tschemobyl höfðu þar sína áþreifanlegu viðkomu. Þar sem efnið flokkast eftir langsóttum leiðum undir menningarmál, er mér ekki stætt á að leiða það hjá mér, úr því ég þykist vera að skrifa um menningarmál á annað borð. Gang- ur þessa máls hefur vafalaust verið rakinn á íslandi, þannig að ég held mér bara við eigin skilningarvit og upplifun á ástandinu hið næsta mér. Mín saga þessa daga, í míkródag- bókarformi, er þessi: „Mánudagur (28.4.), Svíþjóðar- fregnir í sjónvarpskvöldfréttum. Fólk kippti sér lítið upp við þær. Daginn eftir: Blöðin koma með nánari fréttir. Samkvæmt veður- spám má eiga von á smá glaðningi næstkomandi fimmtudag. Ekki laust við skelfíngu í andlitum barna- fólks á götunum. Síðasti dagur aprílmánaðar: Rússamir segja allt vera undir kontróli; slaknar aðeins á spennu. 1. maí: Stórletursfyrirsögn í Abend-Zeitung: ATÓMSKY í MÚNCHEN. 2. maí: Foreldrar halda börnum innandyra og joðtöflur seljast upp í apótekum. 3. maí: Varað við neyslu græn- metis, mjólkur og osta. Ráðlagt að gefa ungbömum þurrmjólk. Þann fímmta var sagt, að þrumu- veður og rigning hefðu leitt geislun oní jarðveginn. Margir bændur beittu kúm á græna grasið. Ramakvein í kvöldblöðum þann sjötta: „Italir eru að selja okkur eitrað grænmeti." Erfitt var að greina á milli, hvort blöðin væru að selja sig, eða þau seldust bara af gömlum vana þessa dagana. Þjóðveijar eru þannig, að heilsan er þeim ofar flestu, líkamleg og andleg. Þegar þeim hættir um of til að einblína á líkamlegu hliðina, þá fer andlega jafnvægið venjulega eitthvað úr skorðum. Skera þeir sig samt með þetta ekki mikið úr frá öðrum þjóðum, þar sem óttinn grípur um sig. Þegar ég, sem gamall Norður- landabúi, hugðist ætla að njóta annars frábærrar fréttaþjónustu vestur-þýsku fjölmiðlanna, og afla mér fregna af frændþjóðum — að ég tali nú ekki um sjálft ísland — þá var allt í einu af engu að taka. Víðsýnið hélt sig þá innan landa- mæranna, og allar fréttir snerust eingöngu um þá hættu er þýzkum hagsmunum gæti verið búin. Hversu mikið er að marka dag- blöð, á erfíðu dögunum sem þau eru að koma út? Blaðamenn eru oft viðkvæmar sálir þrátt fyrir harðar skeljar, þeir verða ekki alltaf manna elztir; geta því kannski sagt eins og gamla fólkið á fömum vegi í Munchen, sem komið var yfír sjö- tugt: „Við étum geislavirka grænmetið, verðum hvort sem er ekki mikið eldri úr þessu." — Ekki verður annað sagt en blöðin hafí gert sér mat úr ástandinu. Það var ekki beinlínis yndislegt fyrir undirritaðan að vera staddur í þessum geislavirknikringumstæð- um, þar sem hálfur sólarhringurinn gat farið næstum allur í það að vatnsþvo matvæli dagsins, og vísindamenn fullyrtu, að einungis væri hægt að hálfskola, hversu vel sem að verki væri staðið. Samhliða geislavirkni í andrúms- loftinu var allt fullt af fréttum sem stönguðust á. Fólk var að hringjast á og segja hálfgerðar hryllingssög- ur í símann. Vísindamenn voru dregnir fram í sjónvarpsfréttaljósið. í föðurlegum, mildandi tónum reyndu þeir að hafa róandi áhrif á fólkið. Persónulega sögðust þeir ekki neyta grænmetis né mjólkur lengur, og börn sín væru þeir hætt- ir að senda í skólana. Sandkassamir og grasblettirnir gætu verið of hættulegir. Dæmi veit ég um læknanema, sem tók mark á dagblaði einn dag- inn og horfði síðan á sjónvarps- fréttir um kvöldið, eftir að hafa borðað spínat, sem dagblaðið hafði sagt að allt í lagi hefði verið að neyta eftir vandlega skolun; geisla- fræðingur kom fram í sjónvarpinu og var á annarri skoðun. Ældi þá spínatétari öllu upp úr sér á auga- bragði. Aðalskelfínguna var að sjálf- sögðu að finna á meðal foreldra, sem áttu yngstu börnin. Bamanna er víst ekki bara það að sjá um framhald þýzku tegundarinnar, heldur taka þau að öllum líkindum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.