Alþýðublaðið - 06.10.1920, Page 1
Alþýðublaðið
Greflð út af ALþýðuflokkHum.
1920
Miðvikudaginn 6. október.
229. tölubl.
JlttsturvSllur.
Herra ritstjóril
Þér hafið sent mér grein þá
Um Austurvöll, sem birt var i
blaði yðar 28. sept., líklega til
þess að eg segði álit mitt um
bllöguna. Hér er það:
Það má segja henni til lofs, að
frumleg er hún. Veit eg ekki til
að gerð hafi verið slík upphleypt
landslíkön á nokkru óbygu borg
arsvæði erlendis. Raunhæf er hún
ekki. Vér e'gum ekki uppdrætti
af landi voru, sérstaklega óbygð-
Unum, sem nægi til þessa. Ekkert
efni þekki eg sem nota mæíti til
mótunarinnar og þyldi veðurlag
vort; efast um að það sé til. All-
úi þessi mótaði uppdráttur myndi
fykfalla á hverjum degi, sandur
og leir safnast í allar lægðir, að
eg ekki tali um snjó og klaka
mikinn hluta árs. Völlurinn yrði
dauður, svipljótur og steingerður.
Að lokum yrði þetta ókleyft fyrir
kostnaðarsakir.
En hvað á þá að gera við
Austurvöll?
Það á blátt áfram að láta hann
i>era einfalda grasfl'öt og hirða
hana vel. Tré þrífast þar ekki.
Blóm verða vanrækt. Girðinguna
á að gera við, aðeins fá gott járn
(steypujárn?) í láréttu slárnar, sem
hafa allar riðbrunnið. Fallbeinu
(einana má nota. Slík girðing hefir
tvo mikilvæga kosti: Það ber lítið
á henni og græni grasflöturinn
hlasir við auganu, svo ver hún
vÖlIinn tiltölulega vel. Það væri
hin mesta fásinna að byrgja völl-
lKn inni í þéttri, fallhárri stein■
Sirðingn.
Fyrirmyndarbæinn Port Sunlight
hygði vellríkur auðmaður, sem ekk-
6tt vildi spara og naut aðstoðar
heztu lista- og smekkmanna Eng-
^ods. Hvernig girti hann þau
Svaeði, sem girt voru ? — Nákvcem-
?ega nieð samskonar girðingu og
nh- er um Ausiurv'öll. Hún var
»fín*í fyrir hann, þó bæjar-
Sundkensla
heldur áfram hér í Laugunum, þennan og næsta mánuð, og er ókeypis
fyrir sjómenn og skólapilta bæjarins.
Páll Erlingsson.
syórninni hér þyki eflaust slík
girðing ekki nógu dýr.
Ef breyta skal girðingunni get-
ur tæþast verið um annað að
tala en steinstólpa með laglegum
steypujárngrindum á milli. Það
gæti orðið snoturt og endingar-
gott.
Að tjörusteypa völlinn og gera
hann að umferðartorgi eða bíla-
stöð, geta þeir gert, sem þykir
bærinn of blómlegur og rykið á
götunum of lítið.
Guðm. Hannesson.
Hrossasalan
er nú um garð gengin í ár, síð-
asti markaðurinn er í dag. AUs
hafa verið keypt rúm 3000 hross
á 180—420 kr. hvert, eftir stærð
og aldri. Aldurinn verið 3—8 vet-
ur, Fara rúmlega 1000, mest hryss-
ur, til Danmerkur, og tekur ís-
land sfðasta farminn, um 400, nú
í þessari ferð. Til Englands fóru
flestir folarnir, tæp 2000 að tölu.
Guðmundur Bátðarson hefir
keypt flest hrossin fyrir hönd
landsstjórgarinnar, sem annast um
söluna; hann er nýkominn ofan
úr Borgarfirði.
lítlenðar jréttir.
FíMirfska. Taugaraun.
Me. Laughlin heitir frægur am-
erfskur fimleikamaður, sem nýlega
sýndi fífldirfsku sína uppi á þak-
inu á gistihúsinu „Congress* i
Chicago.
Raunin sem hann stóðst, var
hvorki meiri né minni en sú, að
hann setti stól á þakbrúnina á
húsinu, sem er 200 metra hátt,
og stóð svo á höndunum á stóln-
um. Þetta varð hann að gera til
þess að fá stöðu látins félaga sfns
á fjölleikaleikhúsi. En sá hafði
gert svipuð hreystiverk, en drepið
sig á þeim. Það mun óhætt að
segja, að ekki munu margir geta
leikið þetta eftir Laughlin, og
taugastyrkleik mun við þurfa meiri
en i meðallagi. Skyldu t. d. marg-
ir þora að standa á höndunum,
þó ekki væri nema á þakbrúninni
á húsi Jónatans Þorsteinssonar?
Sumarbústaðir verkamanna.
Víða um lönd færist það f vöxt
að verkamenn fái alt að 14 daga
sumarfrí. Jafnframt færist það f
vöxt að einstök verkamannafélög
taki á leigu eða kaupi sumarbú-
staði upp í sveit, og skiftast þá
félagsmenn á um það, að „taka
fríið“ og búa í húsunum, einkum
þeir sem kvæntir eru — hinir eiga
hægra með að fara víðar. Nýlega
hafa póstmenn í Kristianíu keypt
allstórt hús á fögrum stað upp i
sveit skamt frá Kristianfu; í þvf
eru 13 herbergi og 3 eldhús. —
Hér á landi mun þetta lftið sem
ekki eiga sér stað, nema ef vera
skyldi að prentarar hafi sumatbú*
stað á leigu.