Morgunblaðið - 18.10.1986, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.10.1986, Blaðsíða 6
6 B 1 i'/.'hjSH) , MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986 Horgunblaðið/RAX Mikhail Gorbachev á blaðamannafundinum í Háskólabíói. Við háborðið sitja auk hans, frá vinstri: Anatoly Chemyayev, ráðgjafi Gorbachevs, Anatoly Dobrynin, yfirmaður alþjóðadeildar kommúnistaflokksins, Eduard Shevardnadse, utanrikisráðherra, Gorbachev, Alexander Jakovlev, sérlegur ráðgjafi Gorbachevs, Sergey Akhrimeyev, marskálk- ur, forseti sovéska herráðsins. Blaðamannafundur Gorbachevs í Háskólabíói: Bandaríkj amenn sakna hemaðaryfirburða sinna Reykjavík, TASS. Mikhail Gorbachev, aðalritari miðstjóm- ar KFS, hélt blaðamannafund í Reykjavík 12. október og var boðið til hans blaðamönnum, sem hafa fylgst með leiðtogafundi Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. Mikhail Gorbachev sagði er hann sneri sér til fulltrúa fjölmiðla: Gott kvöld, dömur mínar og herr- ar, félagar! Ég fagna ykkur öllum. Það er liðin um klukkustund frá því að fundi mínum og Reagans, Bandaríkjaforseta lauk. Hann stóð nokkru lengur en við gerðum ráð fyrir. Málin kröfðust þess. Ég bið ykkur innilega afsökunar að ég skuli ekki hafa komið til blaða- mannafundarins á þeim tíma sem hann var boðaður. Þið vitið þegar að þessi fundur var haldinn að frumkvæði sovéskra ráðamanna. En auðvitað hefði hann ekki verið haldinn ef ekki hefði komið til samþykki herra Reagans. Þess vegna mundi ég segja að það hefði verið sameiginleg ákvörðun okkar að halda þennan fund. Nú er honum lokið. Stundum er sagt að menn sjái ekki skóginn fyr- ir tijám. Ég kem beint af þessum fundi, þar sem mjög heitar umræð- ur áttu sér stað, einkum á síðasta stigi hans. Ég er enn á valdi þess- ara umræðna. Engu að síður ætla ég að reyna að segja ykkur ekki aðeins frá þeim áhrifum, sem fund- urinn hafði á mig, en ég ætla einnig að reyna að komast að því sem gerðist. Þetta verða fyrstu áhrifín, fyrsta matið, fyrsta skilgreiningin. Það er eftir að vega og meta fund- inn. Þetta var mikill fundur og þið munuð skynja það þegar ég segi frá því sem þar gerðist, frá þeim vandamálum, sem þar voru rædd í víðtækum, mjög áköfum og áhuga- verðum umræðum. Andrúmsloftið einkenndist af vináttu. Við fengum tækifæri til að setja fram sjónarmið okkar hömlulaust og án takmarkana. Það gerði okkur kleift að dýpka skilning okkar á mörgum brýnum vanda- málum í heiminum, tvíhliða tengsl- um og fyrst og fremst á þeim vandamálum, sem eru í brennidepli hjá mannkyninu — málefni styrjald- ar og friðar, endalok vígbúnaðar- kapphlaupsins, í einu orði öll þau máj, sem varða þetta efni. Áður en ég fer að lýsa fundinum sjálfum, innihaldi viðræðnanna, til- lögum af beggja hálfu og niðurstöð- um hans, langar mig að útskýra fyrir ykkur hvers vegna við komum með þá tillögu að halda fundinn í Reykjavík. Eg les blöðin reglulega og sá þessa daga hversu mikil við- brögð tilkynningin um fundinn fékk. Mikið var sagt í þessu sambandi um aðalritara miðstjómar Komm- únistaflokks Sovétrílqanna (KFS) og forseta Bandaríkjanna, spurt var hvort þeir hefðu ekki verið að flýta sér, hvort væri þörf á að halda þennan fund, hver hefði látið undan hvorum, hver hefði leikið á hinn o.s.frv. En þið skuluð vita að ástæð- an fyrir því að við lögðum til við forseta Bandaríkjanna að við skyld- um hittast þegar í stað og ástæðan fyrir því að hann tók jákvætt í til- löguna, voru afar mikilvægar. Nú ætla ég að hverfa aftur til Genf, þar sem við hittumst í fyrsta skipti. Þar fóru fram miklar viðræð- ur. Ef þið munið viðurkenndum við þá sérlega ábyrgð Sovétríkjanna og Bandaríkjanna gagnvart örlögum friðarins og lýstum sameiginlega yfír að aldrei mætti heyja kjam- orkustyijöld og að þar yrði ekki um sigurvegara að ræða. Þetta er mik- ilvægt atriði. Við lýstum einnig yfír að hvorugur mundi leitast við að ná hemaðaryfirburðum. Þetta er einnig afar mikilvæg yfírlýsing. Það er liðið næstum ár frá Genf- arfundinum. Sovéskir ráðamenn hafa verið trúir þeim skuldbinding- um, sem þeir tóku þar á sig. Þegar við snerum aftur frá Genf fram- lengdum við tilraunabann okkar: Það gildir hjá okkur til 1. janúar nk. Um 14 mánaða skeið heftir ríkt þögn á tilraunavöllum okkar — það er vitni um hollustu okkar við sam- komulagið í Genf, ábyrgð okkar gagnvart örlögum friðarins. Þetta vom ekki auðveldar ákvarðanir ef haft er í huga að á þessum tíma var haldið áfram að sprengja í Nevada og því er enn haldið áfram. Þann 15. janúar sendum við frá okkur yfirlýsingu, þar sem var sett fram áætlun um útrýmingu kjam- orkuvopna fyrir næstu aldamót. í júní sl. lögðu Varsjárbandalags- löndin fram umfangsmikla áætlun um stórfelldan niðurskurð hefð- bundins vígbúnaðar og fækkun í heijum í Evrópu. Þetta er einnig mikilvægt skref með tilliti til þeirra áhyggja sem komu fram hjá Vest- ur-Evrópu og Bandaríkjunum. Við drógum lærdóm af slysinu í Chemobyl og lögðum til að haldinn yrði fundur Alþjóðakjarnorkumála- stofnunarinnar í Vín. Það var gert og þið vitið um niðurstöðumar — sem lofa góðu. Nú eigum við al- þjóðlegt kerfí, sem gerir okkur kleift að leysa mörg mikilvæg vandamál er varða öryggi kjam- orkuiðnaðar. Með öðmm orðum held ég að ég sé ekki að ýkja, þegar ég met stefnu okkar, þar sem ég er að tala um staðreyndir en ekki bara um fyrir- ætlanir — við gerðum allt sem hægt var til að móta nýjan hugsun- arhátt á kjamorkuöld. Við lýsum yfír með ánægju að þessi hugsunar- háttur er að skjóta rótum, einnig í Evrópu. Þetta kom vel fram í þeim árapgri, sem náðist í Stokkhólmi. Ég ætti e.t.v. að ljúka þessari upptalningu á þeim aðgerðum, sem við höfum framkvæmt með sam- komulagið við Reagan forseta í Genf. Ég held að sjálfar staðreynd- imar leyfí okkur að meta alvarlega afstöðu okkar til sáttmálanna í Genf. Hvers vegna var þörf á fundi í Reykjavík, hvað lá að baki tillögu okkar? Hér er um að ræða að vonir um stórfelldar breytingar í heiminum, sem þegar vom fyrir hendi eftir fundinn í Genf, vom að slokkna og ég held að það hafí ekki verið að ástæðulausu. Samningaviðræður Sovétríkjanna og Bandaríkjanna, þar sem mikið var talað, e.t.v. of mikið, þar sem vom í gangi, eins og ég sagði í gær við forsetann, 50—100 afbrigði af alls kyns tillög- um, 50—100 afbrigði alls kyns tillagna, sem em til umræðu. Ef væri um 1 eða 2 að ræða, kannske þijú afbrigði, sem væri hægt að ræða og beina leitinni að einhveiju mikilvægu sviði, þá væri hægt að gera ráð fyrir að þessari leit lyki með því að einhveijir raun- hæfír sáttmálar og tillögur kæmu út úr því... En ekkert slíkt gerist í Genf, þó að þar sé verið að ræða helstu vandamál heimsins. Upp á síðkastið hafa þessar umræður, satt að segja, verið í lausu lofti, þær em komnar í ógöngur. Vígbúnaðar- kapphlaupið hefur ekki verið stöðvað og það verður æ ljósara að við emm að koma að mörkum, sem hafa í för með sér óhjákvæmilegt vígbúnaðarkapphlaup með ófyrir- sjáanlegum afleiðingum — stjóm- málalegum og hemaðarlegum. Mikilvægar tillögur okkar, sem ég var áður búinn að ræða, fengu mikil viðbrögð af hálfu almennings. En þær fengu engar undirtektir af hálfti bandarískra yfírvalda. Ástandið hefur versnað, kvíðinn í heimirium eykst. Ég tel að ég sé ekki að gera of mikið úr hlutunum, þið emð vitni að því, að heimurinn er á suðupunkti. Heimurinn er á suðupunkti og krefst þess af leið- togum allra landa og þá fyrst og fremst stórveldanna, aðallega Sov- étríkjanna og Bandaríkjanna, að þeir sýni pólitískan vilja, festu og hæfileika til að stöðva þessa hættu- legu þróun. Það varð að gera eitthvað til að ijúfa slíka atburðarás. Og við kom- umst að þeirri niðurstöðu að þörf væri á nýjum krafti, öflugum til þess að snúa þróuninni í nauðsyn- lega átt. Slíkur kraftur gat aðeins komið frá leiðtogum Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. Einmitt þess vegna, þegar ég svaraði bréfí Reag- an forseta frá 25. júlí sl., lagði ég til við hann að við skyldum þegar í stað hittsist. Ég skrifaði: Ástandið er slíkt að við verðum þegar í stað að leggja allt annað til hliðar í 1—2 daga og halda fund tafarlaust. Það var félagi Shevardnadze sem afhenti forsetanum bréfíð. Og nú hefur verið haldinn þessi afar mikilvægi fundur. Við gerðum ráð fyrir að niðurstöður hans yrðu mikilvægar. Og við komum auðvit- að ekki tómhentir á fundinn. Með hvað komum við til Reykjavíkur? Við komum með heil- an pakka af mikilvægum tillögum, sem, ef þær hefðu verið samþykkt- ar, hefðu á stuttum tíma getað breytt verulega á öllum sviðum baráttunni fyrir takmörkun kjam- orkustyijaldar og í raun bægt burt hættunni á kjamorkustyijöld, hefðu gert kleift að hefja þróun í átt til kjamorkuvopnalauss heims. Ég lagði til við forsetann að við gæfum hér í Reykjavík utanríkis- ráðherrum okkar og öðrum sam- svarandi ráðuneytum fyrirmæli um að undirbúa þrenn drög að sam- komulagi, sem ég og forsetinn hefðum síðan getað undirritað þeg- ar ég kæmi til Bandaríkjanna. í fyrsta lagi um langdrægar eld- flaugar (strategísk vopn) — að fækka þeim um 50% ekki minna. Þess heldur að eyðileggja þessi hættulegu vopn fyllilega fyrir alda- mót. Við gengum út frá því að heimurinn vænti stórra aðgerða, verulegs niðurskurðar, en ekki ein- hverra smáaðgerða — aðeins til að róa almenningsálitið í einhvem tfma. Það er kominn sá tími þegar þörf er á djörfum og ábyrgðarfull- um aðgerðum í þágu alls heimsins, þar á meðal þeirra þjóða er byggja Sovétríkin og Bandaríkin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.