Morgunblaðið - 09.11.1986, Page 9

Morgunblaðið - 09.11.1986, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1986 B 9 Úr snöru fuglarans Þessa dagana er að koma út hjá bókaf orlaginu Máli og menningu bókin Úrsnöru fuglarans eftir Sigurð A. Magnússon. Morgunblaðið hefur fengið leyfi höfundar til þess að birta hér fyrsta kafla bókarinnar, sem heitir Flugþrá. Flugþrá Endur fyrir löngu hafði ég horft heillaður á mann- gerða stálftigla svífa yfir holtin í Laugamesi í samfýlgd skugga sem svifu eftir jörðinni, séð þá steypa sér úr háloftunum og sameinast skuggunum á lygnum sjávar- fleti við Vatnagarða. Síðan hafði ómur fjarlægra staða bergmálað í sálinni. Jafnvel á stríðsáranum, þegar þýsk- ar flugvélar birtust óvænt og vöktu angist og ringulreið, hafði sami seiðmagnaði ómur bergmálað. Svipað átti sér stað þegar millilandaskip komu og fóra: fiðringur í sál og líkama, vakinn af óljósri vitund um að heima á Fróni fyndi ég aldrei nema brot af þeim dýra sjóðum þekking- ar, menningar og lífsrejmslu sem hugurinn stundaði til. Þegar ég horfði á skipin sigla og flugvélar taka sig á loft var sem stórfljótin fjögur í aldingarðinum Eden þrengdu sér gegnum bijóstholið: út-út-út! Seinnameir staldraði ég við þau orð Pascals, sem mér þótti djúp- skyggnastur hugsuða, að vansæld mannsins ætti sér aðeins ein upptök, þau að hann gæti ekki dvalist einn með sjálfum sér innan fjögurra veggja. Þó dapurleg væra fengu orð hans réttari hljóm og samkvæmari vera- leikaskjmjun minni en áminning trúarskáldsins og siðaprédikarans Bunyans, að menn ættu ekki að sækjast eftir því sem er hér og nú, heldur bíða þess sem í vænd- um er. Ég átti hvorki rósemd né langlund til að geta af heilum hug samsinnt ójarðneskum boðskap hins enska kenniföður, þó lýsing hans á margháttuðum raunum krist- ins manns í veraldarvolkinu væri mér ákaflega hugleikin. Að stúdentsprófi loknu var mér svipað innanrifja og fugli hlýtur að vera þegar honum er sleppt útúr búri eftir langa innilokun. Ég var laus við rimlana og fannst allir vegir vera færir, brann í skinninu að komast burt og sjá með eigin augum eitthvað af þeim undram og stórmerkjum sem biðu handan hafsins. En mér var líka í mun að slíta af mér fjötrana heimafyrir, sýna þó ekki væri nema með táknrænum hætti að ég væri orðinn fleyg- ur og gæti af eigin rammleik borið mig eftir björginni. Fjrsta tilraun í þá átt tók á sig heldur skoplega mynd. Við Randvér voram á gangi niður Laugaveg í blíðskap- arveðri uppúr miðjum júní og ég fann hvemig sólbreiskjan eldi í mér blóðið og snöggvakti dulda hvöt til að ijúfa einhver höft og bjóða umhverfinu bjrgin. Formálalaust hnippti ég í handlegginn á félaga mínum og sagði bæði í gamni og alvöra: Veistu hvað við geram? Föram úr jökkunum og löbbum á skjrrtunni niðrí Miðbæ! Randvér leit til mín forviða og var augsýnilega á báð- um áttum, hvort mér væri alvara. Hann var því vanur að ég kastaði fram ijarstæðum hugmyndum af eintómu bríaríi og taldi ugglaust að hér væri um þvílíka uppá- komu að ræða, enda var tillagan fáheyrð. Ég meina það, ítrekaði ég og staðnæmdist fyrir fram- an sýningarglugga á klæðaverslun Andrésar. Þú sérð fólk gera það í stórborgum erlendis. Það höfum við oft séð í bíó. Hversvegna ætti það ekki að vera hægt í Reykjavík einsog annarstaðar, úrþví veðrið er svona gott? Það brá fyrir prakkaralegum glampa í augum Rand- vés. Greinilega fannst honum hugmyndin ögrandi og var einsog stundum endranær til í að rejma eitthvað sem ekki hafði fyrr verið bryddað á. Einhverstaðar í fylgsnum sálarinnar bærðist bæld löngun verðandi listamanns til að koma á óvart. Þú þorir ekki þegar á reynir, sagði hann og tvísteig fyrir framan mig með skelmsku glotti. Ég þori ef þú þorir, svaraði ég og fann ásetninginn geiga lítið eitt andspænis framkvæmd sem ekki yrði umflúin ef Randvér tæki af skarið. eftir Sigurð A. Magnússon Allt í lagi, sagði hann. Þú áttir uppástunguna og ferð fyrst úr þínum jakka. Ég hikaði við og horfði á hann örskotsstund tvílráður í fullri vitund þess að við væram í þann veginn að bijóta óskráð lög bæjarbúa, svipti þvínæst af mér jakkanum og lagði hann jrfir hægri handlegg. Randvér vildi ekki vera minni maður og gerði slíkt hið sama. Tveir menn á gangstéttinni andspænis snarstönsuðu og horfðu á okkur dolfallnir. Við létum sem við tækjum ekki eftir augnagolum veg- farenda þarsem við röltum í hægðum okkar ofan Bakarabrekku, reyndum að sýnast eðlilegir og afslappað- ir með því að halda uppi hástemmdum samræðum sem öðrahveiju vora rofnar af fátkenndum hláturrokum og vora ekki í neinu samræmi við umræðuefnin. Sólin var brennheit, bakaði húsveggi og gangstétt, þrengdi sér gegnum þunna skyrtuna og yljaði mér innað hjartarótum. Yfir tilveranni var ferskur og áfengur sumarblær sem blandaðist áður óþekktri frelsiskennd: í fyrsta sinn um langan aldur var ég opinskátt að hlýða boðum blóðsins og gefa dauðann í viðteknar umgengnisvenjur. En sú kennd var flöktandi og traflaðist af ónotalegri vitund um að vegfarendur væra margir hveijir sárhneykslaðir á til- tæki okkar. Sumir þeirra námu staðar og störðu á okkur með vanþóknunar- eða furðusvip, aðrir hröðuðu sér hjá niðurlútir og hristu hausinn í þögulli vandlætingu, en einstaka maður brosti til okkar vingjamlega og virtist vera hjartanlega sáttur við þetta frávik frá rótgróinni hefð. Niðrá Lækjartorgi gerðu tveir blaðsölustrákar skyndilegt hlé á hrópum sínum og störðu á okkur einsog naut á nývirki, uns gall við í öðram þeirra: Nei sko! Þeir ætla að fara að slást! Við lölluðum áfram vestur Austurstræti og ég slengdi jakkanum kæraleysislega yfir öxlina, hélt honum á hank- anum með einum fingri og bar mig einsog heimsmaður. í mannsöfnuðinum fann ég ótal augu beinast að okkur og rejmdi að láta sem ekkert væri, en varð hálfkindarleg- ur þegar kunningjar fóra hjá og köstuðu á okkur kveðrju. Þeir ráku undantekningarlaust upp stór augu og héldu vísast að við félagar hefðum fengið snert af sólsting. Þegar við komum að þóttafullri styttu Jóns Sigurðsson- ar á Austurvelli afréðum við að gefa tilraunina uppá bátinn og fara aftur í jakkana. Var einkennilegur léttir að losna undan forvitnum augnagotum vegfarenda og stangaðist á við ánægjuna yfir að hafa haft í frammi veikburða viðleitni til að ögra almenningsálitinu, en í kjölfarið kom sú áleitna kennd að við Randvér hefðum í rauninni hegðað okkur bamalega og að þarflausu gert okkur hlægilega. Sem fyrr var sálarlífið hrærigrautur gagnstæðra tilfínninga. Frelsiskenndin sem altók mig uppúr stúdentsprófi var á þverstæðan hátt blandin kvíða fyrir framtíðinni. Mér virtust allir vegir vera færir, en framtíðin var óráðin af því ég vissi ekki gerla hvað gera skyldi við nýfengið frelsi. Einsog fugl sem losnar úr búri eftir langa innilok- un og flýgur útí heiminn til að átta sig á árstíð og kennileitum, þannig var ég nú reiðubúinn að reyna flug- hæfnina og kanna möguleikana, sem við nánari skoðun rejmdust ekki vera eins fjölbrejtilegir og ég hafði í bjart- sýnum bamaskap talið mér trú um. Eg var með öllu félaus, sem óneitanlega setti hverskjms framtíðaráform- um óþægilegar skorður og útilokaði meðal annars hugsanlegt nám erlendis. Guðfræðin virtist eftir sem áður ætla að rejmast þrautalendingin. Vonlausar horfur á námi erlendis urðu fremur til að örva en slæva löngunina til að komast útjrfir pollinn og kynnast umheiminum, þó í litlu væri. Tækifærið kom óvænt uppí hendumar þegar auglýst var norrænt kristi- legt stúdentamót í Danmörku og átti að hefjast viku eftir Jónsmessu. Þórður Yngvi hafði um nokkurt skeið verið að velta fyrir sér Danmerkurferð og þótti bera vel í veiði þegar stúdentamótið var auglýst. Þarmeð gæti hann í senn sinnt brýnum einkaerindum og verið mér og nokkram öðram til samlætis á mótinu. Einkaerindin sem Þórður Yngvi hugðist reka vora tengd gamalli vinkonu, sem hann hafði bundist ástböndum fjór- um áram fyrr og saknað æ síðan. Var sú saga mér hugarhaldin sökum þess hve dularfull hún var og í flest- um greinum torskilin. Hann hafði kynnst Kirsten í stríðinu, rúmu ári áðuren hann hélt heimleiðis, og þau fellt hugi saman. Kirsten var hjúkranarkona og innilega trúuð, en hafði ekki fund- ið anda sínum frið eða fullnægju í lúthersku þjóðkirkjunni og var í þann veginn að snúast til rómversks siðar. Var hún í læri hjá kaþólskum presti í það mund sem þau Þórður Yngvi kynntust og gekk brátt formlega í söfnuð- inn, hvemig sem ástvinur hennar rejmdi að telja henni hughvarf. Af lýsingum vinar míns að dæma var hún ákaflega einbeitt stúlka og staðföst í sínum ásetningi, en átti samt í áralöngu sálarstríði og grafli útí eigið hjálp- ræði. Ást þeirra Þórðar Yngva dofnaði ekki þó Kirsten skipti um kirkjudeild, öðra nær. En þá komu upp vandamál sem reyndust nálega óieysanleg. Skriftafaðir og leiðbeinandi stúlkunnar lagðist ekki beinlínis gegn ráðahag elskend- anna, þó hann væri honum óljúfur, en stóð á því fastar en fótunum að böm þeirra yrðu alin upp í rómverskum sið, ef úr hjónabandi yrði. Þetta var sá stóri biti sem Þórður Yngvi fékk með engu móti kjmgt, með þeim afleið- ingum að hann hélt heim til íslands í stríðslok án elskunnar sinnar og harmaði hana alla stund síðan. Nú var það fyrirætlun hans að hitta hana aftur að máli og ganga úr skugga um, hvort hún sæti enn við sinn keip eftir þriggja ára sáran aðskilnað. Að vísu höfðu þau skrifast á og hún hvergi látið bilbug á sér finna í trúarefnum, en Þórður Yngvi gerði sér veika von um að fá hana aftur á sitt band þegar þau stæðu augliti til auglitis. Eg átti sannast sagna erfitt með að átta mig á stífni vinar míns í þessu viðkvæma og afdrifaríka máli, en hann kvað mig hvorki þekkja einstrengisleg og ómannúð- leg viðhorf kaþólskra né heldur gera mér ljósa grein fyrir hvað í því fælist að ala upp afkvæmi sín í öðram sið. Þegar ég innti hann eftir, hvort hann ætlaðist þá til að Kirsten æli upp böm sín í sið sem hún hefði sagt skilið við, svaraði hann þvj til, að sú væri ekki ætlun hans, heldur vildi hann komast að samkomulagi um að uppeldi bamanna yrði í höndum þeirra beggja og ekki bundið tiltekinni kirkjudeild; þau ættu að fá að ráða því sjálf þegar þau hefðu aldur til, hvaða kirkjudeild þau vildu tilheyra. Erfitt var að gera sér í hugarlund hvemig þvílík málamiðlun myndi arta sig f veraleik daglegs lífs, en vitanlega var það þeirra höfuðverkur. Eftirað ég hafði iátið skrá mig á stúdentsmótið í Dan- mörku fór ég á stúfana til að verða mér úti um gjaldeyri, sem var ófáanlegur í bönkum. Eftir árangurslausa eftir- grennslan kom loks þar, að einn af kunningjum mínum í KFUM kvaðst eiga allgott frimerkjasafn sem hann væri reiðubúinn að ráðstafa í mína þágu. Þvílíku kosta- boði tók ég allshugarfeginn og átti bágt með að veijast þeirri hugsun, að hér hefðu æðri máttarvöld gripið inní rás viðburða; ég gat ekki fundið neina skynsamlega ástæðu til þess að kunninginn fómaði þannig aleigu sinni í frímerkjum, jafnvel þó hann fengi hana að fullu greidda í íslenskri mynt — nema hann væri með öllu afhuga frímerkjasöfnun, sem reyndar gat vel verið. Frímerkin vora póstsend til Svíþjóðar, en þaðan átti ég að fá and- virði þeirra í dönskum krónum sent á heimilisfang í Kaupmannahöfn. Síst óraði mig fyrir flækjunum sem af þessu ráðabralli leiddi. Sú bíræfni að leggja uppí langa utanlandsferð með tvær hendur tómar skömmu eftir stúdentspróf helgaðist ekki einungs af hamslausri útþrá, heldur einnig þeim áformum að vinna mér inn peninga með kennslu næsta vetur samhliða háskólanámi, þannig að sumarhýran, hver sem hún yrði, væri ekki skilyrði þess að ég gæti haldið áfram skólagöngu. Dagana sem ég átti lausa framað brottför tók Sá eini rétti mig í tilfallandi málningarvinnu, svo ég hefði hand- bært skotsilfur til að greiða kunningjanum bóngóða sem frímerkin átti og reynst hafði mér miklu betri en enginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.