Morgunblaðið - 19.03.1987, Page 16

Morgunblaðið - 19.03.1987, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1987 "1 Norrænu barnabókaverðlaunin: „Saman í hring“ til- nefnd frá Islandi - Ármann Kr. Einarsson einnig tilnefndur vegna framlags síns til barnabókmennta FELAG skólasafnskennara hef- ur ákveðið að tilnefna bók Guðrúnar Helgadóttur, „Saman í hring“, til norrænu barnabóka- verðlaunanna, NSF. Bók þessi er framhald bókarinnar „Sitji Guðs englar". Ennfremur hefur félagið tilnefnt Ármann Kr. Einarsson til verðlaun- anna fyrir framlag hans til barna- bókmennta á íslandi í 50 ár, en í ár eru einmitt 50 ár liðin síðan Ármann skrifaði sína fyrstu barna- bók. í frétt frá félaginu segir að hann hafí ætíð barist ötullega fynr bamabókmenntum og reynt að auka veg og virðingu þeirra, sem hafa ritað fyrir böm hér á landi. Þá segir að Ármann hafi sýnt merkt framtak er hann og fjöl- skylda hans ásamt bókaútgáfunni Vöku-Helgafelli stofnaði á sjötugs- afmæli sínu 1985 sjóð til styrktar bamabókahöfundum, Verðlauna- sjóð íslenskra barnabóka“. Verð- laun eru veitt árlega úr sjóðnum fyrir handrit að undangenginni samkeppni. Frá sýningu Leiklistarklúbbs Flensborgarskóla á Rómanoff og Júlía. Rómanoff og Júlía í Flensborg LEIKLISTARKLÚBBUR Flensborgarskóla frumsýndi síðastliðinn fimmtudag gamanleikinn Róman- off og Júlía eftir lcikarann og leikritahöfundinn Peter Ustinov í íslenskri þýðingu Sigurðar Grímssonar. Leikritið fjallar um ástir og örlög í gríni og alvöru. Sýningar fara fram í hátíðarsal skólans sunnudaginn 22. mars og mánudaginn 23. mars nk. Sýningamar hefjast kl. 20.30. MALLORKA VIÐ BJOÐLM YKKUR ,. KIASSA HÖTEL* SEM GERA FERÐINA ÁNÆGJELEGRI Royal Magaluf Royal Torrenova Royal Playa dePalma Royal Jardin del Mar Óhætt er að fullyrða að Atlantik býður upp á bestu gisti- og dvalaraðstöðu á MALLORKA sem völ er á. Það eru Ibúöarhótelin góðkunnu I Royal hótelhringnum. Tvö þeirra eru I Magaluf og annað þeirra, Royal Magaluf, býðst íslendingum nú aftur eftir nokkurra ára hlé. Eitt er I Santa Ponsa og eitt á Playa de Palma. Reynslan hefur sýnt okkur að fólk vill aðeins það besta. Við viljum að farþegum Atlantik Ifði vel ( frlinu. IÁTTUÞÉR ÚÐA VEL BROTTFARARDAGAR: Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október 15 23 1 4 3 5 5 29 13 13 15 14 22 25 24 26 mwvm Ferðaskrifstofa, Iðnaðarhúsinu, Hallveigarstíg 1 símar 28388 og 28580 WNBtSCLUe INTERNAIKONAi V öruf lutninga- bíll kyrrsettur í Hestf irði Reykjanesi. VÖRUFLUTNINGABÍLL með aftaní-vagni var kyrrsettur í Hestfirði sl. föstudagskvöld. Var hann á leið til ísafjarðar þrátt fyrir auglýstar þungatakmark- anir á Djúpvegi. Varð bíllinn að bíða í tólf tíma meðan jörð frysti. Vegir við Djúp eru nú víða í hörmulegu ástandi. Kvarta öku- menn sáran og telja óviðunandi að búa við slíka vegi, ef vegi skyldi kalla. Þykir mönnum sýnt að brýn nauðsyn sé á úrbótum hið fyrsta, ekki síst vegna stóraukinnar um- ferðar um Djúpveg eftir að vetrar- vegur kom yfir Steingrímsfjarðar- heiði. - Björg. Yestmannaeyjar: Fannfergi og ófærð Vestmannaeyjum. EYJABÚUM brá illilega i brúr er þeir risu úr rekkju á þriðju- dagsmorgun. Miklum snjó hafði kyngt niður um nóttina og voru allar götur ófærar. Eftir hlýindi og milda tið undanfarið hafði veturinn komið á einni nóttu. Hnédjúpur snjór var á öllum göt- um og snjódýptin mun meiri þar sem dregið hafði í skafla. Lögreglan og hjálparsveitir voru í önnum við að aðstoða fólk og flytja til vinnu, einkum í úthverfum, þar sem ófærð- in var mest. Starfsmenn Áhalda- hússins hófust þegar handa með öllum tiltækum tækjakosti að ryðja snjó af helstu götum. Hvassviðri var og því mikill skafrenningur. Veðurhæðin var mest um fjögur- leytið um morguninn, spænurok og svartabylur. Hætta varð við loðnu- löndun þar sem bifreiðastjórar, sem sáu um að aka loðnuhrognakörum til hreinsunarstöðvar, sáu ekki út úr augum í kófinu og hætta var á ákeyrslum. Netabátar sem hugðust vitja neta sinna undir morguninn sneru við í hafnarmynninu því þar var skyggnið glórulaust. Brottför Herjólfs tafðist lítillega. Uppúr klukkan átta fór að draga úr veðrinu og undir hádegið var orðið sæmilega greiðfært um allar helstu umferðargötur bæjarins. Langt er síðan svona mikinn snjó hefur fest á Heimaey. — hkj.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.