Morgunblaðið - 10.04.1987, Qupperneq 9
MORGUNBllAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1987
B
ÞURÍÐUR PÁLSDÓTTIR
Páskamir kær-
kominn hvfldartími
ÆT
■■ g geri ráð fyrir að hvíla mig hér heima um
£ páskana, fæ leyfi til að fara heim af
Grensásdeildinni" segir Þuríður Pálsdóttir
söngkona, en hún hefur átt við veikindi að stríða
aðundanförnu.
„Hér áður fór ég alltaf á fætur klukan 6 á
páskadagsmorgun og söng í páskamessunni.
Meðan faðir minn var á lífi fórum við alltaf þangað
á páskadagsmorgun, en ég söng flesta
bænadagana, og páskahelgin fór í það og að sinna
fjölskyldunni.
Eg hef haldið nokkrum siðum um páskana, hef
t.d. aldrei kjöt á föstudaginn langa. Síðari árin
hafa páskarnir verið kærkomnir hvíldardagarfrá
kennslunni, þá er oft gott að fá næði til að meta
það sem á undan er komið og leggja drög að
prófundirbúningi."
Þuríður Pálsdóttir
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR
Fer á skíði
Ætli ég fari ekki á skíði eða upp í
sumarbústað." Kristín Guðmundsdóttir
forstöðumaður lánasviðs Iðnaðarbankans segist
hafa notað páskahelgina til að vera á skíðum í
fyrra og býst við að hið sama verði upp á
teningnum nú í ár.
Hún segist ekki hafa neina sérstaka siði um
páskana, en þau hafi þó haft það að venju að fela
páskaegg einhvernstaðar í íbúðinni og þurfi börnin
að leita þeirra á páskadagsmorgun. Hefur hún
einhvern ákveðinn páskamat? „Nei, við höfum
bara einhvern hátíðarmat á borðum."
Kristín Guðmundsdóttir forstöðumaður
lánasviðs Iðnaðarbankans
ÞÓRA HARÐARDÓTTIR
K&a i
Kss
s,á apríl.
Amtma
nnsstíg 2b
TTTmw
Þessar gerðir komnar
frá Peter Kaiser, ásamt
mörgum öðrum.
Einnig er komið mikið
úrval af skóm frá Bruno
Magli.
Egilsgötu 3,
Sími: 18519.
Reyni alltaf að fara í messu
á páskadagsmorgun
Það eru fáir sérstakir siðir sem ég minnist frá mínu bernskuheimili í kringum páskahátíðina, nema
hvað við systurnar máluðum alltaf á hænuegg með aðstoð pabba okkar," sagði Þóra þegar hún
var spurð hvort einhverjar venjur hefðu verið ríkjandi á hennar heimili um páska. „Við vönduðum
okkur mikið og eggin voru brothætt þegar búið var að blása úr þeim þannig að við vorum varkárar.
Eggin voru svo hengd á greinar og við vorum að keppast um að hafa þau sem fallegust.
Á páskadag fórum við alltaf í heimsókn til ömmu okkar og afa. Þau höfðu þá iðulega á borðum köku
sem var í laginu eins og hreiður og í því voru svo geymd páskaegg. Allir fengu svo sitt egg úr hreiðrinu
og lásu málsháttinn."
Þóra sagðist ekki hafa haft það fyrir sið að fara í kirkju á páskadagsmorgun fyrr en hún tók upp á því
hjá sjálfri sér um fjórtán ára aldur. „Síðan hefur kirkjuferð á páskadagsmorgun verið þýðingarmikil
fyrir mig og ég hef reynt að fara alla páska enda finnst mér eins og eitthvað vanti ef ég kemst ekki. Það
er alveg sérstök tilfinning sem fylgir því að fara svona snemma á páskadagsmorgni til messu. Maður
eins og fyllist nýjum krafti,
fastan er liðin og Guð fyllir mann
nýrri von. Drottin er lifandi og
hefur sigrað dauðann."
Þegar hún er spurð hvað sé
ætlunin að gera um þessa paska
segir hún að það sé ekkert
ákveðið, nema þau hjón, Þóra
er gift séra Ólafi Jóhannssyni,
ætli í messu á páskadagsmorgni
og svo fari þau eflaust á skíði
og í gönguferðir ef veður leyfir.
I
Þóra Harðardóttir Þoi'kul1
Ráðstefna um grunnrann-
sóknirá íslandi
Vísindafélag íslendinga gengst fyrir ráðstefnu um grunn-
rannsóknir á íslandi í Norræna húsinu laugardaginn 11.
apríl 1987. Ráðstefnan hefst kl. 9.00 að morgni og stendur
frameftirdegi. _ .......
Dagskra fyrir hadegi:
Ráðstefnan sett.
Helga M. ÖgmundsdóttirlækninM verða vísindamaður á íslandi.
Leó Kristjánsson.jaröeðlisfræðingur: Hugleiðingar um aðstöðu til vísindarann-
sókna á Islandi.
GuðmundurE. Sigvaldason, jarðfræðingur: Útsýn.
HafliðiP. Gíslason, eðlisfræðingur:Við upphaf nýrra rannsókna á islandi.
Þorbjörn Karlsson, verkfræðingur: Grunnrannsóknir i verkfræði.
Guðmundur Pálmason, jarðeðlisfræðingur: Eru grunnrannsóknir stundaðar á Orku-
stofnun?
PállJensson, verkfræðingur:\]gg\js\nqatæVs\\ iþágu grunnrannsókna.
Dagskrá eftir hádegi:
Sigmundur Guðbjarnason, háskóiarektor: Vísindastefna íslendinga.
Helgi Valdimarsson, læknir: Liffræðivísindi á íslandi - samyrkja eða hokur!
StefánAðalsteinsson, búfjárfræðingurQmmmó'r.m i landbúnaði.
Þóra Ellen Þórhallsdótir, vistfræðingur: Grunnrannsóknir i vistfræöi.
UnnsteinnStefánsson, haffræðingunGmmmsókmá íslenskum hafsvæðum.
GuðmundurÞorgeirsson, M/i//-:Grunnrannsóknirílæknisfræði á íslandi.
JakobK. Kristjánsson, Hfefnafræöingur.iMæM og hagnýtar grunnrannsóknir.
Frjálsar umræður.
GuðmundurEggertsson, erfðafræðingunMursiöóur.
Ráðstefnu slitið.
Fundarstjórar verða Jakob Jakobsson, forstjórí Hafrannsóknastofnunar og
Þorkelt Helgason, prófessor.
Ráðstefnan eröllum opin.