Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 2
2 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 ... komin hálfa leið ... HúsiA steypt Haustið 1984 komu næstu tveir áfangar til framkvæmda. Sá stærri fólst í að reisa sjálft flug- stöðvarhúsið, hinn minni var lagning aðveituæða og frárennsl- is. Istak átti lægsta tilboðið í upp- steypu hússins og var samningur um það verk að upphæð 210 millj- ónir króna. Verkið var í því fólgið, að steypa upp húsið, setja gler í glugga, koma þakinu á og reisa járngrindarburðarvirki. ístak gerði síðan samninga við undir- verktaka um framkvæmd nok- kurra verkþátta, þ. á m. um raflagnir og pípulagnir. Bandarískt fyrirtæki, Stilwell Intemational Corporation, sá um uppsetningu glervirkis og að koma fyrir burðarvirkinu sem heldur uppi þakinu. Vinna við verkið sóttist vel og komu engin alvarleg vandamál fram. Verkefnisstjóri ístaks við bygginguna var Loftur Ámason verkfræðingur (sjá viðtal). Hönn- un hf. sá um eftirlit með fram- kvæmdum og verkfræðiþjónustu lagði Almenna verkfræðistofan hf. til. Hagvirki hf. átti lægsta tilboðið í lagnir að og frá flugstöðinni, 33 milljónir króna. Það tilboð var miðað við tollfrjálsar framkvæmd- ir, þ.e. ekki var greiddur tollur af efni og af tækjum var einung- is greiddur tollur eftir afskriftir sem svöruðu til notkunar við verk- ið. Með tollum hefði þessi samn- ingur orðið nálægt 50 milljónum króna. Síðari samningar voru gerðir með tollum. Eftirlit með framkvæmdum var á vegum Almennu verkfræðistof- unnar hf. Innréttingarnar 1985 var stærsti einstaki hluti flugstöðvarinnar boðinn út. Það voru innréttingamar svokölluðu, þ.e. allt innanstokks í bygging- unni. Þar var um risavaxið og flókið verkefni að ræða sem gerði ítarlegar kröfur til hæfni verk- taka. Fallið var frá lægsta tilboði og því var gengið til samninga við Hagvirki hf., sem boðið hafði næst lægst. Haustið 1985 var samningur undirritaður um 626 milljóna króna verk. Að auki hef- ur Hagvirki hf. umsjón með samræmingu verka sem ekki vom i aðalsamningum. Fjöldi undir- verktaka hefur síðan séð um einstaka verkhluta. Verkefnis- stjóri Hagvirkis við flugstöðvar- framkvæmdimar er Aðalsteinn Hallgrímsson verkfræðingur (sjá viðtal) og Magnús Stephensen tæknifræðinpr hefur verið stað- arstjóri við innréttingamar. Eftirlit hefur verið í umsjá Verk- fræðistofu Stanleys Pálssonar hf. og hefur Steindór Guðmundsson haft umsjón með því (sjá viðtal). FlughlaðiA Bandaríkjamenn bera kostnað- inn af gerð flughlaðsins og Flugstöðvarbyggingin rís af grunni Fyrstu framkvcemdirnar hófust haustiÖ 1983.1 októberþað ár var undirritaÖur samningur viö Hagvirki hf um jarÖvinnu, þ.e. aðgrafa fyrir byggingunni. Sá samningur hljóÖaÖi upp á um 9 milljónir króna við undirritun, enþegar verki var lokiÖ og búiÖ aÖ reikna fram upphœöirnar, voru níu milljónirnar orðnar að 13. ...og loks undir þak

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.