Morgunblaðið - 12.04.1987, Síða 4
4 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987
Framkvæmdir
Uppsteypuáfangi kominn á lokastig, klárt fyrir innréttingarnar.
100 þús. rúmmetrum af lofti á klst. Hér er einum stokkn-
akstursbrauta fyrir flugvélamar.
íslenskir aðalverktakar hf. sáu um
framkvæmdir og var fyrsti samn-
ingur þar um undirritaður í mars
1986. Sá samningur var um jarð-
vegsskipti, malbikun aksturs-
brauta og steypu flugvélastæða.
Aðalverktakar lögðu einnig elds-
neytiskerfi í jörðu, svo og hitalögn
í flugvélastæði. Þessum fram-
kvæmdum á að ljúka að mestu í
október næstkomandi og að fullu
í janúar 1988. Bandaríkjamenn
kosta fleira en framantalið, vegur-
inn upp að flugstöðinni er á þeirri
reikning og einnig flutningur girð-
ingar sem afmarkar svæði
vamarliðsins. Þessar fram-
kvæmdir hafa Aðalverktakar séð
um. Heildarkostnaður við fram-
kvæmdir kostaðar af Bandaríkja-
mönnum munu vera nálægt 800
milljónum króna. Andrés Andrés-
son verkfræðingur hefur haft
umsjón með þætti Aðalverktaka
í flugstöðvarframkvæmdum (sjá
viðtal).
Lóðin
Í byijun ágústmánaðar 1986
var gerður samningur við Bygg-
ingarfélagið hf. um frágang lóðar
við flugstöðvarbygginguna og
hljóðaði sá samningur upp á
87.570 þúsund krónur. í verkinu
felst að gera bflastæði, gang-
brautir, koma fyrir lýsingu, gróðri
og reyndar öllu því sem á lóðinni
er. Meginhluta verksins á að vera
lokið 1. september næstkomandi,
en gróðurvinnu lýkur þó ekki end-
anlega fyrr en í ársbyijun 1990.
Það er Garðaprýði sem hefur tek-
ið að sér gróðurinn, að koma
honum fyrir og útvega plöntur,
hefur Guðmundur Gíslason garð-
yrkjumaður annast það verk.
Breytt var hönnun bílastæða. í
stað malbiks koma hellur og eru
alls 13 þús. fermetrar. Þar með
varð hellulögn á allri lóðinni kom-
in upp í 20 þús. fermetra og varð
verktaki að kaupa sérstaka hellu-
lagningarvél til að koma öllum
þessum hellum fyrir á réttum
tíma, en þær eru af mörgum
stærðum, frá 10x10 sm til 40x40
sm. 40—50 manns hafa unnið að
verkinu undir stjóm Heimis Heim-
issonar verkstjóra. Umsjónar-
menn með verkinu af hálfu
Byggingarfélagsins hf. eru Ey-
steinn Hafberg verkfræðingur og
Þorsteinn Bjömsson tæknifræð-
ingur. Verkfræðistofa Stanleys
Pálssonar sér um eftirlit.
Loftræstikerfið er öflugt, dælir
um komið fyrir.
AArar framkvsomdir
A svæðinu umhverfís flugstöð-
ina mun í framtíðinni verða
staðsett fjölbreytileg starfsemi í
tengslum við flug og flugvélar.
Nú þegar eru framkvæmdir langt
komnar við aðstöðu Flugleiða, þ.e.
eldhús fyrir flugvélar og einnig
verður þar vöruafgreiðsla og toll-
vörugeymsla. Húsið er 4.200
fermetrar að flatarmáli og vom
samningar gerðir við Hagvirki hf.
um að byggja það. Framkvæmdir
hófust í júlí síðastliðnum við jarð-
vinnu og í september við sjálfa
bygginguna.
Hagvirki hf. reisir ennfremur
oliustöð, sem er í eigu olíufélag-
anna og Flugleiða. Byijað var á
verkinu stuttu fyrir síðustu ára-
mót og verður stöðin tekin í
notkun um leið og flugstöðin,
þann 14. aprfl nk. Því verki lýkur
í sama mánuði.
EftlrlK
Þijú fyrirtæki hafa sinnt eftir-
liti með framkvæmdum. Almenna
verkfræðistofan sá um eftirlit með
jarðvinnu í 1. áfanga, aðveitu-
lögnum og frárennsli, Hönnun hf.
leit eftir vinnu við uppsteypu
hússins og síðan hefur Verk-
fræðistofa Stanleys Pálssonar hf.
haft með höndum það verkefni
að líta eftir og halda utan um
framkvæmdir við innréttingamar
og lóðina. Tölvur vom notaðar við
verkið eins og nánar kemur fram
í viðtalinu við Steindór Guð-
mundsson verkfræðing frá VSP,
en hann stjómaði eftirliti með
byggingarframkvæmdum.
TEXTI: ÞÓRHALLUR
JÓSEPSSON