Morgunblaðið - 12.04.1987, Side 7

Morgunblaðið - 12.04.1987, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 C 7 .Flugstöðin er hönnuð í þeim tilgangi að fólki líði vel, að það stöðvi og njóti þess sem fram er borið. - „Skemmtiferða-flugstöð“, sagði Garðar. „.... tákn sem sótt er í okulindir landsins.“ Garðar útskýrir hönnun miðskips í stöðinni. umhverfis og þjónustu, ekki ein- vörðungu flugfarþega heldur alla landsmenn. Hann sagði: „Víða eru flugstöðvar fyrst og fremst hannað- ar með það í huga að koma fólki sem hraðast í gegn. Áferðir eru þá oftast stál, plast og gler, fremur fráhrindandi en afkastamiklar flug- stöðvarbyggingar. Þessi flugstöð er hönnuð í þeim tilgangi að fá fólk til að líða vel, fá það til þess að stöðva og njóta þess sem fram er borið. „Skemmtiferða-flugstöð“ um leið og hagkvæmni í rekstri er einnig grundvallaratriði. I brottfararskálanum verður skráning farþega með 14 innritun- arborðum. Ennfremur er þarna gert ráð fyrir ýmis konar þjónustu fyrir ferðamenn, svo sem afgreiðslum flugfélaga , bílaleigum og komu- verslun Fríhafnar. Garðar benti á ýmis atriði við hönnunina innan- dyra, sem þjóna því að stjóma umferðinni, þ.e. leggja á misjafnar áherslur, þannig að notendur drag- ast ósjálfrátt að þeim stöðum þar sem þjónustu er að leita. Þetta er til dæmís gert með lýsingu og límtrésloftum. Yfir þjónustusvæð- um, til dæmis innritunarborðum og stigum, er loft tekið niður með límtrésbitum og'þar er lýsing sterk- ari en á öðrum svæðum í skálanum. Hið sama á við um önnur þjónustu- svæði. Hönnun byggingarinnar er öll miðuð við þetta og sagði Garð- ar, að þessar áherslur í hönnuninni ættu að auðvelda mönnum að rata um bygginguna og halda áttum, ekki síst í biðskálanum á annarri hæð. Þörf fyrir merkingar ætti því að vera minni, þó svo þær verði til staðar. Vinsæll sunnudagsbiltúr í flug- stöðina Úr brottfararskála á fyrstu hæð er innangengt yfir í komuskála með gangi á norðurhlið en við hann tengjast m.a. banki, pósthús og veitingabúð sem verður undir gler- hvelfingunni að norðan. Frá henni verður unnt að fylgjast með far- þegum og umsvifum í biðsal á annarri hæð. Garðar sagði, að lögð væri mikil áhersla á að gera þessa veitingabúð eftirsóknarverða fyrir landsmenn og undirstrika með því, að flugstöðin verði almenningseign. Til dæmis mætti hugsa sér, að vin- sæll sunnudagsbíltúr fjölskyldunnar a.m.k. á suðvesturhominu yrði í flugstöðina til að fá sér hressingu, kaffi eða mat, og fylgjast með því alþjóðlega andrúmslofti sem þar ríkti, eða bara til að sjá fólk koma og fara. Á fyrstu hæð er einnig farangursskáli í miðju húsinu, þar sem fram fer öll afgreiðsla á far- angri, bæði inn í landið og út úr því.í suðurhlið byggingarinnar er þungamiðja aðstöðu starfsfólks, en Garðar sagði að með hverri starfs- semiseiningu fylgdi húsnæði þar sem starfsmenn ættu sér afdrep með búnings-, hreinlætis- og hvíldaraðstöðu. Af fyrstu hæð lá leiðin upp í gegnum vegabréfaeftirlit og vopna- leitarsvæði. Garðar sagði að um bygginguna kæmust fatlaðir án vandræða, allt frá bílastæði og út í flugvél, því má velja á milli þess að fara upp með lyftu, rúllustiga eða að ganga upp venjulega stiga. Á annarri hæðinni verður biðsvæði fyrir brottfarar- og viðkomufarþega fyrir miðju, landgangur í flugvélar er áfastur til suðurs. Út úr honum ganga sex landgöngubrýr beint út í flugvélamar, þannig að farþegar geta nú gengið þurrum fótum alla leið. Hægt er að leggja átta flugvél- um við landganginn samtímis. BIAsalurinn líkastur ævintýri Það má líkja biðsalnum við ævin- týri. Hönnunin miðast við að ná andrúmslofti á göngugötu með til- heyrandi lýsingu. Miðskipið, eða gróðurskálinn, sem er einn af grunntónunum í upprunalegri hönnun stöðvarinnar, er að sögn Garðars tákn sem sótt er í orkulind- ir landsins; orkulindirnar sem gera ísland byggilegt og okkur jafnvel kleift að rækta suðrænan gróður og aldin hér norður við heims- skautsbaug. Þetta ásamt tignarleg- um glerlistarverkum Leifs Breiðfjörð og flugvélinni TF ÖGN, sem eins og svífur yfir miðjum sal, er í raun sjálfstætt listaverk, eins og flugstöðin raunar öll, að mati höfundar þessara lína. Garðar sagði að hönnun þama miðaðist við að gera umhverfið hlýlegt og aðlað- andi, farþegum til þæginda og ánægju, innan um gróskumikinn gróður, sem komið verður fyrir í gróðurskála. Þeir sem sitja í þeim hluta biðveitingarbúðar, sem er á upphækkun í gróðurskálanum, hafa gott útsýni yfir aðalathafnasvæðið og uppgöngu af neðri hæð svo fylgj- ast má grannt með gestum og gangandi, - sýna sig og sjá aðra. Garðar sagði, að tillaga hefði kom- ið fram um að skíra þennan hluta gróðurskálans Öndvegi og þætti sér það vel viðeigandi, enda sætu menn þar sem í öndvegi. Gróðurker eru þarna stór og reiknað með fjöl- breyttum gróðri, svo sem fimm til sex metra háum pálmatijám og fíkusum, þ.e. sannkallaður Miðjarð- arhafsgróður. Á annarri hæð verður, auk veit- ingasölu, ýmis önnur þjónusta við flugfarþega. Þar má nefna toll- fijálsar verslanir, vínstúku, banka, pósthús, sjúkraherbergi, afmarkað leiksvæði fyrir börn, sérherbergi til umönnunar ungbarna, móttökuher- bergi fyrir sérstaka gesti, auk fundarherbergis, vinnuafdrep fyrir farþega í viðskiptaferðum, svó fátt eitt sé nefnt. I vesturhlið er skrif- stofusvæði með skrifstofum flug- vallarstjóra og fleiri rekstraraðila. í austurhlið er mötuneyti starfs- manna og eldhús, sem þjónar allri veitingastarfsemi. Unnt verður að sögn Garðars að opna á milli mötu- neytis starfsmanna og veitingasal- ar, ef aðstæður, til dæmis seinkun á flugi, krefjast stærra húsrýmis. Farþegar og færibönd blasa við Úr aðalsal á annarri hæð er gengið út í flugvélar eftir land- gangi og sagði Garðar að þar yrðu nokkur sæti fyrir þá sem þyrftu þess með, en með það í huga að fá fólk til að koma inn í stöðina sjálfa og njóta þess sem hún hefði upp á að bjóða, væri reynt að hafa stóla í landgangi sem fæsta, enda ekki langur vegur að ganga inn í stöð. Inn um landganginn koma einnig flugfarþegar á leið inn í landið og liggur leið þeirra í vega- bréfaskoðun á annarri hæð og síðan niður í komuskála. Þar verður fríhafnarverslun og komið beint út úr henni að færiböndum sem færa farangurinn inn, síðan er farið í gegnum tollgæslu og út. Þess má geta, að allt frá því komufarþegar koma niður á fyrstu hæð geta þeir, sem komið hafa til að taka á móti þeim, fylgst með þeim í gegnum stóran glervegg þar sem færiböndin og farþegarnir blasa við. Allt er þetta svæði samtengt með gangi, þ.e. brottfararskáli, veitingaskálinn á fyrstu hæð og komuskálinn. Garðar sagði að ekki væri síður lagt mikið upp úr öllum frágangi utandyra, þ.e. að aðkoman sé bæði aðlaðandi og snyrtileg, þótt hávax- inn gróður verði í lágmarki vegna slæmra vaxtarskilyrða. Bílastæði, sem rúma yfír 500 bíla samtímis, eru lögð með jötunssteinum. Verða þau með snjóbræðslukerfum svo og allir gangvegir umhverfis. Þá er stórt skyggni yfir inngangi þannig að unnt á að vera að komast þurrum fótum inn í stöðina. Reyndar er unnt að stækka þetta skyggni síðar, ef þörf krefur. Bílastæðin eru lækk- uð nokkuð í landslaginu, að sögn Garðars til að draga úr áhrifum þeirra á umhverfið og útsýnið. Þá eru hlaðnir veggir úr stórgrýti í nánasta umhverfi þar sem koma á gróðri fyrir síð.ar, ennfremur er hljóðmúr við flugvallargirðinguna næst stöðinni, til að draga úr háv- aða og „gaddavírsáhrifum“, ef svo má að orði komast. Þess má geta að hönnuður lóðar og landslags er Reynir Vilhjálmsson, en varðandi gróður innanhúss hefur Bjöm Jó- hannesson verið ráðgjafi. Forréttindl aA fá aA vinna aA slfkri byggingu Við spurðum Garðar í lokin um leið og við óskuðum honum til ham- ingju með þessa fallegu flugstöð, hvort hann væri ekki stoltur af að sjá árangur verka sinna á þennan hátt. Hann sagði að auðvitað væru það forréttindi að fá að vinna að slíkri byggingu. Hann sagði einnig, að hjá sér hefðu frá árinu 1980 unnið yfir 30 starfsmenn að hönnun byggingarinnar en af þeim hefðu arkitektamir Birgir Breiðdal, Erling Pedersen, Rúnar Hauksson og Sig- urður Gíslason verið nánustu samstarfsmenn. „Allir höfum við haft ómælda ánægju sem og reynslu af þessu hönnunarstarfi," sagði hann. Hann sagði ennfremur að það væri rétt, að alls staðar hefði verið lagt mikið upp úr því að hafa hlutina vandaða og þar með létta í viðhaldi. Ánægjulegt væri því að sjá árangurinn og sérs- taklega að finna það í lokin að áhrif þau og hönnunarmarkmið sem hann hefði ákveðið strax árið 1980, til dæmis í sambandi við gróður- skálann, hefðu komist til skila. Ekki væri síður ánægjulegt að heyra fólk, sem skoðað hefði stöð- ina, lýsa því yfir að það skynjaði áhrifin eins og þau voru hugsuð á teikniborðinu. Texti: Fríða Proppé Ljósmyndir: Ragnar Axelsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.