Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 Byggingin erfalleg og okkur til sóma - segir MatthíasÁ. Mathiesen, utanríkisráðherra „Flugstöðin nýja á Keflavík- urflugvelli er stókostleg bygg- ing, sem á eftir að breyta öllu því sem viðkemur farþegaflugi til og_ frá íslandi", sagði Matt- hías A. Mathiesen utanríkisráð- herra, er fréttamaður blaðsins hafði tal af honum í tilefni þess að á þriðjudag verður þessi langþráða bygging opinberlega tekin í notkun.„Þarna verður tvímælalaust gífurleg breyting til batnaðar fyrir allt ferðafólk sem um völlinn fer. Aðkoman fyrir útlendinga verður allt önnur, bæði þegar þeir ganga inn í flugstöðina og aka eftir nýrri leið frá henni inn í landið. Þar opnast strax stórkostlegt útsýni yfir Faxaflóann og til fjalla. Staðsetning flugstöðvar- innar er sérstaklega skemmti- leg með tilliti til þessa.“ „Þegar ríkisstjómin tók við 1975 og Geir Hallgrímsson varð utanríkisráðherra varð samkomu- lag við Bandaríkjastjóm um skiptinu fjármögnunar vegna hinn- ar nýju flugstöðvarbyggingar. Upphaflega var nokkmm erfíðleik- um bundið að taka endanlega ákvörðun, en flugstöðinni er ætlað ákveðið hlutverk í sambandi við starfsemi vamarliðsins, ef til átaka kæmi. Ákveðið var að staðsetning stöðvarinnar yrði á þann veg að afgreiðsla almenns flugs væri al- veg skilin frá athafnasemi vamar- liðsins á flugvellinum. Stöðin er því staðsett á mörkum girðingar- innar um vamarsvæðið og sjálf byggingin öll utan við. Síðan var málið að velkjast hjá þeim ríkis- stjómum sem við tóku. Teikningar vom endurskoðaðar og byggingin minnkuð niður í það sem hún er í dag. Nú á endasprettinum em svo famar að heyrast þær raddir að ekki hafí verið viturlegt að minnka hana svona mikið.“ „Þegar núverandi ríkisstjóm tók við og Geir Hallgrímsson varð ut- anríkisráðherra var hafist handa í samræmi við ákvörðun ríkisstjóm- arinnar og undirbúningi hraðað. Geir Hallgrímsson tók fyrstu skóflustunguna 7. október 1983. Síðan hefur verið unnið markvisst að þessu verki, enda ætlunin að opna flugstöðina 1. april í vor. Á því hefur orðið nokkur dráttur, en minni þó en við mátti búast. Kem- ur þar til hagstæð veðrátta, svo hægt hefur verið að vinna úti, og mikill kraftur hefur verið í þeirri byggingamefnd sem skipuð var undir fomstu Sverris Hauks Gunn- laugssonar skrifstofustjóra, en verktaki hússins er Hagvirki h.f.“ „Mér hefur verið það mikil ánægja að fylgjast með þessu verki eftir að ég tók við starfí utanríkis- ráðherra. Og mér er ljóst að hér hafa margar hendur komið að verki og mörgum ber að þakka fyrir dugnað og ósérhlífni." „Ég er viss um að þessi flugstöð á eftir að hafa mikla þýðingu. Umferð um flugvöllínn mun vaxa og um leið ferðamannastraumur- inn til Islands“, sagði Matthías Á. Mathiesen að lokum.,, Mér er ljóst Matthías Á. Mathiesen utanríkisráðherra, Geir Hallgrimsson fyrrverandi utanríkisráðherra og Sverrir Haukur Gunnlaugsson, formaður byggingarnefndar í nýju flugstöðinni í Keflavík. að byggðin á Suðumesjum á eftir að njóta með ýmsum hætti góðs af þessari flugstöð. Þar leggjast til þjónustustörf af ýmsu tagi. Byggingin er falleg og okkur til sóma. Eg trúi því að allir þeir mörgu, sem eiga eftir að fara um flugvöllinn og koma í nýju flug- stöðina, spytji hvers vegna hún var ekki byggð miklu fyrr.“ Texti: E.Pá. Ljósmynd: Ragnar Axelsson Tískuverslunin Dalakofinn Hafnarfirði tilkynnir! Full búð afnýjum vorfatnaði á eftirtöldu verði: Kjólar á eldri konur kr. 1.500.- Fjölbreytt úrval af kvöldkjólum verðfrá 2.500-5.000.- Dragtirákr. 4.000.- Heilsárskápur og terelyne kápur á kr. 4.500.- Pilsfrá kr. 800.- Blússur frá kr. 600.- Buxur frá kr. 1200.- Peysurfrá kr. 1.100.- Töskur og hattar. Dalakofinn, Linnetsstíg 1. Ath! Verksmiðjuútsala Háskólabolir á 298 kr, bolir frá 100 kr. Opið á laugardag og sunnudag frá kl. 10.00-16.00. Ceres, Nýbýlavegi 12, Kópavogi. íbúaskrár Reykjavíkur gamlar símaskrár eldrí þjóðskrár og fleiri heimildargögn, ættfræðihandrit o.fl. sem að notum geta komið við ætt- fræðirannsóknir, óskast til kaups. Ættfræðistofan, Síðumúla 20, Reykjavík, símar 688456/46831 (eftir kl. 20.00). LiLxemborg Lykillinn að töfrum Evrópu^ Það er margt að sjá og gera í stórhertogadæminu Luxemborg. Fagurt landslag, fornar byggingar, fjölbreytt menningarlíf, verslanir og veitingastaðir. AVC Glæsilegt hótel og vel staösett í borginni. Helgarpakkl: 3 dagar í Luxemborg fyrir aðeins 14.990 kr.* Súperpakki: Kostar litið meira, eða 16.050 kr* en býður upp á miklu meira. Kynntu þér þessar sérlega hagstæðu Lúxemborgarferðir á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. ^Gildir til I5.maí FLUGLEIDIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.