Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987
C 9
Meginsjónarmiðið
að byggingin upp-
fyllti kröfur tímans
- segir Helgi Ágústsson, formaður byggingarnefndar á
árunum 1979 til 1983
HELGI Ágústsson tók við
starfi deildarstjóra í vamar-
máladeild utanríkisráðuneyt-
isins í ársbyijun 1979 og þá
um vorið tók hann við for-
mennsku í byggingarnefnd
flugstöðvarinnar. Segja má
að með komu Helga í form-
annssætið hafi orðið þáttaskil
í byggingarsögunni og þá
fyrst komst verulegur skrið-
ur á undirbúning og hönnun
byggingarinnar.
„Á meðan ég var formaður
nefndarinnar, frá því í apríl 1979
til vorsins 1983, voru unnar fimm
áfangaskýrslur og við héldum um
350 fundi í nefndinni," sagði Helgi
er hann var spurður um verkefni
og störf byggingarnefndar í hans
formannstíð. „Við mörkuðum okk-
ur þá stefnu að hafa sjálfir umsjón
með framkvæmdum á öllum stig-
um hönnunarinnar og hafa hönd
í bagga með öllum ákvörðunum
sem þar yrðu teknar. Byggingar-
nefndin ætlaði sér frá upphafi að
hafa mikið að segja um það hvem-
ig byggingin yrði hönnuð. Við
höfðum að leiðarljósi að byggingin
ætti að þjóna sem allra best þeim
sem notuðu hana.
Við byrjuðum á að velja hönnuði,
og fyrir valinu urðu bandarískir
aðilar. Þeim var strax í upphafi
gerð rækilega grein fyrir þeim
sjónarmiðum sem byggingar-
nefndin hafði sett sér að leiðar-
ljósi. Ég man að ég hafði á orði
við þá að ég hefði einhveiju sinni
heyrt þessa skilgreiningu á orðinu
arkitekt: „An arkitekt is a man
who drafts a plan of your house,
and plans a draft on your mon-
ey“. Með þessu vildi ég minna þá
á að við ætluðum okkur að hafa
úrslitavald um hvaðeina sem
snerti byggingur/a, og að það yrði
borið undir okkur, á hverju stigi.
Og það stóð, bæði þessi banda-
ríski arkitekt, Henry Shriver, og
önnur verkfræði- og hönnunarfyr-
irtæki, sem unnu með honum,
áttu mjög gott samstarf við bygg-
ingamefndina. Bygginganefndin
var þannig meðhöfundur á 35%
teikningum af byggingunni.
„Eftir að hafa valið bandarísku
hönnuðina var næsta skref að
velja flugstöðvarformið, og þar
höfðum við úr þremur möguleik-
um að velja. Við völdum þetta
svokallaða „bókkarform", sem er
kannski ekki gott að lýsa svona
í orðum, en við töldum þetta form
henta okkur best, ekki síst hvað
varðar stækkunarmöguleika.
Síðan beindist vinna byggingar-
nefndarinnar að því að velja
íslensku arkitektana til samvinnu
við þessa bandarísku aðila og það
var mikil vinna og ströng. Við
byijuðum á að gera lista yfir
íslenskar arkitekta- og verkfræði-
stofur og kynntum okkur vel
þeirra verk. Við ræddum við fjölda
aðila og reyndum að gera okkur
grein fyrir hveijir myndu helst
koma til greina og áttum síðan
enn frekari viðræður við þá aðila.“
Andstaða róttæklinga
„Það er hins vegar rétt að
minna á það hér, að þessi bygging
var mjög umdeild á þessum tíma
og það gætti greinilegra pólitískra
viðhorfa hjá stjórn Arkitektafé-
lags Islands að mínu mati, þótt
svo væri látið líta út sem óánægj-
an stafaði af metnaði þeirra til
að einungis íslenskir fagmenn
ynnu verkið. Og svo að maður
tali hreint út þá hótaði stjómin,
sem var að mestu skipuð róttæk-
um vinstri mönnum, þeim aðilum
sem að við völdum til verksins,
brottrekstri úr félaginu ef þeir
tækju þetta verk að sér. Það varð
líka úr, að þeir arkitektar sem við
höfðum valið treystu sér ekki til
að taka verkið að sér. Þá lá ljóst
fyrir að húsameistari ríkisins,
Garðar Halldórsson og hans stofn-
un, yrðu íslensku hönnuðirnir,
ásamt ýmsum íslenskum verk-
fræðistofum sem við höfðum
ennfremur valið til verksins.
Þetta var sem sagt hörð rimma
og það vom miklar umræður um
málið í fjölmiðlum. Þar beittu
nokkrir alþýðuibandalagsmenn
sér mjög gegn þessum áformum,
menn eins og til dæmis Ólafur
Ragnar Grímsson. Ólafur Ragnar
hélt mjög þeim skoðunum sínum
á lofti að byggingin væri allt of
stór og íburðarmikil. í þessu sam-
bandi nefndi hann gjarnan tvær
fyrirmyndir, flugstöðina á De
Gaulle flugvellinum í Frakklandi
og flugstöðina í Helsinki. Varð-
andi þessi ummæli Ólafs Ragnars
vil ég benda á að þessi flugstöð
sem hann var að vísa til á De
Gaulle-flugvelli var aðeins lítill
hluti af miklu stærri flugstöðvar-
samsteypu og ekki svaraverð
gagnrýni.
Varðandi flugstöðina í Helsinki
þá benti hann á, að um hana
færu um það bil milljón farþegar
á ári. Þessu svöruðum við á þann
veg, að flugið á íslandi væri háð
ákveðnum sérkennum. Við höfum
hér tvo álagspunkta, annars vegar
á morgnana og hins vegar um
eftirmiðdaginn, en á þessum
tímum safna íslensku flugfélögin
saman þeim farþegum, sem eru
að fara til Bandaríkjana frá Evr-
ópu eða öfugt. Þannig verður að
nýta ísland og þessa flugstöð sem
miðstöð fyrir tengingu flugs milli
hinna ýmsu staða í Evrópu og
Bandaríkjanna. Hjá þessu verður
ekki komist því miður og það er
einfaldlega ekki hægt að dreifa
þeirri umferð, sem leggst á þessa
tvo álagspunkta yfir á allan sólar-
hringinn, eins og reyndin er í
flugstöðinni í Helsinki. Sú flug-
stöð er bæði fyrir innanlandsflug
og utanlandsflug og umferð um
hana er stöðug og jöfn frá morgni
til kvölds. Þessir möguleikar eru
ekki fyrir hendi hér og því ekki
raunhæft að gera samanburð á
milli Helsinki annars vegar og
Keflavíkurflugvallar hins vegar
hvað þetta snertir."
Helgi Ágústsson, formaður
bygginganefndar flugstöðvar-
innar á árunum 1979 til 1983.
Fertugasta klukkustundin
„Þessi sérkenni flugumferðar
hér á landi gerði það að verkum
að við urðum að byggja flugstöð
fyrir ákveðinn hámarksfjölda. Við
tókum því mið af alþjóðlegum
staðli Alþjóða flugmálastofnunar-
innar, sem er hin svokallaða
„fertugasta klukkustund" . Þetta
byggir á því að fundinn er mesti
álagspunktur í flugstöðinni, síðan
sá næstmesti og þannig er svo
áfram talið niður í fertugastu
klukkustund frá hæsta álags-
punkti. Við þann fjölda er flug-
stöðin okkar nú miðuð. Við
höfðum unnið umferðarkannanir
í samráði við bandarísku flug-
málastjórnina og Alþjóða flug-
málastofnunina, sem bentu
eindregið til að flugumferð um
ísland myndi aukast á næstu
árum og áratugum. Hins vegar
var það svo, að hækkun olíuverðs
á tímabili og samdráttur í flugi
yfir Atlantshafið, var meðal ann-
ars til þess að þetta dróst saman
á þessu árabili, og sú aukning
varð ekki, sem hafði verið spáð.
Hins vegar hefur reynsla sýnt
að umferð hefur aukist aftur, eins
og við trúðum reyndar alltaf. í
ljósi þessarar fækkunar flugfar-
þega á þessu tímabili var uppi
hávær krafa andstæðinga flug-
stöðvarinnar um það að hún yrði
minnkuð og byggingamefndin
vann að þessari minnkun, ásamt
hönnuðum verksins, ekki einu
sinni heldur tvisvar."
Aðbúnaöur starfsfólks
„Ymislegt fleira mætti nefna,
sem kom til kasta bygginganefnd-
ar á þessum tíma svo sem
samningagerðin við Bandaríkja-
menn, sem var erfið að mörgu
leyti. Inni í þetta kom svo auðvit-
að öll hönnunin stig af stigi og
hvaða eiginleikum byggingarinn-
ar við vildum koma við. Þar má
meðal annars nefna að tekið var
fullt tilliti til þarfa fatlaðra og
ennfremur tókum við mið af strön-
gustu lagakröfum á Norðurlönd-
um og norrænum flugstöðvum um
allan aðbúnað starfsfólks, og
síðan urðu til íslensk lög og reglu-
gerðir um þau efni. Það var eitt
af þeim leiðarljósum sem við höfð-
um, að það yrði sem allra best
búið að starfsfólki í flugstöðinni
því að það hefur þurft á undan-
fömum áratugum að búa við
nánast sagt ömurleg skilyrði.
En eins og ég nefndi áðan þá
var umræðan um flugstöðin á
þessum tíma afskaplega ómál-
efnaleg. Þótt byggingamefndin
hafi útbúið byggingarlýsingu, sem
að lýsti öllum aðdraganda og gerð
byggingarinnar, þörfína á stærð
og fyrirkomulagi, var mjög lítið
um efnislegar opinberar umræður
um málið og umræðan einkennd-
ist af því að vera með eða á móti,
og aðallega á móti á þessum tíma.
Það var.talað um að byggingin
væri of dýr og of íburðarmikil,
en okkar meginsjónarmið var að
byggingin yrði að uppfylla kröfur
tímans, hún væri byggð sem and-
lit íslands gagnvart umheiminum
og þyrfti þar af leiðandi að vera
bæði fallig og veglega úr garði
gerð, og ég held að það hafi tek-
ist mjög vel. Allir hönnuðir,
arkitektar, verkfræðingar og
byggingamefnd hafa lagt gífur-
lega vinnu og metnað í að svo vel
mætti takast til með þessa hönnun
sem raun ber vitni.“
Texti: Sv.G.
Eigi gler aó uppfylla
strangar gæóakröfur
þá komdutil okkar
Víð framleiðum tvöfalt Thermopane gler og
Thermoplus comfort filmugler, sem einangrar
betur en þrefalt gler.
Við útvegum frá Thermopane verksmiðjunum
í Belgíu (Glaverbel), yfirleítt allar hugsanlegar
útgáfur af gleri.
Glerhurðir, glerklæðningar (facade), öryggisgler
og hert gler.
Einnig eldvarnargler (Pyrobell), sólvarnargler
(Stop-sol), skrautgler, vírgler og yfirleitt allar
þær glertegundir sem framleiddar eru í dag.
THERMOPANE GLERHURÐIR
í NÝBYGGINGU SEÐLABANKANS
THERMOPANE GLERKLÆÐNINGAR
í KRINGLUNNI, NÝJA HAGKAUPSHÚSINU
THERMOPANE GLER
í NÝJU FLUGSTÖÐVARBYGGINGUNNI
inenmofiane
Glerverksmiðjan Esja hf., Völuteig 3
270 Mosfellssveit, Sími 666160.