Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 12
12 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 Jón E. BöÖvarsson framkvcemdastjóri byggingarnefndar: Eftirlits- og öryggis- búnaður affullkomnustu gerð Farþegar verða þó tiltölulega lítiö varir viö aukiö eftirlit I FLU GSTOÐ V ARB Y GGIN G UNNI er allur tækjabúnaður af nýjustu og fullkomnustu gerð og um margt forvitnilegur. Allur miðast hann við að greiða götu þeirra sem fara um stöðina, auk þess að tryggja öryggi flugfar- þega og annarra með auknu eftirliti og öryggisgæslu. Af þessum búnaði má nefna full- komið höfuðlyklakerfi, hús- sljórnarkerfi, brunavarna- og slökkvikerfi, flugupplýsinga- kerfi, sjónvarpskerfi, símstöð, vopnaleitartæki og hljóðkerfi. Þá er eftirtektarvert, hversu vel hefur tekist til við að koma öllu því sem þessu tilheyrir fyrir og þrátt fyrir ótalda kilómetra í lengd vira, röra og leiðslna, verða þeir sem leið eiga um bygginguna lítið varir við annað en það sem þeim er til þæginda. Sá sem á hvað flestar vinnu- stundir að baki við að samræma alla þá gífurlegu vinnu sem að baki þessu öllu liggur er Jón E. Böðvarsson verkfræðingur og framkvæmdasíjóri byggingar- nefndar. Hann tók sér tíma frá erlinum um miðja síðustu viku til að gefa okkur smáinnsýn inn í allt þetta sem býr að baki. Jón sagði í upphafi, að öll sinntu þessi kerfi þjónustuhlutverki, annað Jón E. Böðvarsson framkvæmda- stjóri byggingarnefndar hvort til upplýsinga, viðbragða eða eftirlits. Hann sagði mikilvægt, að kerfin gætu spilað saman og eins skarast,' til dæmis nefndi hann, að ef sjónvarpskerfíð brygðist yrði hljóðkerfí að geta tekið við. Við spurðum hann fyrst um land- göngubrýmar, en þær, auk rúllu- stiga og lyfta, eru væntanlega það sem fólk fínnur mest fyrir auknum þægindum af. Landgöngubrýmar eru flestum þekkt fyrirbæri úr flug- stöðvum erlendis. Það sem er nýnæmi við brýmar hér er að á enda þeirra verða straumbreytar þannig að flugvélar geta fengið rafstraum beint úr flugstöðvar- byggingunni í stað þess að setja hefði þurft upp stóra straumbreyta undir stöðina eða að notast við dísel- mótora á flugvélahlaði, svo sem nú er. Þetta er amerískt kerfi og sagði Jón, að nú þegar hefðu flugvalla- fræðingar í öðmm Evrópulöndum haft samband og beðið um að fá að koma til landsins til að skoða þennan búnað. Væri til dæmis væntanlegur maður frá Kastmp- flugvelli strax eftir opnum stöðvar- innar. Talandi um rafmagn bætti Jón því við, að í kjallara flugstöðv- arinnar yrði vararafstöð, þannig að flug ætti ekki að þurfa að stöðvast þó svo rafmagn færi af. SvæAisbundið aðgangskorta- kerfi Eitt af þessum nýju kerfum er aðgangskortakerfíð svonefnda, en það er lyklakerfi sem gefur svæðis- bundinn aðgang að öllum vistarver- um flugstöðvarinnar. Kerfíð gefur mikla möguleika og er tölvukeyrt þannig að unnt er að breyta að- gangslyklakerfinu og fylgjast með notkun kortanna allan sólarhring- inn. Þetta þýðir, að starfsmenn geta fengið aðgang að öllum þeim stöðum sem þeir þurfa að fara um, ennfremur að ef kort týnist er unnt Hluti af tæbjabúnaði, sem tíl- heyrir stjórnstöð hússins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.