Morgunblaðið - 12.04.1987, Side 14
14 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987
Pétur Guðmundssonflugvallarstjóri:
Ekki ætlunin
að seilast í vasa
skattborgaranna
- því verður leigan í hœrri kantinum
REKSTRI nýju flugstöðvarinnar verður hagað á sama hátt og rekstr-
inum í gömlu byggingunni. Leigusali og húsráðandi verður flugvall-
arstjórinn á Keflavíkurflugvelli, en embætti hans heyrir undir
utanríkisráðuneytið. Að sögn Péturs Guðmundssonar flugvallarstjóra
er ætlunin að bjóða út sem flesta þætti í rekstri stöðvarinnar eða
fela öðrum, en stærsti leigutakinn verður Flugleiðir. Pétur sagði
ennfremur, að ljóst sé að leigan verður í hærri kantinum, enda ekki
ætlunin að seilast í vasa skattborgaranna vegna flugstöðvarinnar.
Við ræddum nýverið við Pétur um reksturinn og ýmislegt það sem
varðar nýju stöðina, en hann hefur verið flugvallarstjóri á Keflavík-
urflugvelli frá árinu 1956.
Pétur ræddi fyrst nokkuð um
gömlu flugstöðina. Hann kvað
reynsluna af rekstrinum þar hafa
verið góða lexíu, sem höfð hefði
verið í huga við hönnun þeirrar
nýju. Hann sagði: „Við lærðum
margt af því hversu þurftarfrek
gamla stöðin var í viðhaldi. Allt
kapp hefur nú verið lagt á að við-
hald nýju stöðvarinnar verði í
lágmarki. Sem dæmi get ég nefnt
Hrepphólagijótið á gólfum en það
var sagað og slípað sérstaklega
fyrir stöðina. Þessi gólf endast í
marga mannsaldra. Þá er ólíkiegt
að fólk nuddi sér mikið utan í vikur-
steinsveggi, þannig að þá þurfi að
þrífa mikið eða mála. Þetta eru
rauðleitir veggir, sem prýða bygg-
inguna víðsvegar að innan. 011
helstu snyrtiherbergi eru flísalögð
í hólf og gólf. Ég tel því að viðgerð-
armenn eigi ekki eftir að trufla
reksturinn að neinu ráði, eins og
hefur viljað brenna við í gömlu stöð-
inni. Þetta á við um flesta húshluta,
innanhúss sem utan, allt er gert til
að þola álag, bæði af veðri og um-
ferð.“
Skilaö aftur til varnarliðsins
Pétur sagði, að gamla stöðin
hefði upphaflega verið byggð sem
flugstöð og hótel. Endingartími
hússins átti að vera um 20 ár.
„Þetta var upphaflega mjög fallegt
hús, þó fæstir trúi því í dag, en við
fórum algjörlega með arkitektúr-
inn, þegar við fórum að stækka og
byggja við með aukinni flugumferð.
í þessu sambandi koma mér í hug
orð Umba í Kristnihaldi undir Jökli,
þegar hann lítur í fyrsta sinn prests-
bústað Jóns prímusar. Mig minnir
hann segði, „að þessi húsagerðar-
list, hver kofinn út úr öðrum, var
eitthvað í ætt við æxlun kóralla eða
kaktuss." Ég kom fyrst í gömlu
flugstöðina árið 1949 og þar va_r
þá allt fágað, sleikt og strokið. A
efri hæð var lúxushótel og að öllum
Pétur Guðmundsson flugvallar-
stjóri á skrifstofu sinni í gömlu
flugstöðinni
líkindum fyrstu hótelsvítur hér á
landi. Húsinu verður nú skilað aftur
til vamarliðsins.
- Því má skjóta hér inn, að í við-
tali undirritaðrar við Friðþór Eydal
fréttafulltrúa varnarliðsins kom
fram, að vamarliðið mun sjálft reka
flugafgreiðslu fyrir sitt fólk, varn-
arliðsmenn, eftir að nýja stöðin
verður tekin í notkun. Auk flugaf-
greiðslunnar mun varnarliðið nýta
gömlu bygginguna undir skrifstofur
og efri hæðinni verður breytt í gist-
iaðstöðu fyrir vamarliðsmenn.
Fluglelðlr langstærsti lelgutak-
inn
Eins og kemur fram í inngangi
verður rekstri nýju flugstöðvarinnar
hagað á sama hátt og í núverandi
byggingu og við báðum Pétur að
lýsa honum í nokkmm orðum. Hann
sagði, að leigutakar yrðu nokkrir
og Flugleiðir sá langstærsti. Flug-
leiðir annast afgreiðslu allra flug-
véla og farþega, samkvæmt
sérstökum samningi við hið opin-
bera. Þá verður íslenskur markaður
með stóra verslun inni á tollsvæð-
inu. Fríhafnarverslunin, sem er
ríkisrekin, fær ennfremur ámóta
svæði til umráða. Aðrir stórir leigu-
takar em lögreglustjóraembættið
fyrir tollgæslu, útlendingaeftirlit og
öryggisgæslu. Veitingasalan,
ásamt starfsmannamötuneyti, verð-
ur boðin út og hafa mjög margir
þegar lýst áhuga á að hneppa það
hnoss. Starfsmannamötuneyti er
stór liður í þessari þjónustu því
fastráðið starfsfólk er í dag um 340
A&uccs
/ • •
/ /
SKRIFSTOFUHUSGOGNIN URÐU FYRIR VALINU I NYJU FLUGSTOÐINA
Engir lausir endar með SERÍA.
í SERÍA er tekið tillit til ótal smáatriða sem
skipta miklu máli, t.d. er öllum leiðslum komið
fyrir í stokkum undir borðunum sem tengjast
um leið og einingarnar.
Möguleikarnir í uppröðún eru óteljandi.
SERÍA er heildarlausn á húsgögnum fyrir skrif-
stofuna og afgreiðsluna.
Hillur, borð, stólar og skermveggir; allt sam-
einast í SERÍA.
SERÍA - lausnarorð í skipulagi skrifstofunnar!
Á. GUÐMUNDSSON HF.
Skemmuvegi 4 Kópavogi Sími 91-73100
Ný flugstöð - ný húsgögn.
Ekkert var til sparað við mótun SERÍA, nýju
íslensku línunnar í skrifstofuhúsgögnum.
Nú eftir margra ára vöruþróun erum við að
sjá árangur erfiðisins og byrjunin lofar svo
sannarlega góðu:
SERÍA var valin, úr fjölda innlendra og
erlendra tilboða, í nýju flugstöðina.
Sú staðreynd undirstrikar að við erum ekki
einir um þá skoðun að SERÍA skrifstofuhús-
gögnin standist fyllilega allan samanburð og
svari kröfum tímans um stíl, notagildi og vinnu-
hagræðingu.
4