Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 16
16 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987
Flugstöðin verður dyr
umheimsins að Islandi
sagði Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða
„AÐSTAÐAN í gömlu flug-
stöðinni hefur verið algjör-
lega ófullnægjandi. Hún
hefur sett okkur skorður á
margan hátt og komið í veg
fyrir að hægt væri að veita
farþegum nægiiega þjónustu.
Nýja flugstöðin gjörbreytir
aðbúnaði farþega og er nauð-
synlegt skref til þess að auka
ferðamannastrauminn til
landsins. Hún verður dyr
umheimsins að Islandi. Það
er nauðsynlegt að sinna þeim
þætti vel,“ sagði Sigurður
Helgason forstjóri Flugleiða
þegar blaðamaður spurði
hann hver áhrif Leifsstöðvar
yrðu á þjónustu flugfélagsins.
Flugleiðir standa nú í samninga-
viðræðum við varnarmáladeild um
framlengingu afgreiðslusamnings
félagsins á Keflavíkurflugvelli. 011
afgreiðsla og meðhöndlun flugvéla
sem um völlin fara hefur verið í
höndum félagsins frá stofnun þess.
Til þess að geta sinnt þessu hlut-
verki hafa Flugleiðir reist byggingu
til hliðar við Leifsstöð sem hýsa
mun flugeldhús, fraktafgreiðslu,
tækjageymslu og viðhaldsdeild. Þá
hafa olíufélögin þijú tekið höndum
saman við félagið um byggingu og
„Það er ekkert „alvöru“ ríki sem
ekki bíður upp á „alvöru" flug-
stöð,“ sagði Sigurður Helgason
forstjóri.
RASAÐUEKKI
UMRÁÐFRAM
ÍVÉLAKAUPUM
Þaðerekki nóg að gera góð kaup á vélum. Margir sem hyggjast töfvuvæða rekstur fyrirtækja falla í þá gryfju að kaupa
bara þær vélar sem ódýrastar eru á markaðnum hverju sinni. Sem vonlegt er þegar ótal tegundir tölva eru I boði á
svipuðu verði. En hérervert að staldra við. Þegar búíðerað tölvuvæða reksturínn byggist allt ásnurðulausum rekstri
tækjanna. Og þaðer hérsem reynslaÖrtölvutækni kemurtil sógunnar. Viðskiptamenn okkargetasagt þérfrá traustri
og oruggri þjónustu sem þeirhafanotið hjáokkur. Og þarskiptirengu hvort við seljum vélar fráheimsþekktum fram-
leiðendum áborð við Hewlett Packard eða IBM eða tæki sem við smiðum og setjum saman sjálfir. Viðskiptavinurinn
gleymist ekki þegar hann lokar á eftir sér.
rekstur olíubirgðarstöðvar við nýju
stöðina.
Sigurður sagði að Flugleiðir
myndu sennilega þurfa að fjölga
starfsmönnum á Keflavíkurflugvelli
til þess að anna þjónustu í Leifs-
stöð. Þá hefði verið fjárfest í
tækjum sem þarf til að draga flug-
vélamar að og frá landgöngubrún-
um sem farþegar nota til þess að
ganga úr vélinni inní fingurinn sem
liggur inn í aðalbygginguna.
„Við aukum afkastagetu okkar
til muna í flugeldhúsinu og fraktaf-
greiðslunni. Hér er um fjárfestingu
upp á 150 milljónir króna að ræða
og við horfum að sjálfsögðu til þess
að aukið umferð um völlin til þess
að geta selt þessa þjónustu og feng-
ið auknar tekjur á móti. Um þetta
hef ég þegar átt viðræður við flug-
vallarstjóra á Keflavíkurflugvelli og
við munum ásamt varnarmáladeild
huga að kynningu á nýju flugstöð-
inni erlendis þegar hún hefur verið
opnuð. Til þess þarf sameiginlegt
og öflugt átak," sagði Sigurður og
bætti við að fyrsta skrefið til kynn-
ingar yrði vígsluathöfnin á þriðju-
dag, en til hennar hefur verið boðið
fjölda fulltrúa erlendra flugfélaga
og fjölmiðla.
Sigurður sagði að mörg flugfé-
laga sem flygju milli vesturstrandar
Bandaríkjanna og meginlands Evr-
ópu millilentu á Shannon-flugvelli
í írlandi. Hugsanlega mætti bjóða
Keflavíkurflugvöll sem annan kost.
Til þess að hann væri fýsilegur yrðu
lendingargjöld að vera lág og elds-
neyti ódýrt.
„Okkar reynsla er sú að far-
þegum líkar að millilenda í Keflavík.
Hér er hagstæð fríhöfn og hægt
að_ versla eftirsóttar ullarvörur.
Nyja flugstöðin mun án efa auka
aðdráttarafl Norður-Atlantshafs-
flugleiðarinnar," sagði Sigurður.
Hann taldi að þægindi og öryggi
farþega yrði meira í Leifsstöð en
gömlu byggingunni. Nú þyrfti ekki
lengur að ganga milli flugvélar og
stöðvar undir beru lofti. Það hefði
alltaf verið vandamál, sérstaklega
í vondum vetrarveðrum. Inni í flug-
stöðinni yrði hægt að bjóða upp á
meiri þjónustu. Þannig myndu
Flugleiðir setja upp setustofu fýrir
farþega á Saga-Class. Þetta tíðkað-
ist í flestum flughöfnum.
„Við teljum ekki nóg að veita
farþegum okkar þjónustu um borð
í vélunum. A styttri flugleiðum eyð-
ir farþegi stundum lengri tíma inni
í flugstöðvum en í lofti. Það þarf
því að leggja rækt við þann þátt
líka,“ sagði Sigurður.
„í heild erum við ánægðir með
hvernig til hefur tekist. Flugstöðin
mun án efa auka veg okkar meðal
þjóða, því það er ekkert „alvöru"
ríki sem ekki bíður upp á „alvöru"
flugstöð," sagði Sigurður Helgason.