Morgunblaðið - 12.04.1987, Side 17

Morgunblaðið - 12.04.1987, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 C 17 Húsið njörvað niður í flugstöðvarbyggingrinni voru notaðar svokallaðar bergfestur til að færa jarð- skjálftakrafta frá sker- veggjum hússins niður í berggrunninn. Með orðinu bergfesta er átt við bygging- arhluta, sem tekur við togálagi og færir það niður í eða út i berg. Notkun berg- festa er engin nýlunda hér á landi, þar sem oft hafa verið notaðir bergboltar í sama tilgangi. Það sem ger- ir bergfesturnar í flugstöð- inni sérstakar er hið mikla álag sem á þær er lagt. Hönnunarálag er allt að 335 tonnum og prófálag allt að 450 tonnum. Eftir því sem best er vitað eru þetta stærstu bergfestur sem sett- ar hafa verið niður í Evrópu, en í Bandaríkjunum er vitað um öflugri festur á nokkrum stöðum. Alls voru settar niður 36 berg- festur í undirstöður byggingarinn- ar og þar að auki 6 tilraunafestur til að kanna hæfni bergsins til að taka við álagi. Skerveggimir svonefndu em burðarveggir hússins og þeir em stuttir og fáir til þess að auka svigrúm í notkun hússins, þannig að auðveldara sé að breyta inn- réttingum ef á þarf að halda. Þar sem byggingin er fremur topp- þung verða veltikraftar jarð- skjálfta mjög stórir þegar þeir koma niður í undirstöður sker- veggjanna. Til að koma í veg fyrir veltu undirstaðanna var ákveðið að setja bergfestur í báða enda þeirra frekar en íjölga skerveggj- um og/eða lengja þá. Aðferð við að setja niður berg- festu er í meginatriðum einföld. Bomð er hola, hún fyllt með sem- entsefju og fyrirfram samsettri festu stungið ofan í holuna. Eftir að sementsefjan hefur harðnað er festan togprófuð og síðan er strekkt á með því álagi sem þarf á hverjum stað. Að lokum er sett hlíf yfir festuhausinn. Hver festa er sett saman úr stálvímm og eru mismunandi margir í hverri. í flugstöðinni er fjöldi víra í hverri festu frá 6 upp í 30 og fer eftir álagi. Hönnunará- lag á hveija festu er allt frá 65 tonnum upp í 335 tonn. Grynnstu holurnar em 6,8 m að dýpt, þær dýpstu 21,1 m. Alls fóm 95 tonn af sementi í holurnar. Aðalverktaki við uppsteypu hússins var Istak hf., undirverk- taki við bergfestur var sænska fyrirtækið BINAB. Bergfesturnar hannaði Almenna verkfræðistofan í samvinnu við bandaríska verk- fræðifyrirtækið Frioli-Blum-Yess- elman Associates Inc. MLIF FEITI Dæmigerð bergfesta til langtímanota Steindór Guðmundsson, staðarverkfræðingur og umsjónarmaður byggingareftirlits við flugstöðina. Tölvuvæðing er lausnin Þegar gengið er um flug- stöðvarbygginguna og skoðuð þau viðfangsefni, sem ótal vinnuflokkar iðja við, fer ekki hjá því, að spurningar vakni um, hvernig sé gerlegt að halda utan um þessar framkvæmdir, hafa eftirlit með, að allt fari eins og ráð er fyrir gert. Þarna eru hundruð manna að vinna á vegum tuga verktaka og hafa þúsundir vinnuteikninga að fara eftir. Til þess að fræðast um þennan þátt framkvæmdanna var rætt við Steindór Guðmundsson, en hann er staðarverkfræðingur byggingar- nefndar flugstöðvar og hefur yfimmsjón með byggingareftirliti, á vegum Verkfræðistofu Stanleys Pálssonar hf. „Okkar verkefni hér hefur verið tvíþætt, annars vegar verkefnis- stjórnun, hins vegar byggingareft- irlit. Verkfræðistofa Stanleys Pálssonar hf. hefur séð um þessi verkefni síðan í október 1985. Verkefnisstjórnunin hefur falist í því, að samræma vinnu allra hönn- uða, gera verkáætlanir fyrir hönnunarvinnu og sjá til þess að hönnunaráætlanir standist, bæði hvað snertir tímasetningar og hönn- unarkostnað. Stanley Pálsson verkfræðingur sér um þennan hluta, er verkefnisstjóri. Byggingareftirlitið er svo í því fólgið, að hafa umsjón með fram- kvæmd þeirra 35 verksamninga, sem byggingarnefnd flugstöðvar- innar hefur gert við jafnmarga aðila.“ Steindór útlistar síðan nánar hvað felst í byggingareftirlitinu: „Helstu verkefnin eru gæðaeftirlit, peningaeftirlit og framkvæmd samninga. Með gæðaeftirliti er séð til þess, að verktakar standi við gerð samninga hvað varðar efni og vinnubrögð og að verkáætlanir standist. Með peningaeftirliti er séð til þess að greiðslur til verktaka séu í samræmi við gerða verksamninga og að verðbótaútreikningar og greiðslur fyrir viðbótarverk séu réttar. Allir reikningar em tölvukeyrðir, sem flýtir verulega fyrir afgreiðslu þeirra, einkum og sér í lagi þegar haft er í huga, að einn verkreikning- ur getur samanstaðið af 12.000 einingum. Eftirlit með framkvæmd samn- inga felst svo í því, að halda reglulega fundi með verktökum. Fylgst er með framvindu verka, verkáætlanir em yfirfarnar og leyst úr þeim vandamálum sem upp koma á hvetjum degi.“ Þegar Steindór minnist á tölvurn- ar verður blaðamanni litið á skrif- borðið í hinum enda vinnustofunn- ar, þar standa tölvur á borði og falla ekki alveg strax að þeirri mynd, sem maður hefur um skrif- stofu í vinnuskúr við nýbyggingu. „Þegar ákveðið hafði verið fyrir rúmu ári síðan að Verkfræðistofa Stanleys Pálssonar hf. myndi taka þetta verkefni að sér var strax ljóst að bregðast þurfti skjótt við til þess að leysa svo viðamikið verkefni, því tími til stefnu var mjög stuttur. Eftir ítarlegar athuganir kom í ljós að notkun gagnagrunna leysti mál- ið. Við keyptum fjórar IBM AT- og XT-harðdiskatölvur ásamt punkta- prentumm og fl. Með minnisstækk- unum verður innra minni þeirra um 1,2 megabyte. Á byggingarstöðum eins og þessum er venjulega mjög mikið um ryk, og álag á rafkerfi með tilheyrandi spennufalli getur verið mjög mikið. Við þessar að- stæður verður bilanatíðni í tækjum eins og tölvum mjög há. Mun meira rekstraröryggi fæst með því, að hafa margar smærri vélar og flytja skrár á milli þeirra daglega." Steindór nefnir dæmi um verk- efni, sem ill- eða ógerlegt hefði verið að leysa án tölvubúnaðarins. „Það hefði nú kannski verið hægt að leysa þessi verkefni án tölvu, en alls ekki á svo skömmum tíma og það hefði einnig krafist meiri mann- afla. Við getum tekið reikninga sem dæmi, það hefur ekki verið óal- gengt að það taki þijár vikur að afgreiða reikninga frá verktökum, við höfum getað stytt þann tíma niður í eina viku. Annað atriði er bréfin sem við fáum, daglega ber- ast okkur erindi frá verktökum, þau eru öll þess eðlis, að þau þarf að afgreiða fljótt og ekkert þeirra má týnast. Öll erindin eru skráð í tölvu og ýmsar upplýsingar um þau. Síðan eru reglulega athugað hvem- ig afgreiðsla þessara erinda stend- ur, þá kemur strax í ljós ef eitthvað er óafgreitt. Ætli við höfum ekki fengið um sjö þúsund bréf fram að þessu og að meðaltali eru fjórar síður i hveiju. Þetta þýðir fimm bréf á hvern starfsmann hvern vinnudag! Mér litist ekki á að vinna þetta án tölvu." Þannig að tölvuvæðing er lausn- in? Já, sérstaklega þegar um svona verkefni er að ræða. Þetta eru svo mörg atriði sem þarf að hafa skrá- sett á aðgengilegu formi, ekkert má týnast og ekkert gleymast og svo þurfa hlutimir að gerast hratt. Það er mín skoðun að án tölvunotk- unar hefði verið ógemingur að reisa þessa byggingu á þann hátt sem gert hefur verið, tölvan er lykillinn að góðri og ömggri stjórnun," sagði Steindór Guðmundsson að lokum. TEXTI: ÞÓRHALLUR JÓSEPSSON FERÐATÖSKUR ALLTAF MESTA ÚRVALIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.