Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 20
20 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987
Á lokastigi framkvæmda við
innréttingar. Farangursvogum
komið fyrir.
Frá undirritun verksamnings um
innréttingar. Jóhann
Bergþórsson forstjóri Hagvirkis
og Sverrir Haukur Gunnlaugsson
skrifa undir.
Aðalsteinn Hallgrímsson verkefnisstjóri Hagvirkis við flugstöðvar-
framk væmdirnar
Magnús Stephensen og Þórólfur Óskarsson skoða eina vinnuteikning-
una. Að baki þeirra hangir hluti þeirra um það bil fjögur þúsund
teikninga, sem unnið hefur verið eftir við innréttingarnar.
BLAÐAMAÐUR Morgun-
blaðsins ræddi við Aðalstein
Hallgrímsson um þátt Hag-
virkis hf. í byggingarfram-
kvæmdum. Aðalsteinn er
verkefnisstjóri fyrirtækisins
við flugstöðina og Hagvirki
hf. hefur séð um bróðurpart
þeirra framkvæmda, sem eru
á vegum íslendinga.
— Aðalsteinn var spurður um
vinnutímann.
„Vinnutíminn hefur verið skikk-
~ anlegur, hætt klukkan sex á kvöldin
og frí um helgar. En þetta verk
hefur nú reyndar vaxið í höndunum
'a okkur, ætli það sé ekki í dag
nálægt 110% af því sem aðalsamn-
ingurinn var um.“
Upphaflega áætluðum við, að
vera hér með 160 manns, en með
þessum viðbótarverkefnum og svo
Flugleiðahúsinu og Olíustöðinni
hefur fjölgað í hópnum og nú erum
við með 450 manns hér ef allt er
talið. Það eru t.d. allt upp í 90
smiðir að störfum inni í húsinu og
60 rafvirkjar."
' — Það vakna spumingar um,
hvemig þetta hafi verið hægt allt
saman á einu og hálfu ári.
„Við gemm þetta nú ekki allt
sjálfir,“ segir Aðalsteinn, „Hér er
heill sægur af undirverktökum og
öðmm okkur ótengdum. Svo er
mikið af þessu gert annars staðar
og þarf aðeins að koma því fyrir.“
— Hvers vegna tók Hagvirki hf.
alla þessa viðbótarvinnu?
„Það er fyrst og fremst af hag-
ræðingarástæðum. Margir aðilar að
vinna hér, hver undir sinni stjóm,
hefðu kallað yfír okkur hættu á
árekstmm og jafnvel glundroða.
Sumt af þessum verkum er að
mestu fólgið í stjómun og samræm-
ingu, undirverktakar vinna verkið,
við skipuleggjum það.“
— Er ekki býsna snúið verkefni
að koma öllum verkþáttum heim
og saman?
„Jú, þetta er flókið verk, ætli við
höftim ekki fengið um 4.000 teikn-
ingar til að vinna eftir. Við verðum
að skipuleggja mjög vel alla niður-
röðun verkefna og áætla verktím-
ann nákvæmlega. Það þýðir til
dæmis ekkert að ætla að flýta eða
seinka einhverju verkinu, þetta er
allt svo háð hverju öðm, þess vegna
verða allir að vinna vel saman og
skipuleggja. Það á jafnt við um alla
sem hér vinna, ekki bara okkur.“
— Hafa engin stórvandamál
komið upp, breytingar o.þ.h.?
„Vandamálin em stór, hafa verið
stór og þau hafa verið leyst.“
Talið berst nú að öryggismálum.
„Við emm hér í næsta nágrenni við
besta slökkviiiðið í heimi og þaðan
koma reglulega menn til að fylgjast
með framkvæmdunum, þeir hafa
gefíð okkur góð ráð og við höfum
farið eftir þeim. Það er til mikillar
fyrirmyndar hvemig þeir hafa stað-
ið að málum, ef sá krókur fínnst í
húsinu, sem þeim hefur sést yfír,
þá er hann smár. Almennt má segja
um öryggiskerfi hér, að þau em
hin fullkomnustu, en eins og gefur
að skilja má ekki upplýsa í smáat-
riðum hvemig þau vinna."
Aðalsteinn er spurður um verk-
hraðann, hvað sé unnið með því að
keyra áfram af svo miklum krafti.
„Það er dýrt að liggja með pen-
inga í framkvæmdum sem ekki
nýtast. Ef til dæmis hefði verið
byrjað nokkmm mánuðum fyrr á
þessu verki hefði þurft að borga
nokkur hundmð milljónir króna
þeim tíma fyrr. Ekki hefði þá verið
hægt að nota þá fjármuni í annað
á meðan, hvað em vextir háir af
hundrað milljónum króna þeim tíma
fyrr. Ekki hefði þá verið hægt að
nota þá fjármuni í annað á meðan,
hvað em vextir háir af hundrað
milljónum í mánuð? Hraðinn sparar
stórfé, það kostar skipulagningu en
við emm líka þeim vanda vaxnir,
annars hefði þetta ekki verið hægt.“
— Hvað er framundan að loknu
svo umfangsmiklu verki?
„Hagvirki er ungt og hresst fyrir-
tæki,“ segir Aðalsteinn. „Við höfum
mörg verkefni og þótt þetta sé stórt
munum við ekki leggjast í aðgerða-
leysi þegar því er lokið. Við búum
yfir mikilli framkvæmdagetu og
höfum orðið reynslu af stómm verk-
um, eins og þessu og svo hinum
fyrri, t.d. veginum fyrir Ólafsvíkur-
enni og virkjanaframkvæmdum.
Kraftar okkar munu nú dreifast á
fleiri verk og smærri í bili, en við
emm ávallt viðbúnir, t.d. til að
leggja bundið slitlag á hringveginn
á mettíma!"
TEXTI: ÞÓRHALLUR
JÓSEPSSON