Morgunblaðið - 12.04.1987, Page 21

Morgunblaðið - 12.04.1987, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 C 21 Áhugi erfyrir auknu vöruvali í komuverslun Fríhafnarinnar - sagði GuÖmundur Karl Jónsson forstjóri Fríhafnarinnar FRÍHÖFNIN í Leifsstöð verð- ur mun stærri og fjölbreyttari en í gömlu flugsstöðinni. Ur- val áfengis, sælgætis og tóbaks eykst lítið en meira verður um gjafavörur, ilm- vötn og rafmagnsvörur. Þá verður aukið úrval af fátnaði og tískuvarningi. Að sögn Guðmundar Karis Jónssonar forsljóra Fríhafnarinnar er búist við að umsvif fyrirtækis- ins aukist nokkuð á þessu ári, ekki síst vegna betri aðstöðu. Hann gerir ráð fyrir 650-700 milljóna króna veltu, en hún nam á siðasta ári 560 milljón- um króna. „Það er tvímælalaust að aðlað- andi umhverfí hvetur viðskiptin," sagði Guðmundur. „Við höfum nú þá stöðu að vera ein ódýrasta fríhöfn í Evrópu, en nýleg könnun leiddi í ljós að okkar vörur voru 15% ódýrari en í Kaupmannahöfn þang- að sem fimmtungur allra farþega frá Keflavíkurflugvelli flýgur. Við munum óefað halda þessu lága verðlagi, þótt rekstrarkostnaður verði sennilega meiri í nýju flugs- stöðinni,“ sagði Guðmundur. Hann sagði að nýleg tollalækkun á úrum og myndavélum myndi sennilega minnka sölu á þessum vörum í fríhöfninni. Stöðugt væri fýlgst með því magni sem seldist af hverri vörutegund og yrði þá úrva! af vinsælli vörum aukið í stað- inn. Fyrst um sinn verður svonefnd „komuverslun", þar sem farþegar geta verslað tollfrjálst áfengi, bjór, ilmvötn og sælgæti við komuna til landsins, í bráðabirgðahúsnæði á efri hæð fiugstöðvarinnar. Til þess að bregðast við þessu tímabundna ástandi er búið að ákveða að við- skiptavinir fái bjórkassa afhenta í farangursafgreiðslunni, svo að þeir þurfi ekki að bera þá með sér niður á neðri hæðina. Komuverslunin er raunar sú eina sinnar tegundar í Vestur-Evrópu, því víðast þekkist ekki að fríhöfn sé við komu til landsins. Guðmund- ur sagði að verslunin á neðri hæðinni yrði opnuð í lok júní. „Það er áhugi fyrir því að auka vöruval í komuversluninni. Við tök- um eftir því að fólk kemur með mikið af litlum rafmagnstækjum til landsins, sem það hefur rogast með langa leið í pokum. Þessi viðskipti þætti okkur eðlilegt að færðust inn í landið . en til þess að það megi Guðmundur Karl Jónsson for- stjóri gerir ráð fyrir veltuaukn- ingu Fríhafnarinnar á þessu ári, ekki síst vegna aukinna umsvifa i Leifsstöð. verða þarf reglugerðarbreytingu, “ sagði Guðmundur. „Eg tel að flugstöðin verði mjög aðlaðandi bygging þegar hún verð- ur komin í fullan rekstur. Það verður hrein bylting í aðstöðu starfsfólks, sem hefur búið við væg- ast sagt kröpp kjör í gömlu bygg- ingunni enda voru aðrar kröfur gerðar þegar hún reis,“ sagði Guð- mundur. Hann sagði að unnið væri af fullum krafti við uppsetningu Fríhafnarinnar. Innréttingar væru komnar á sinn stað og vörur yrðu fluttar í hana nú um helgina. Á miðvikudagsmorgun eiga fyrstu farþegarnir að ganga á land í Leifs- stöð og á þá allt að vera komið á sinn stað. Staðurfyrir hvern hlut og hvér hlutur á sínum stað HANDHÆGAR OG MEÐFÆRILEGAR PLASTSKÚFFUR FYRIR LAGERINN, BÍLSKÚRINN, GEYMSLUNA, SKRIFSTOFUNA OGALLA HINA STAÐINA. IF.OnUSMHMAN HÁTEIGSVEGI7,105 R.S. 21220 ISTAK ÍSTAK hefur í nær tvo áratugi, frá stofnun árið 1970, verið í fararbroddi við hvers konar mannvirkjagerð. Nýlega gerðum við flugstöðina í Keflavík tilbúna undir innréttingar. Við kappkostum að veita viðskiptamönnum örugga þjónustu. Óskum landsmönnum öllum til hamingju með nýju fJugstöðina. verkfræðingar, verktakar Skúlatúni 4, 105 Reykjavík, sími 622700, Telex 2010 ISTAK IS, Telefax 622724.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.