Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 26
26 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 Nýtt, loksins verðlækkun á AT tölvum. DIGITAL-VÖRUR HF KYNNA WENDY TURBO AT, á svipuðu verði og ófullkomnari PC/XT tölvur. AT tölvur eru margfalt harðvirkari en PC/XT tölvur og ráða auk þess við verkefni og stýrikerfi sem PC/XT tölvur valda varla eða ekki. WENDY TURBO AT, (6/8MHz Örgjafi 80286-8) ★ 20MB Harður diskur. ★ 1.2MB Disklingadrif (formar/ies/skrifar, 360K diska). ★ 1MB minni á móðurborði. ★ Grafískt skjákort 720x328 punktar. ★ Gulur eða svart/hvítur 14" skjár (flatur) á stillanlegum fæti. ★ Tvö prentaratengi, eitt Ijósapenna tengi. ★ Seríu samskiptatengi. ★ 100 eða 84 hnappa lyklaborð að eigin vali. ★ Rauntímaklukka innbyggð á móðurborði. ★ Kaldstart hnappur, turbo hnappur, lykill/stöðuljós í framhlið. ★ Stýrikerfi MS DOS 3.1. ★ Kynningarverð kr. 89.900.- stgr. Bjóðum góð afborgunarkjör. RÁÐ-fjárhagsbókhald kr. 15.000,-. RÁÐ-lager og sölukerfi kr. 25.000,-. Póstsendum disklinga með sýningarútgáfu af hugbúnaðinum. Vorum að fá sendingu af Músum fyrir IBM PC/XT/AT. Gengur bæði fyrir Microsoft og Mouse system, staðal. Teikniforrit fylgir. Einnig 14" svart/hvítir skjáir og 100 hnappa lyklaborð. Skipholti 9, símar 24255 og 622455. IBM TÖLVURÁÐSTEFNA FYRIR RÁÐGJAFA IBM á íslandi býður til ráðstefnu fyrir ráðgjafa í fyrirtækjarekstri og tölvuvæðingu fyrirtækja. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Örk, Hveragerði, dagana 28.-29. apríl n.k. Efni ráðstefnunnar er: - Framtíðarstefna IBM í hugbúnaði. - Kynning á öllum helstu tölvum IBM allt frá einvalatölvum upp í stórtölvur. - Samtenging IBM tölva. - Sýning á ýmiss konar nýjum tölvubúnaði. - Val á réttum IBM tölvubúnaði. Þátttaka tilkynnist til Þorvalds Karlssonar, IBM, fyrir 22. apríl n.k. Hann veitir jafnframt nánari upplýsingar. VANEft/IRKNI í HVÍVETNA Skaftahliö 24 105 Reykjavík • Simi 27700 Trésmiðirnir Jónas Jóhannsson til vinsri og Hólmkell Gunnarsson til hægri voru að ganga frá neyðarútgangi. Kom hingað vegna launanna HÓLMKELL Gunnarsson er trésmiður úr Keflavík. Hann sagðist vera búinn að vinna í tæpa 2 mánuði í nýju flug- stöðinni. Hann hefði áður starfað við verklegar fram- kvæmdir hjá varnarliðinu áður en hann hóf störf hjá Hagvirki. „Eg kom hingað vegna launanna, hér fæ ég mun betur borgað fyrir vinnuna en hjá varnarliðinu," sagði Hólmkell. Hann sagði að alltaf væri gaman að kynnast einhveiju nýju og sér fyndist ákaflega gaman að vera einn af þátttakendunum í þessu byggingarævintýri. Allirleggja sigfram JÓNAS Jónasson, trésmiður í Njarðvík, hefur unnið í flugstöðinni undanfarna 2 mánuði. Hann sagðist hafa verið hjá varnarliðinu í verklegum framkvæmdum áður. „Ég hætti þar aðallega vegna launanna, en það kitl- aði líka að taka þátt í að kyggja þetta stórvirki,“ sagði Jónas, sem starfar hjá Hagvirki. Hann sagði að þetta hefði verið sérlega skemmtilegur tími, hvergi væri slakað á og allir legðu sig fram um að gera sitt besta. „Ég er mjög ánægður með það sem hér hefur verið gert, þetta er búið að vera skemmtileg reynsla að vinna með þessum samhenta hópi iðnaðar- manna sem hér eru. Ég vonast til að fá vinnu hér þar til þessu verkefni lýkur í júlí. Eftir það er allt óráðið með vinnu hjá mér, ég á þó von á að fara norður í Eyjafjörð til að byggja sumarbú- stað,“ sagði Jónas ennfremur. Hólmkell sagðist vonast til að halda vinnunni fram eftir sumri eða þar til framkvæmdum lyki. Um at- vinnuhorfur að þeim tíma liðnum yrði tíminn að skera úr. Hann von- aðist samt til að Aðalverktakar fengju ný byggingarverkefni sem kölluðu á aukið vinnuafl. Skemmti- leg reynsla JENS Jensson, dúklagningamað- ur, er úr Reykjavík og ekur á milli á hverjum degi. Hann sagð- ist vera búinn að vinna við flugstöðina meira og minna síðan framkvæmdir hófust. Fyrst hefði verið um útivinnu að ræða við að þétta þakið og fleira í þeim dúr, en eingöngu inni upp á siðkastið. Hann sagði að mikið álag hefði verið á mönnum undanfama daga þeir hefðu helst þurft að vera degin- um á undan, svo mikið lægi á að hraða framkvæmdum. Jens sagðist vinna í ákvæðisvinnu og hætti oft- ast um kvöldmatarleytið, enda væru menn þá búnir að fá nóg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.