Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987
C 27
Allt að tuttugu tonn á hvert hjól
Rœtt við Andrés Andrésson hjá íslenskum aðalverktökum
Hjá íslenskum aðalverk-
tökum hitti blaðamaður
Morgunblaðsins Andrés
Andrésson, sem hefur um-
sjón með framkvæmdum á
vegum Bandaríkjamanna.
Hann var spurður um um-
fang þessara fram-
kvæmda.
„Þetta hefur ekki verulega
röskun í för með sér fyrir okkur,
við byijuðum í fyrravor á flug-
hlaðinu og tengdum verkum.
Þegar mest var, fór starfsmanna-
fjöldi hjá okkur upp á sjöunda
hundraðið. Það eru fleiri en hafa
verið í nokkur ár, en þó ekki svo
mjög, mikið af fólkinu var skóla-
fólk, sem hvarf síðan til náms
aftur að hausti þegar mestu fram-
kvæmdirnar voru afstaðnar.
U.þ.b. 100 manns unnu við fram-
kvæmdirnar á staðnum og síðan
var svipaður fjöldi sém tengdist
þeim, t.d. í steypuvinnu og mal-
bikun.“
Aðspurður um vinnutíma, svar-
ar Andrés því til, að þetta hafi
verið skorpuvinna, sérstaklega í
fyrrasumar. Þá var unninn leyfi-
legur vinnutími, þ.e. til kl. 9 á
kvöldin og um helgar þegar ekki
var helgarvinnubann.
„Við byrjuðum svo á veginum
í haust og ef veður leyfir, mun
honum verða lokið þegar stöðin
verður opnuð.“
Hvers konar mannvirki er flug-
hlað?
„Það er í fyrsta lagi jarðvegs-
skipti, um 200 þúsund rúmmetrar
af jarðefnum voru fluttir til, síðan
er þetta sléttað og malbikað yfir
akstursbrautir, steypt yfir flug-
hlaðið sjálft. í steypta hlutanum,
nánar tiltekið þar sem flugvélarn-
ar eru við landgangana, eru
hitalagnir til að halda híaðinu
snjófríu. Þessi mannvirki þurfa
að þola mikið álag og eru þess
vegna mjög sterk, malbikið á
akstursbrautunum er 15 sm
Aðkeyrslubraut flughlaðsins tilbúin undir malbikun.
þykkt, um helmingi þykkara en
er í venjulegum vegi. Steypan í
hlaðinu er 33 sm þykk, til saman-
burðar er steypan í Keflavíkur-
veginum 20 sm þykk. Þetta er
nauðsynlegt til að stærstu flugvél-
ar geti athafnað sig þama full-
hlaðnar, en þá getur þungi á
hveiju hjóli orðið hátt í 20 tonn.“
Andrés kvað þetta vérkefni
ekki vera svo óvenjulegt fyrir
Aðalverktaka, að vísu í stærra
lagi, en hliðstætt þeim sem fyrir-
tækið vinnur allajafnan við.
TEXTI: ÞÓRHALLUR
JÓSEPSSON
Menn og tæki frá ísienskum aðalverktökum að setja upp færanlegan hluta landgangs.
Jens Jensson dúklagningamaður
var að ganga frá þar sem blóma-
keijum er ætlað að vera og gera
vatnsþétt.
dline
Þegar gæðin skipta. máli
húnar, höldur, hankar, slár,
lamir og baövörur
úr ryðfríu stáli og kopar
Jens sagði að vinnan við flugstöð-
ina hefði verið skemmtileg reynsla,
því mannvirki eins og þetta væri
ekki byggt á hveijum degi. Hann
sagðist ekki búast við að verða at-
vinnulaus þegar þessu verkefni lyki,
því næg verkefni virtust vera í þess-
ari grein.
teíknad af knud holscher
•line fyrir þ>á vandlátu
ASETA HF.
Ármúla 17A, S. 83940 & 686521