Morgunblaðið - 12.04.1987, Side 32
32 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987
+
Þannig leit flugstöðin gamla út vígsludaginn, en síðan hefur margt breyst.
Þótti hiðfegursta mannvirki
við vígsluna árið 1949
VerÖur nú nýtt undir skrifstofur og gistiaðstöðu fyrir varnarliðsmenn
Sveinn Björnsson forseti íslands á tali við bandariskan yfirmann.
FLUGSTÖÐIN gamla, sem nú er að ljúka hlutverkí sínu, var vígð við
hátíðiega athöfn árið 1949 að viðstöddum helstu fyrirmönnum þjóðarinnar.
Þótti flugstöðin hið fegursta mannvirki á þeim tíma, ennfremur var hótelið
í stöðinni talið eitt hið fínasta sem þá þekktist á landinu. Mönnum kann
að finnast ótrúlegt að gamla flugstöðvarbyggingin hafi þótt falleg, en
eins og Pétur Guðmundsson flugvallarstjóri bendir á í viðtali hér í blaðinu,
hafa skúr- og viðbyggingar seinni tíma smám saman hulið sjálfa
aðalbygginguna.
Við opnunina var Ólafur K. Magnússon ljósmyndari Morgunblaðsins og tók
þar meðfylgjandi ljósmyndir. Varnarliðið tekur nú við byggingunni til eigin
nota. Friðþór Kr. Eydal fréttafulltrúi varnarliðsins sagði í viðtali við
biaðamann, að byggingin yrði notuð undir skrifstofur, ennfremur verður
gistiaðstaða fyrir varnarliðsmenn á efri hæðinni, en upphaflega var hótel
á efri hæðinni eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Þá mun varnarliðið
sjálft annast flugafgreiðslu varnarliðsmanna á leið inn og út úr landinu.
Flugvél frá American Overseas Airlines var á Keflavíkurflugvelli vígsludaginn. í lok seinni
heimsstyrjaldarinnar eða í kringum 1946 millilentu ýmis flugfélög önnur á Keflavíkurflugvelli, til
dæmis Trans Canada og British Overseas Aircraft corp., BOAC, Trans World Airlines og sænskt
flugfélag SILA, sem er forveri SAS. Auk þessara hafði Air France hér viðkomu.
Lokafrágangur hefur verið myndaður í gömlu stöðinni eins og þeirri
nýju.
I
■