Morgunblaðið - 03.07.1987, Page 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1987
Förðunarfélag íslands sýndi leikni
nokkurra meðlima sinna á sýningu
í Broadway, sem tímaritið Hár og
fegurð stóð að á dögunum. Sýnt
var skvokallað “creative make-
up“, sem felst í
því að breyta
ásjónu fólks íþá
mynd sem hæfir
hlutverki þeirra
hverju sinni. —
Leiddu förðun-
arfræðingarnir
fram tuttugu og
einsárs gamla
stúlku, sem orð-
in var háöldruð eftir að förðunar-
fræðingurinn hafði farið um hana
höndum. — Einnig mátti sjá slas-
aðan mann, með opin sár, sem
blóðið lagði úr. — Á eina unga
stúlku hafði verið
málaður heill
samfestingur en
stúlkan var nær
nakin. Þarna
mátti líka sjá
Dfönu Ross end-
urborna og leidd
varfram ung og
fögur japönsk
geisha.
Föröun í anda sextugasta áratugarins.
Haltrarðu stundum um sárkvalin, en
reynir að gleyma verkjum,
líkþornum og aumum siggþykkildurr
á fótunum? Sé svo, þá skaltu
lesa þessar ráðleggingar, sem hér
fylgja, taktu þig á að hefja aðgerðir
til að varðveita þessa dýrmætu
ganglimi þína, lækna helstu kvillana
erá þá sækja.