Morgunblaðið - 03.07.1987, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1987
B 7
markaði. Þá hefur hún unnið við
gerð auglýsingabæklinga eins
og fyrir Scana, sem framleiðir
Don Cano sportfatnaðinn einnig
hefur hún unnið fyrir tímarit.
Fljótlega eftir heimkomuna
stofnaði Kristín eigin snyrti-
stofu, Snyrtistofuna NN. Nafnið
kemur af því að hún hefur einka-
umboð fyrir snyrtivörur sem
kallast No Name og byggjast á
gífurlegu litaúrvali. Snyrtistofan
NN er eina snyrtistofan, sem
býður upp á snyrtinámskeið á
kvöldin, þar sem kennd eru
undirstöðuatriði í dag- og kvöld-
förðun og að sögn Kristínar hafa
þessi námskeið verið afar vin-
sæl.
Þegar tími gefst hefur Kristín
unnið sjálfstætt með atvinnu-
Ijósmyndurum um þetta segir
hún: “Ég hef áhuga á að koma
mór upp góðu safni mynda, sem
ég hef skapað sjálf og gæti
hugsanlega selt sem mynd-
skreytingar við greinar í tímarit.“
Við spurðum Kristínu hver
förðunartískan væri í sumar?
“Förðunin miðast að því að vera
sem minnst áberandi á daginn
en á kvöldin er hún meiri. Jarðlit-
irnir eru einkum í tísku og á
kvöldin eru þeir sterkari til dæm-
is fara varalitirnir út í rauðbrúna
og bleika tóna.
Tvær nýjungar eru á mark-
aðnum. Önnur er mattur blýant-
ur sem settur er inn í hvarmana,
til að láta augun sýnast stærri,
segir Kristín hann líka góðan
fyrir þær, sem fara mikið út að
skemmta sér og verða rauð-
eygðar í reyk. Hin nýjungin eru
þurrir augnskuggar, svartir og
dökkbrúnir, sem notaðir eru til
að skerpa línurnar í kringum
augun líkt og blýantarnir. Segir
Kristín þessa aðferð eðlilegri og
endingarbetri auk þess, sem
það só auðveldara að vinna með
þessa augnskugga en blýant-
ana.
Líkt og Ragnheiður Lára seg-
ist Kristín ekki mála sig mikið
svona venjulega, en á kvöldin,
þegar hún puntar sig upp, málar
hún sig meira. Segir hún að það
hafi aukist mikið að konur komi
á snyrtistofu til að láta farða sig
fyrir hin ýmsu tækifæri og segist
Kristín hafa sinn fasta kúnna-
hóp, sem só ákaflega skemmti-
legur.
Byrjiö á aö setjast í þægilega
stellingu. Berið fitulaust krem á
fótinn og núið, hnoöið og strjúkið
hann í fimm mínútur. Stráið nú
barnapúðri á fótinn. Haldið við
annan ökklann og setjið þumalfing-
ur hinnar handarinnar á miöja ilina.
Þrýstið þéttingsfast með þumal-
fingrinum og færið hann hægt
fram á við í hlykkjum. Beitið sömu
aðferð á hliðar fótsins og einnig á
ristina.
Reynið nú „fingragang", og er
það gert á líkan hátt og fyrri að-
ferð, fingurgómunum er þrýst þétt
og jafnt til skiptis á hliðar fótanna
og ristina og fariö í átt að tánum.
Leggið á minnið þessi ráð: Það
getur slakað á spennu að hnoða
stórutána; það getur verið gott ráð
að nudda sóla tánna, sé maður
með kvef eða bólgur í ennis- eða
kjálkaholum; gott nudd á báðar
stórutær dregur úr höfuðverk;
gegn sótthita, er ráð að þrýsta
fast á miðja stórutána; það gagn-
ast vel við tíðarverkjum að beita
„fingragangi" á ökklann að fram-
anverðu og einnig hliðar hans, það
er ennfremur ráðlagt við tíða-
streitu. Nuddið tábergið ef þið
þjáist af bjúg eða nasakvefi og
taugaspenna minnkar ef þrýst er
með gómum þumlanna þéttings-
fast undir ristarbogann, auk þess
að veita góða afslöppun.
Þetta er ekki selt dýrara en það
er keypt, en skaðar áreiðanlega
ekki og um að gera að reyna þessi
ráð.
ÞÝTT: HALLDÓRA
FILIPPUSDÓTTIR
Moskvu, Reuter.
FYRSTA listaverka-
uppboðið var haldið
í Sovétríkjunum um
síðustu helgi og má
segja, að andinn,
sem þar sveif yfir
vötnunum, hafi ein-
kennst af ósviknum
áhuga á einkaeign.
Aðeins til að kom-
ast framhjá dyraverð-
LISTAVERK BOÐIN
UPP FYRSTA SINNI
inum þurftu líklegir
kaupendur að greiða
15 rúblur, um 880 ísl.
kr., en þegar inn var
komið voru þeir leidd-
ir í allan sannleikann
um það hvernig eigin-
leg uppboð fara fram.
Sá, sem kennsluna
annaðist, var Arseny
Lobanov, eini upp-
boðshaldarinn í
Sovétríkjunum.
Þegar Lobanov
hafði kynnt reglurnar
og látið þess getið,
að við kaupverðið yrði
bætt 5% umboðs-
launum, kvaðst hann
mundu telja upp að
þremur, „raz, dva,
tri“, og þegar hamar-
inn féll hafði fyrsta
listaverkauppboð í
sögu Sovétríkjanna
verið formlega sett.
Til sölu voru 111
málverk og svartlist-
arverk eftir ungt fólk
í Sambandi sovéskra
listamanna en aðeins
tæpur helmingur ver-
kanna gekk út. Yelena
Markova, sem skipu-
lagði uppboðið fyrir
Sovéska menningar-
sjóðinn, sagði, að það
hefði tekist ákaflega
vel og að nú væri ver-
ið að undirbúa
uppboð á listaverkum
og Ijósmyndum í nýj-
um uppboðssal við
Karl Marx-stræti.
SlfJ
HeimHistaeKint
BIRGIR