Morgunblaðið - 28.08.1987, Page 2

Morgunblaðið - 28.08.1987, Page 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1987 Eftir hverju fara starfsmannastjórar og vinnuveitendur þegar þeir ráða fólk í vinnu? Hverju taka þeir helst eftir? Hvað vegur þyngst? Útlitið, framkoman eða meðmælin? Við höfðum samband við tvær ráðningarskrifstofur og spurðum hvort algengt væri að vinnuveitendur settu upp ákveðnar kröfur eða óskir varðandi starfsfólk. Oddrún Kristjánsdóttir hjá Liðsauka sagði að það kæmi fyrir öðru hvoru og ekki væri óalgengt að settar væru fram óskir um aldurog kyn. Hjá mörgum fyrirtækjum væru starfsmenn á ákveðnu aldursbili og því fyndist þeim æskilegt að ráða manneskju á svipuðu reki. Einnig sagði hún að vissir fordómar ríktu varðandi konur með ung börn en karlmenn væru aftur á móti ekki spurðir að því. „Að sjálfsögðu skiptir snyrtimennska einnig máli,“ sagði Oddrún þegar við spurðum hana hvort hún teldi svo vera. „Það liggur í hlutarins eðli að snyrtilegur maður hefur meiri möguleika." Sjaldgæft er að beðið sé um fólk með glæsilegt útlit eða vaxtarlag að sögn Oddrúnar, en hins vegar væri eðlilegt að snyrtilegt fólk með góða framkomu væri ráðið í sölu- eða móttökustörf. „Sumirvilja fjölskyldumenn í vinnu, telja þá sennilega áreiðanlegri. Annars reynum við einungis að samræma kröfur beggja aðila svo þeir megi vel við una, en endanleg ákvörðun er svo tekin af þeim.“ Þórir Þorvarðarson hjá Hagvangi var sammála Oddrúnu um það að oft væri leitað að fólki á ákveðnu aldursbili en kynið færi stundum eftir því um hvers konar störf væri að ræða. „Þegar við tökum niður beiðni um starfsmann," sagði Þórir, „förum við á staðinn og könnum aðstæður í fyrirtækinu og fáum sem gleggstar upplýsingar um hvers konar manneskju er verið að leita að. Því betri mynd sem við fáum því auðveldara er fyrir okkur aðfinna réttan starfsmann." Þórir sagði að óneitanlega hefðiframkoma, klæðaburður og snyrtimennska áhrif en einnig hefðu fyrstu kynni mikið að segja. Þegar hann var spurður að því hvort skrift hefði áhrif sagði hann að snyrtileg og vel útfyllt umsókn hefði eflaust áhrif en ekki beint skriftin sjálf. Við tókum starfsmannastjóra fjögurra fyrirtækja tali og báðum þá að segja okkur hvað þeirálitu skipta mestu máli við ráðningu starfsfólks. Örugg framkoma og persónulegur metnaður Rætt við Ólaf Haraldsson hjá SPRON Bankastörf nutu í eina tíð mikils álits og enn bera flestir talsverða virðingu fyrir gjald- kerum og öðrum þeim sem handfjatia peninga og verðbréf. En hverju skyldu stjórnendur bankanna helst sækjast eftir þegar starfsfólk er róðið? Hvað skyldi vega þyngst? Menntun og reynsla koma væntanlega fyrst, en hvað um útlit, fram- komu eða meðmæii? Við ræddum við Ólaf Haraldsson framkvæmdastjóra rekstrar- sviðs hjá Sparisjóði Reykjavfkur og nágrennis og spurðum eftir hverju hann leitaði helst hjá til- vonandi bankamanni? „Aðalatriðið er fyrst og fremst hvernig fólk kemur fyrir, hvort það er lokað eða hefur óþvingaða framkomu. Framkoman skiptir miklu máli í þjónustustörfum. Fólk þarf að geta horft í augun á viðskiptavininum og sömuleiðis skiptir máli að ávarpa hann með nafni. Ég leita að duglegum ein- staklingum með þjónustulund sem hafa metnað fyrir sjálfan sig og áhuga á að byggja sig upp í starfi en eru ekki bara að leita að þægilegum stað til að vera á frá níu til fjögur og fá kaup fyrir. Helst þarf starfsmaðurinn að hafa það mikinn áhuga aö hann sé eins og gangandi auglýsing fyrir fyrirtækið." — En hvað með útlit og klæðaburð, hefur það eitthvað að segja? „Klæðnaður hefur vissulega alltaf einhver áhrif og segir stundum dálítið um manneskj- una. En hann skiptir ekki sköpum og ég leita alls ekki eftir neinu sérstöku í útliti eða klæðaburði, þaö verður aö taka tillit til að- stæðna í þeim efnum. En auövit- að tekur maður eftir því hvort fólk er snyrtilegt og vel til haft eða í skítagallanum." — Geta meömæli ráðið úrslit- um? „Ég legg lítið upp úr skriflegum meðmælum því þau segja sjald- an mikið um viðkomandi starfs- mann. Ég reyni heldur að tala við fólk og þá helst þann sem hefur stjórnað og unnið með við- komandi starfsmanni. Ég hef þá t.d. spurt hvort þeir myndu ráða viðkomandi aftur og verður þá stundum fátt um svör. Mæting o.þ.h. er líka mikilvægt atriði. Þegar fólk kemur í viðtal skipt- ir máli að það geti litið upp en sitji ekki niðurlútt og segi bara já og nei. Ég spyr hvers vegna það vilji vinna hjá okkur og vil að það geti unnið sjálfstætt en sitji ekki auðum höndum þegar lítið er að gera í afgreiðslu. Það er líka mikilvægt að fólk í þjón- ustustarfi eins og bankaaf- greiðslu hafi örugga framkomu Morgunblaðið/Árni Sæberg Ólafur Haraldsson sór um starfsmannahald hjá SPRON. og sé jafnframt þægilegt og gott í samskiptum." — Þurfa gjaldkerar að hafa eitthvað sérstakt til að bera um- fram aðra bankamenn? „Það er dálítið öðruvísi pressa á gjaldkerana og þeir þurfa að vera yfirvegaðir og jafngeðja. Oft myndast langar biðraðir þegar mikið er að gera og þá er mikiö álag á þá. Þeir verða aö hafa öryggi og vissa festu en mega samt ekki gleyma viöskiptavinin- um. Nú eftir að bankarnir hafa tölvuvæðst hefur álagið á gjald- kerana aukist og hann þarf helst að hafa góða þjálfun á tölvu og má ekki vera sveiflukenndur í lund. Margir viðskiptavinir halda tryggð við sama gjaldkerann og við leggjum fyrst og fremst áherslu á að þjónustan sé góð. Það getur reyndar oltið á ýmsu hvað ræður úrslitum um það hver er ráðinn og hver ekki. Það getur þess vegna farið eftir því hvernig ég er stemmdur þann daginn. Það er nokkuð árstíða- bundið hvað margir koma og sækja um vinnu, en mest er álag- ið í apríl og maí þegar sumarfólk- ið kemur og skólum lýkur en svo kemur li'ka önnur sveifla í sept- ember og þá oft fólk sem hefur gefist upp eða hætt i háskólan- um. Við setjum yfirleitt sem skilyrði að fólk sé með stúdents- próf en það kemur fyrir að undantekningar eru gerðar ef meðmæli eru mjög góð.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.