Morgunblaðið - 29.09.1987, Blaðsíða 2
2 B
fttorgwtbfafrifr /IÞROTTIR ÞRŒUUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
JÚDÓ / OPNA SÆNSKA MEISTARAMÓTIÐ
Bjami hlaut silfur
BJARNI Friðriksson júdókappi
úr Ármanni varð annar í sínum
flokki á opna sænska meistara-
mótinu í júdó sem fram fór um
síðustu helgi. Bjarni glímdi við
Jens Giesler frá Vestur-Þýska-
landi í úrslitum og mátti þola
tap. Engu að síður var þetta
góður árangur hjá Bjarna þar
sem þetta var fyrsta mót hans
síðan hann meiddist í vor.
Bjami keppti í +95 kg flokki
og sat hjá í fyrstu umferð og
andstæðingur hans í annari umferð
mætti ekki. í 3. umferð glímdi hann
Kuitert frá Hollandi og sigraði ör-
ugglega á Yuko. Bjami vann síðan
Andreas Preshel frá Vestur-Þýska-
landi eftir stutta viðureign í
undanúrslitum á Ippon. Hann varð
síðan að lúta í lægra haldi fyrir
ÞÝSKALAND
Góður sigur
Uerdingen
á útivelli
Atli Eðvaldsson og félagar í
Bayer Uerdingen unnu ör-
uggan sigur, 4:1, gegn Bochum
á útivelli í vestur-þýsku 1. deild-
inni í knattspymu í gærkvöldi.
Atli kom inn á sem varamaður
í seinni hálfleik og lagði upp
þriðja mark Uerdingen. Stefan
Kuntz var besti maður liðsins í
gær og skoraði tvö mörk. Rudi
Bommer gerði hin tvö mörk liðs-
ins, það fyrra úr víti, og það
síðara eftir góða sendingu Atla.
Heinemann gerði eina mark
heimamanna á 86. mínútu. Þess
skal getið að leikur þessi hefur
ekki verið færður inn á stöðu-
töfluna á bls. B 14.
Giesler í úrslitunum eins og áður
segir.
Auk Bjama tóku þeir Eiríkur Ingi
Kristinsson og Halldór Hafsteins-
son þátt í mótinu. Eiríkur keppti í
BADMINTON
LIÐ TBR varð í 3. til 4. sæti í
Evrópukeppni félagsliða sem
lauk í Austurrfki á sunnudag-
inn. TBR tapaði fyrir dönsku
meisturunum Triton í undanúr-
slitum 0:7.
TBR hafði áður unnið CYM frá
Dublin, 6:1, Smach frá Hels-
inki, 5:2 og 01 ve frá Antwerpen
+65 kg flokki og tapaði strax í
fýrstu glímu.
Halldór Hafsteinsson hafnaði í 7.
til 10. sæti af 36 keppendum í +86
kg flokki. Hann vann Ferrado frá
Chile í fyrstu umferð síðan mætti
hann Bravada frá Póllandi og tap-
aði, en Pólveijinn sigraði síðan í
þessum flokki. Halldór fékk upp-
reisnarviðureign gegn Finnanum
Kallama og vann. Loks tapaði hann
fyrir Kiestler frá Sviss.
Mótið sem fram fór í Lundi í Svíþjóð
var mjög sterkt. Þátttakendur voru
250 frá 20 þjóðum. Næsta verkefni
júdómanna er Áskorendamót hér
heima 10. október. Að sögn Hákons
Halldórssonar er Júdósambandið að
hugsa um að senda tvo til þijá kepp-
endur á heimsmeistaramótið sem
fram fer í Essen í Vestur-Þýska-
landi 19. til 22. október.
6:1. Árangur TBR verður að teljast
góður þar sem 18 lið frá jafn-
mörgum þjóðum tóku þátt í þessu
móti.
Leikurinn gegn Triton frá Álaborg
í undanúrslitum tapaðist eins og
áður segir 0:7. Danska liðið er nær
eingöngu skipað landsliðsmönnum
og gegn þeim hafa íslendingar
hingað til ekki átt möguleika.
Sveit TBR náði
góðum árangri
á Evrópumótinu
Lenti í 3. til 4. sæti í Austurríki
KNATTSPYRNA
Halmlr Karlsson verður Víðismönnum eflaust styrkur ef hann leikur
með liðinu, en hann varð sem kunnugt er markakóngur 2. deildar síðastlið-
ið sumar.
Heimir þjáKar
Víði í Garði
HEIMIR Karlsson hefur verið
ráðinn þjálfari Víðis úr Garði
fyrir næsta keppnistímabil.
Heimir hefur þjálfað og jafn-
framt leikið með ÍR-ingum
síðustu tvö árin og var jafn-
framt markahæsti leikmaður
2. deildar 1987.
Heimir hefur náð góðum ár-
angri með ÍR. Hann tók við
liðinu í 3. deild 1986, kom því þá
upp í 2. deild og hélt sæti sínu
þar nú á nýloknu keppnistímabili.
Heimir skrifaði undir eins árs
samning við Víðismenn á sunnu-
dagskvöld. Hann mun taka að sér
þjálfun liðsins og auk þess mun
hann leika með „ef hann kemst í
liðið," eins og Jónatan Ingimars-
son, stjómamaður í Víði, orðaði
það í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
Víðismenn féllu úr 1. deild í sum-
ar en hafa fullan hug á að
endurheimta sæti sitt aftur í 1.
deild.
GOLF / RYDER-BIKARKEPPNIN
Fyrsti sigur Evrópubúa
Sveit Evrópukylfínga gerði sér lítið fyrir og vann um helgina Ryd-
er-bikarinn í golfi en það er bikar sem úrvalssveitir frá Evrópu
og Bandaríkjunum beijast um á hveiju ári. Þetta er í fyrsta sinn sem
Evrópubúar vinna keppnina, sem nú var haldin í 27. sinn.
Keppnin var sérlega spennandi og skemmtileg auk þess sem kylfingam-
ir léku flestir mjög vel. Sem dæmi um hve vel þeir léku má nefna að
þeir Evrópubúamir Ian Woosnam og Nick Faldo léku átta af fyrstu
tíu holunum á einu höggi undir pari, fengu sem sagt „birdie" eða fugl
á átta holum, og bættu síðan við þremur fuglum til viðbótar á næstu
holum og unnu þar með þá Curtis Strange og Tom Kite 5-4.
Síðasta dag keppninnar vann Eamonn Darcy það afrek að vinna loks-
ins leik í keppninni en hann tók nú þátt í sinni fimmtu keppni. Á 18.
holunni setti hann niður um þriggja metra pútt úr erfíðri aðstöðu og
sagði Jack Nicklaus, fyrirliði bandarísku sveitarinnar eftir púttið að
þetta hefði verið tilvalið færi til að þrípútta. Hann ætti að vita það
því hann hannaði jú völlinn.
„Við höfum verið að segja Bandaríkjamönnum að kylfíngum í Evrópu
hafí farið mikið fram undanfarin ár en þeir hafa ekki tekið mark á
okkur. Nú sýndum við þeim það,“ sagði Nick Faldo himinlifandi eftir
keppnina.
BELGÍA
■ ■
Oruggur
sigur
Ander-
lecht í
íslands-
slagnum
Anderlecht, án Amórs Guðjo-
hnsen, vann öruggan sigur á
Guðmundi Torfasyni og félögum
hans hjá Winterslag, 3:0, í belgísku
1. deildinni í knattspymu um helg-
ina. Anderlecht og Mechelen em
efst ogjöfn í deildinni með 13 stig.
Kmcevic skoraði öll mörk And-
erlecht sem lék á útivelli gegn
Winterslag. Yfírburðir gestanna
vom mikilir og vom þeir nær því
að bæta við fleiri mörkum en Win-
gerslag að skora einu sinni.
Guðmundur Torfason lék með Wint-
erslag og varð lítið ágengt við mark
Anderlecht.
Amór Guðhjonsen hefur átt við
meiðsli að stríða í nokkum tíma.
Hann lék þó með varaliði And-
erlecht um helgina en náði ekki að
sýna sitt rétta andlit.
Úrsllt/B14
Staðan/B14