Morgunblaðið - 04.10.1987, Blaðsíða 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987
Leikfélag Akureyrar
vetrardagsm
Lokaæfing, Piltur og stúlka, Horft af brúnni,
Fiðlarinn á þakinu og barnaleikritið um Einar Áskel
LEIKFÉLAG Akureyrar varð
sjötíu ára á þessu ári og i tilefni
þeirra tímamóta er verkefnaval
leikársins óvenjuglæsilegt og
fjölbreytt. Fyrsta sýning hausts-
ins í Samkomuhúsinu var gesta-
leikur Þráins Karlssonar, Er
þetta einleikið. Þetta er einleikur
og Þráinn flytur þar tvo einþátt-
unga eftir Böðvar Guðmundsson.
Leikstjóri er Þórhildur Þorleifs-
dóttir og leikmynd eftir Jón
Þórisson. Fyrsta frumsýning er
svo í októberbyrjun og síðan
koma verkin hvert af öðru allt
til vors þegar leikárinu lýkur
með söngleik, en það er orðin
árviss hefð hjá Leikfélaginu.
Leikfélag Akureyrar er eina at-
vinnuleikhúsið utan höfuðborg-
arsvæðisins og hefur unnið sér
þann sess í menningarlífi þjóðar-
innar að fjöldi fólks hvaðanæva
að af landinu gerir sér ferð til
Akureyrar, meðal annars til að
fylgjast með leikhúslffinu þar.
Raunar má segja að leikárið á
Akureyri hafí að þessu sinni byijað
fyrr en venjulega þar sem Leikfélag
Akureyrar flutti á afmælishátíð
Akureyrarbæjar í ágústlok leik- og
söngverkið Afmælisveislu handa
Eyrarrós. Það var sýnt tvisvar fyrir
fullu húsi í íþróttaskemmunni.
Fjöldi leikara, söngvara og hljóð-
færaleikara kom þar fram auk
karlakóranna og Blásarasveitar
Tónlistarskólans. Meðal frumsýn-
ingargesta var Forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir. Við það
tækifæri var opinberaður samning-
ur sem ríkisstjómin, Akureyrarbær
og Leikfélagið höfðu gert með sér
um að greiða fyrir starfí Leikfélags-
ins og létta á skuldabyrði þess.
Þessi samningur mun tryggja félag-
inu öruggari rekstrargrundvöll en
hingað til hefur ríkt.
Farandsýning fyrir
börn á Norðurlandi
í byijun október verður fyrsta
eiginleg frumsýning leikársins og
að þessu sinni bregður svo við að
bömin fá fyrsta skammtinn af leik-
listinni. Barnaleikritið er Halló
Einar Áskell, sænskt leikrit gert
eftir þremur sagnanna um þann
dreng. Sigrún Ámadóttir þýddi leik-
ritið en söngtextum snaraði Þórar-
inn Hjartarson. Sögumar sem til
gmndvallar leikgerðinni liggja em
Sveiattan Einar Áskell, Einar
Áskell, Mangi og Viktor og Góða
nótt, Einar Askell. Skúli Gautason
leikur Einar Áskel, pabbann leikur
Marinó Þorsteinsson en Amheiður
Ingimundardóttir syngur og leikur
auk þess vininn Viktor.
Halló Einar Áskell verður sýnt í
skólum og dagvistum um allt Norð-
urland og að sögn Péturs Einars-
sonar leikhússtjóra verður leik-
flokkurinn aðallega á ferðinni utan
Akureyrar í október en sýningar á
Akureyri verða að mestu í nóvem-
ber. Þetta mun vera í fyrsta sinn
sem Leikfélag Akureyrar gerir
samning við skóla og dagvistir um
farandsýningar af þessu tagi. Leik-
stjóri er Soffía Jakobsdóttir og
leikmynd hefur Guðrún Sigríður
Haraldsdóttir gert.
Lokaæfing frumsýnd
í október
Þann 23. október er áætluð fmm-
sýning á Lokaæfingu eftir Svövu
Jakobsdóttur. Þjóðleikhúsið frum-
sýndi þetta verk árið 1983 í
Norðurlandahúsinu í Færeyjum og
tók það síðan til sýninga á Litla
sviðinu. Höfundurinn umritaði leik-
ritið og breytti því árið 198B og
Leikfélag Akureyrar sýnir það í
þeirri breyttu gerð. Leikstjóri er
Pétur Einarsson, leikmynd eftir
Frá æfingu á „Einari
Askeli"
Gylfa Gíslason en leikendur em
þrír, Sunna Borg, Theodór Július-
son og Erla Rut Harðardóttir.
Lokaæfing fjallar um hjónin Ara
og Betu þegar þau prófa nýja, full-
komna og glæsilega kjamorkubyrg-
ið í kjallaranum, sem er undir
kjallaranum í húsi þeirra. Þarna er
í gamni og alvöru fjallað um vanda-
málið að lifa af í stormasömum
heimi. Þetta er nútímaverk sem
höfðar í víðum skilningi til allra
nútímamanna.
Að sögn Péturs Einarssonar er
þetta verk Svövu orðið afar víðför-
ult. Nýverið var Lokaæfing fmm-
sýnd í Kaupmannahöfn, en auk
þess hefur sýningarréttur leikritsins
verið seldur til Sovétríkjanna og á
næstunni fer verkið einnig á fjalir
í Lundúnum. Útlit er fyrir að þetta
sé einungis upphafíð að langri
göngu Lokaæfíngar um veröldina.
Piltur og stúlka
umjólin
Jólaleikrit Leikfélags Akureyrar
verður Piltur og stúlka, en Emil
Thoroddsen samdi þessa leikgerð
eftir sögu afa síns Jóns Thorodd-
sen. Emil gerði jafnframt tónlistina
sem flutt er í verkinu. Þetta var
fyrsti söngleikur, sem saminn var
á íslandi og var frumfluttur í Iðnó
á annan jóladag árið 1934. Áður
höfðu verið gerðar tilraunir til að
færa Pilt og stúlku á svið, en þær
þóttu ekki heppnast. Leikgerð Em-