Morgunblaðið - 09.10.1987, Síða 10
10 c
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
ntfi
Athol Farmer
Tveir gestadansarar koma fram í ballettsýningu íslenska
dansflokksins „Ég dansa vlð þig ..Frakkinn Philippe Talard
og Nýsjálendingurinn Athol Farmer, en þeir eru báðir aðaldans-
arar við Tanz Forum-fiokkinn f Köln þar sem Sveinbjörg
Alexanders starfar sem baliettmelstari.
Rhilippe Talard hefur komið víða við
í ballettheiminum og verið aðal-
dansari við flokkana Ballet du XX'
sciecle undir stjórn Béjarts, Þjóð-
arballett Portúgals, Borgarballett-
inn í Rio de Janeiro, Ballett Royal
des Flanders og Tanz Forum-flokk-
inn í Köln. Nýsjálendingurinn Athol
Farmer var um skeið aðaldansari
við Konunglega ballettinn á Nýja
Sjálandi og hefur frá stofnun verið
aðaldansari Tanz Forum-flokksins
í Köln.
Báðir tóku dansararnir þátt í
uppfaerslu Tanz Forum-flokksins í
Köln á verkinu „Ég dansa við
þig ..." en þar var verkið fyrst
sýnt og hlaut fádæma góðar við-
tökur. Mikið mæðir á gestadönsur-
unum tveimur í danssýningu
íslenska dansflokksins. Auk þess
eru þeir hér heima að undirbúa sig
fyrir næstu sýningu Tanz Forum
sem verður í Köln um miðjan mán-
uðinn. Þeir gáfu sér samt tíma á
milli æfinga til að spjalla stuttlega
viö blaðamann.
Aðspurðir sögðust þeir félagar
hafa tekið vel í það þegar þeim var
Alltaf ánægjulegt
að starfa hér heima
— segir Svelnbjttrg Alexanders, stjórnandl uppfaarslu
íslenska dansflokkslns á þýska verkinu „Ég dansa vitt þig ■ .
Ein vinsælasta danssýning ís-
lenska dansflokksins frá upphafi
„Ég dansa viö þig . . eftir
þýska danshöfundinn Jochen
Ulrich, er nú aftur á fjölum Þjóö-
leikhússins, en verkið var sem
kunnugt er frumsýnt sfðastliðið
vor. Sveinbjörg Alexanders, ball-
ettmeistari Tanz Forum-ballett-
flokksins f Köln, stjómaði
œfingum á dansi sfðastllðið lelkár
ásamt höfundinum en Ásdfs
Magnúsdóttlr, aðstoðarmaður
þeirra, hefur nú æft sýninguna
upp að nýju með íslenska dans-
fiokknum.
Sveinbjörg staldraði hér stutt
við í síðustu viku til að fylgja ball-
ettsýningunni úr hlaði og spjallaði
blaðamaður þá við hana. Hún var
fyrst beöin um að segja stuttlega
frá dansferli sínum. „Eg byrjaði í
Listdansskóla Þjóðleikhússins og
hélt síðan út til Lundúna í fram-
haldsnám við Konunglega ballett-
skóiann,“ segir Sveinbjörg. „Síðar
starfaði ég í fimm ár með ballett-
flokknum í Stuttgart. Með Tanz
Forum flokknum í Köln hef ég starf-
að frá upphafí eða alls 17 ár,
dansaði í 15 ár og ballettmeistari
sl. tvö ár. Auk þess hef ég kennt
og samið dansverk fyrir óperur,
söngleiki, leikrit svo og nútíma-
verk. Á síðari árum hef ég einnig
leikið í nokkrum leikritum sem
Jochen Ulrich hefur leikstýrt. Um
þessar mundir er ég t.d. að æfa
fyrir leikrit hans „Tchaikowsky"
eftir sögu Klaus Mann sem fjallar
um ævi og dauða tónskáldsins."
Sveinbjörg hefur einnig starfað
nokkuð hér heima á undanförnum
árum. Hún stjórnaði uppfærslu ís-
lenska dansflokksins á Sinfónísk-
um etýðum eftir Jochen Ulrich og
einu af hennar eigin verkum, Dans-
kokkteil. Þá dansaði hún aðalhlut-
verkið í Blindisleik Jochens Ulrich
og Jóns Ásgeirssonar og var jafn-
framt aðstoðardanshöfundur.
Aðspurð sagði Sveinbjörg að
hún væri hæstánægð meö upp-
færslu íslenska dansflokksins á
verkinu „Ég dansa við þig . . .“.
„Sýningin samanstendur af 22
ólíkum dansatriðum og hæfa mörg
þeirra ekki hvaða dansara sem er.
Mér finnst hafa tekist mjög vel til
með að velja rétta dansara fyrir
hvert atriði, ætla mætti að verkið
hefði verið samið fyrir íslenska
dansflokkinn. Egill Olafsson og
Jóhanna Linnett sem leika undir,
syngja og segja frá eru einnig
hreint út sagt frábær.
Jochen Ulrich höfundur verkSins
var á sama máli og lýsti yfir mik-
illi ánægju meö þaö hvernig til
hefði tekist með uppfærslu sýning-
arinnar hér. Við vorum á einu
máli um að sérlega gott hefði ver-
iö að starfa meö íslenska dans-
flokknum svo og öðru starfsfólki
Þjóðleikhússins. Þaö er ánægju-
legt að sjá hve góðar undirtektir
sýningin hefur hlotiö hér og stafar
það vafalaust af því hve hún er fjöl-
breytt og því við allra hæfi. Þá er
mikil lyftistöng fyrir flokkinn að fá
gestadansarana tvo til liðs við sig
en þeir eru báðir aðaldansarar við
Tanz Forum-flokkinn í Köln og
mjög hæfir."
— Hefurðu í hyggju að leggja
leiklistina fyrir þig?
„Mér finnst mjög spennandi að
fást við leiklist og hef auk dansins
áhuga á að leika hvenær sem tæki-
færi gefst. Það er tilbreyting að tjá
sig með orðum eftir hafa túlkaö
dans án orða í meira en 20 ár. Þá
hef ég einnig mjög gaman af að
kenna bæði klassískan dans og
nútímadans. Þó að klassískur dans
sé nauðsynleg undirstaða fyrir alla
ballettdansara þá finnst mér
nútímadans ekki síður mikilvægur.
Á síðustu árum hefur nútímaball-
ettflokkum fjölgað mjög víða um
heim og sömuieiðls hefur það
færst í aukana að hefðbundnir
ballettflokkar taki nútímaverk til
sýningar."
— Er von á þér aftur á næst-
unni?
„Það er nú allt óákveðið í þeim
efnum. Ég hef í mjög miklu að
snúast úti og get aðeins staldrað
stutt við núna vegna anna. Ég hef
þó mikinn áhuga á að koma aftur
og aðstoða íslenska dansflokkinn.
Það er alltaf ánægjulegt að starfa
hér heima." — BF