Morgunblaðið - 27.10.1987, Síða 2

Morgunblaðið - 27.10.1987, Síða 2
2 B ÞRWJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987 KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA Morgunblaðið/Skapti Hallgrimsson Hópurinn ssm fór héðan að heiman á laugardaginn áleiðis til Sovétríkjanna. Frá vinstri: Siguijón Sigurðsson, lækn- ir, Friðrik Friðriksson, Þorsteinn Þorsteinsson, Ólafur Þórðarson, Guðmundur Steinsson, Þorvaldur Örlygsson, Guðni Bergsson, Halldór Áskelsson, Rúnar Kristinsson, Þór Símon Ragnarsson og Gylfi Þórðarson. Myndin var tekið í Laug- ardalnum áður en ekið var til Keflavikur. Uppselt á leikinn Gífurlega mikill áhugi er á leik Sovétmanna og íslendinga í Evrópukeppninni í knattspymu, sem hefst her í Simferopol kl. 19.00 (kl. 16.00 að Steinþór ísienskum tíma) á Guöbjartsson morgun, miðviku- skrifarfrá dag. Færri komast Sovétríkjunum aðenvilja, þvíþegar er uppselt, en Lokokmotiv völlurinn, þar sem leikurinn fer fram, tekur 26.000 áhorfendur. Sovétmenn hafa leikið tvo landsleiki í Simferopol. Árið 1985 unnu þeir Búlgara 3:0 og fyrir ári máttu Norðmenn þola 4:0 tap í Evrópu- keppninni. Jafntefli á morgun tryggir heimamönnum efsta sætið f riðlinum, en þeir sættu sig illa við jafntefli gegn íslendingum í fyrra og ætla sér ekkert annað en sigur nú. Hluti liðsins hefur verið í æf- ingabúðum 17 km. fyrir utan borgina síðan á föstudag, en óvenjulega mikil þoka var í Moskvu í síðustu viku, sem gerði það að verkum að fíugsamgöngur lágu niðri og komust því ekki allir so- vésku leikmennimir í tæka tíð. Sovétmenn em efstir í þriðja riðli Evrópukeppninnar með 11 stig. Þeir unnu Norðmenn 4:0 og 1:0, gerðu 1:1 jafntefli við Frakka og Austur-Þjóðveija, og unnu bæði einnig bæði liðin 2:0. Eftir 1:1 jafn- tefli gegn íslendingum í fyrrahaust hafa Sovétmenn aðeins tapað einum vináttuleik, 3:1 gegn Svíum. Sovétmenn sigruðu í fyrstu Evrópu- keppninni árið 1960, en töpuðu í úrslitum 1964 og 1972. Þeir hafa á að skipa einu besta landsliði heims og hafa fullan hug á að endurtaka leikinn frá 1960. Að sögn forráða- manna sovéska íþróttasambands- ins, vildu 100.000 manns fá miða á leikinn á morgun, en miðamir 26.000 sem vom til sölu fóra á fímm klukkustundum. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu hjá so- véska sjónvarpinu. Áhugamenn íslenska landsliðið hefur staðið sig mjög vel í Evrópukeppninni að þessu sinni. Liðið byijaði glæsilega, gerði markalaust jafntefli við Evr- ópumeistara Frakka og 1:1 jafntefli við Sovétmenn, en tvö töp gegn Austur-Þjóðveijum fylgdu í kjölfar- ið, 2:0 og 6:0. Þeim var svarað með tveimur sigmm gegn Norðmönnum í haust, 2:1 og 1:0, og nú er það síðasti leikurinn. Eins og fram hef- ur komið em margir af bestu knattspymumönnum íslands fjarri góðu gamni. Aðeins sex atvinnu- menn em í hópnum en tíu leikmann- anna leika með islenskum liðum. Liðið er því í lítilli leikæfingu og samæfíng hefur verið af skomum skammti. Sem fyrr segir fer leikurinn fram í Simferopol. Hér er venjulega um 10-15 gráðu hiti á celcius á þessum árstíma en nú er mun kaldara. í gær fór hitinn upp í 6 gráður og í nótt niður í mínus 10 gráður. Það var þvf frekar kalt á æfíngu liðsins f gær og ekki bætti úr skák að lítið sem ekkert heitt vatn var á hótelinu og því nær sami kuldinn inni sem úti. Þeir geta ekki tekið okkur alvarlega - segir Atli Eðvaldsson landsliðsfyrirliði Þetta er brandari. Meirihluti okkar hefur varla leikið sfðan íslandsmótinu lauk f byrjun septem- ber og nú emm við hingað komnir til að leika gegn Steinþór Sovétmönnum á Guðþjartsson þeirra heimavelli og skrifarfrá ég heyri að það sé Sovétríkjunum uppge,t & ,eikinn, Ég skil ekki þennan áhuga, því hjá þeim hlýtur leikurinn að vera forms- atriði og þeir geta ekki tekið okkur alvarlega," sagði Atli Eðvaldsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, við Morgunblaðið eftir æfínguna í gær. Atli sagði að ekki væri hægt að bera þessi lið saman. „Sovétmenn em með eitt af Qórum eða fímm bestu landsliðum heims, en við emm að miklu leyti með áhugamannalið. Þeir hafa æft og leikið mikið saman en fyrir okkar átta leiki í Evrópu- keppninni höfum við verið sextán daga saman, tvo daga fyrir hvem leik. Þetta er hlægilegt og ég held að leiknum megi líkja við heims- styijöld þar sem við emm skot- markið. Þeir koma með látum, aðalatriðið er að lifa þetta af,“ sagði Atli. Atli vildi samt ekki útiloka krafta- verk. „Við vitum að allt getur gerst í fótbolta. Þetta er ömgglega erfíð- asti leikur íslands frá upphafi, en sem fyrr verðum við að halda haus. Ég viðurkenni hins vegar að ef við komum vel frá þessum leik hlæ ég þar til ég verð kominn úr landi og jafíivel lengur," sagði fyrirliðinn. OLYMPIUNEFND VISA styrkir Olympíuliðið ÁRIÐ1988 er Ólympíuár og mesta íþróttahátíð sögunnar verður haldln í Calgary f Kan- anda og í Seoul f Suður- Kóreu. VISA ísland mun á næstunni dreifa áskorun til allra korthafa sinna og hvetja til stuðnings f verki með þvf að borga Iftilræði á mánuði til Ólympfunefndar fslands. essi stuðnigur VISA/ísland er mikilvægur fyrir Ólympíu- nefnd íslands sem standa þarf kostnað af ferðum og uppihaldi keppenda á ólympíuleika. Allt söfnuarfé rennur óskert til ólypíu- liðsins. VISA Intemational er styrktarað- ili að Ólympíuleikunum og mun VISA-kortið verða opinbert greiðslukort leikanna. VISA ís- land og nokkrar stærstu sport- vömverslanir landsins hafa tekið höndum saman um að efla ólypiu- liðið til dáða með því að veita sameiginlega af þeim kaupum í þeim verlunum með VISA-kort, allt að 1 prósent af viðskiptum fram að ólympíuleikum. Þeir korthafar VISA sem veita mánaðrlegt framlag til Ólympíu- liðsins fá Ólympfubarmmerki sent. Þeir geta líka dottið í lukku- pottinn, því að dregið verður úr nöfnum/kortnúmemm stuðnings- aðila annað slagið um ýmsan glaðning. Þar á meðal um ferð fyrir tvo á Ólympíuleikana f Seoul. KNATTSPYRNA Tryggvi í Val Jón Gunnar Bergs einnig til félagsins TRYGGVI Gunnarsson, sem leikið hefur með KA á Akur- áf'" j eyri sföastliðin þrjú ár, hefur ■ , ákveðið að ganga til liðs við íslandsmeistara Vals og gekk á laugardaginn frá fólaga- skiptum sfnum. \ Tryggvi, sem er aðeins 22 ára að aldri, skoraði mikið af mörkum fyrir lið ÍR í neðri deild- unum á sínum tíma. í fyrra skoraði hann 28 mörk fyrir KA í 2. deildinni, en í sumar, er hann lék í fyrsta skipti i 1. deild, skor- aði Tryggvi 4 mörk í 17 deildar- leilcjum. í samtali við Morgunblaðið sagði Tryggvi sig hafa langað að breyta til. „Eg vildi komast til Reykjavík- ur aftur." En skildi það hafa skipt máli hvaða félag hann valdi að Hörður Helgason, sem þjálfaði KA í sumar, hefur verið ráðinn til Vals? „Já, það skipti máli. Ég tel Hörð mjög góðan þjálfara. En ég vil taka fram að Hörður ræddi ekki við mig að fyrra bragði. Ég hringdi f hann og sagðist hafa áhuga á að skipta," sagði Tryggvi. Þess má geta að Tryggvi verður ekki að stfga sín fyrstu spor með Val næsta sumar, hann lék með félaginu í 6. flokki á sínum tíma, MorgunWaðifi/Skapti Tryggvl Gunnarsson, ásamt Eggerti Magnússyni, formanni knattspymudeildar Vals, eftir að hafa skrifað undir félagaskiptin á laugardaginn. áður en hann fór f ÍR! Þá hefur Jón Gunnar Bergs ákveðið að snúa aftur til Vals eftir nokkura ára fjarvem. Jón Gunnar lék síðastliðin tvö keppn- istímabil með Selfyssingum ogþar áður var hann hjá Breiðabliki í Kópavogi. Jón Gunnar lék á sínum tíma 15 leiki í 1. deild með Val. Steinþór Guðbjartsson skrifarfrá Sovétrikjunum ■ GUÐMUNDUR Steinsson var í viðbragðsstöðu alla sfðustu viku sem 17. maður landsliðshóps- ins. Þegar liðið hélt til London á laugardag var ekki vitað hvort Amór Guðjohnsen væri heill og fór Guð- mundur því með út án þess að vita hvort hann færi áfram til Sovétríkjanna eða aftur heim. Hann var samt sallarólegur, en um kvöldið varð ljóst að Amór færi hvergi vegna meiðsla og Guð- mundur er því f Simferopol. ■ KEITH D’Arcy hefur skipu- lagt margar ferðir fyrir KSÍ og sá um ferðina til Sovétríkjanna. Hann tók á móti hópnum í London og sagðist oft hafa lent í vandræðum, en aldrei fyrr hefði gengið eins erf- iðlega að ganga frá öllum málum. Allt fram á síðustu stundu átti lið- ið, í óþökk KSÍ, að fara frá Simferopol til Moskvu með viðkomu í Kharkov, strax eftir leik í leigu- flugi, sem tekur fjóra klukkutíma. Þessu tókst að breyta á laugardag- inn, og var hópurinn kominn inn í beint áætlunarflug sem tekur tvo tíma. í gær var hins vegar sagt að hópurinn færi ekki með áætlun, heldur í leiguflugi, og em menn allt annað en sáttir við það. Von- andi tekst Gylfa Þórðarsyni og Þór Sfmon Ragnarssyni, stjómar- mönnum KSÍ og fararstjómm, að breyta þessu aftur og fá sitt fram, en ef það tekst ekki, kemur hópur- inn svefnlaus til London. ■ SÆVAR Jónsson fer til ís- lands eftir landsleikinn. Sem kunnugt er hafði franska 1. deildar- liðið Niort áhuga á að fá Sævar til liðs við sig og var hann því í Belgíu alla síðustu viku. Ekkert varð úr samningum og sagðist Sævar ætla að hugsa næsta leik vandlega heima, en KA vill fá hann sem þiálfara og leikmann. ■ ÖMAR Torfason og Bjarni Sigurðsson vom ekki á æfíngunni í gær. Þeir komust ekki með hópn- um til Moskvu vegna leikja með Guðmundur Stalnsson vissi ekki fyrr en hann var kominn til London hvort hann færi til Sovétríkjanna eða ekkil félagsliðum sínum, en lentu í Sim- feropol seint í gærkvöldi ásamt Steini Halldórssyni, stjómar- manni KSÍ. Þeir áttu að koma í beinu flugi um sjöleytið en áætlun- inni var breytt, taka þurfti upp farþega á leiðinni, og seinkaði ferð þeirra um fjóra klukkutíma fyrir vikið. ■ LÁRUS Guðmundsson lék loks með Kaiserslautem um helgina er liðið vann Blau Weiss Berlin í bikarkeppninni og átti afleitan dag, að eigin sögn, eins og reyndar allt liðið. Lárus hefur lítið fengið að leika með liðinu og ekki em líkur á að það breytist á næstunni. Bæði vegna þess að hann lék ekki vel þegar hann fékk tækifærið og eins vegna landsleiksins á morgun. Lár- us missir úr æfíngar alla þessa viku og á jafnvel á hættu að detta út úr hópnum fyrir nsæta leik. ■ SAGT er að mikill rígur sé á milli Akureyrarfélaganna Þórs og KA en sá rfgur er ekki til staðar á milli landsliðsmanna félaganna. HaUdór Áskelsson og Þorvaldur Örlygsson em saman á herbergi á Hotel Moskva hér í Simferopol og fer vel á með þeim, eins og vera ber þjá leikmönnum í sama liði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.