Morgunblaðið - 27.10.1987, Blaðsíða 4
4 B
jMorgnnMnMa /ÍÞRÓTTIR ÞRŒMJDAGUR 27. OKIÓBER 1987
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ í SVISS
Austur-Þjódveijar
sigruðu á mótinu
íslendingar í öðru sæti eftir tvo sigurleiki
Island varð f öðru sæti á eftir
Austur-Þýskalandi á fjögurra
þjóða mótinu í handknattleiks sem
lauk f Sviss á sunnudaginn. íslend-
ingar unnu Svisslendigna á laugar-
daginn, 19:18 og Austurríki á
sunnudaginn með 27 mörkum gegn
23 en töpuðu fyrir Austur-Þjóðveij-
um í fyrsta leiknum á föstudags-
kvöldið, 22:24.
Austur-Þjóðverjar tryggðu sér sig-
ur í mótinu er þeir unnu Svisslend-
inga f hörkuleik, 17:16, á
sunnudaginn. Að sögn Guðjóns
Guðmundssonar, liðsstjóra íslenska
liðsins, voru Svisslendingar óheppn-
ir að vinna ekki Austur-Þjóðveija
því þeir hafi verið yfír nánast allan
leikinn. Staðan í hálfleik var jöfn,
9:9. A-Þjóðveijar skoruðu síðasta
markið á lokasekúndunum.
„Þetta var fyrsta og fremst æfínga-
mót og markmiðið var að vinna tvo
leiki og það tókst," sagði Guðjón.
„Úrslitin f mótinu skipta í sjálfu sér
ekki máli. Aðalatriðið er að strák-
arnir komi saman og leiki saman.
Við sjáum það eftir þessa keppni
að við eigum góða möguleika á
móti þeim bestu þó svo að liðið
hafí ekki komið saman sfðan f sum-
ar. Við verður að undirbúa okkur
vel fyrir hvert mót sem við tökum
þátt í.
Stefnan er að standa sig á Ólympíu-
leikunum og það er jú það sem
skiptir máli. Strákamir eiga erfítt
verkefni fyrir höndum en þeir eru
allir staðráðnir í að leggja sig alla
fram. Það er liðin tíð að ekki sé
reiknað með okkur í toppbarát-
tunni,“ sagði Guðjón.
Keystone
Frá slgurlelknun> gegn Svisslendingum á laugardaginn. Það er René Barth
(númer 10) sem stekkur inn í teiginn, en Þorgils CÍttar Mathiesen, fyrirliði
íslenska landsliðsins, sem stöðvar hann. Aðrir á rnyndinni eru, frá vinstri:
Martin Rubin, Alfreð Gfslason, Roger Keller og Gair Sveinsson.
Siggi
Sveins
fórá
kostum
- er íslendingar
sigruðu Austur-
ríkismenn í
síðasta leiknum.
Islendingar unnu Austurríksmenn
nokkuð auðveldlega, 27:23, í
síðasta leik sínum á mótinu í Sviss
á sunnudaginn. Staðan í leikhléi var
12:10 fyrir ísland. Sigurður Sveins-
son átti stórleik og skoraði alls 8
mörk með langskotum.
Lokastaðan
Úrslit í landsleikjunum f hand-
knattleik í Olten í Sviss voru
þessi:
Igland — A-Þýskaland....22:24
Sviss — Austurrfki......18:18
A-Þýskaland — Austurríki ....26:16
Sviss — ísland...._................18:19
Austurrfld — Island................28:27
Sviss — A-Þýskaland.....16:17
Lokastaðan:
A-Þýskaland...8 8 0 0 67:54 6
fsland...........8 2 0 1 68:65 4
Sviss............8 1 0 2 52:49 2
Austurrfld.......8 0 0 8 52:71 0
íslenska liðið átti í basli með Aust-
urríkismenn í fyrri hálfleik sem var
nokkuð jafn. Sjálfsagt hafa íslensku
strákamir vanmetið Austurríkis-
mennina og það kann ekki góðri
lukku að stýra.
í seinni hálfleik tóku svo íslending-
ar af skarið og náðu fljótlega fímm
marka forskoti og héldu því út leik-
inn. Sigurinn var aldrei í hættu í
seinni háifleik og slökuðu íslensku
strákamir á undir lokin.
Sigurður Sveinsson blómstraði í
þessum leik. Hann skoraði alls 8
mörk. Mörg þeirra vom stórglæsi-
leg og kunnu áhorfendur vel að
meta þmmuskot hans. Kristján
Arason lék einnig vel. Alfreð Gísla-
son, Bjami Guðmundsson og
Guðmundur Hrafnkelsson hvíldu í
þessum leik.'
Mörk íslands: Sigurður Sveinsson
8, Kristján Arason 7, Þorgils Óttar
4, Júlíus Jónasson 3, Karl Þráinsson
3, Sigurður Gunnarsson og Páll
Ólafssoii eitt mark hvor.
Sterkir í vörninni
Geir Sveinsson, Bjami Guðmundsson (4) og Krislján Arason reyna hér að stöðva eina svissnesku skyttuna, Alex Ebi, f leik þjóðanna á laugardagskvöldið í
Aarau. Númer 10 René Berth.
Góður endasprettur
nægði gegn Sviss
Leikur íslands og Sviss, sem
fram fór á laugardaginn, var
mjög jafn og spennandi allan
tímann. Sviss hafði þó oftar foryst-
una og leiddi í hálfleik, 11:9. En
íslendingar áttu góðan endaspreftt
og stóðu uppi sem sigurvegarar,
skomðu 19 mörk gegn 18.
Svisslendingar vom staðráðnir í því
að vinna ísiendinga loks eftir sjö
ár og lögðu allt f leikinn. Þeir byij-
uðu vel og vom 2 - 3 mörkum yfír
í fyrri hálfleik.
í síðari hálfleik kom Einar Þorvarð-
arson í markið fyrir Guðmund
Hrafnkelsson sem stóð í markinu í
fyrri hálfleik. Einar varði mjög vel
í seinni hálfleik, alls 8 skot. Þessi
frammistaða Einar hjálpaði fslenska
liðinu til að jafna og sfðan vinná
leikinn með einu marki.
Leikurinn var vel spilaður af beggja
hálfu. Svisslendingum hefur farið
mikið fram og em nú með geysilega
sterkt lið. Þeir hanga mikið á bolt-
anum í sókninni og reyna að nýta
þær, enda er skor þeirra mjög lágt.
„Það var mikilvægt fyrir okkur að
halda boltanum og gera eins fá
mistök og okkur var frekast unnt.
í fslenska liðinu er valinn maður f
hveiju rúmi og breiddin mikil,"
sagði svissneski þjálfarinn, eftir
leikinn.
Einar Þorvarðarson og Guðmundur
Guðmundsson stóðu sig best
íslensku leikmannanna í þessum
leik.
Mttrk fslands: Þorgils óttar Mathiesen 5,
Guðmundur Guðmundsson 4, Bjami Guð-
mundsson 8, Alfreð Gfslason 8, Sigurðu
r\________o___Tr__A »nonn 1