Morgunblaðið - 27.10.1987, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.10.1987, Blaðsíða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987 FIMLEIKAR KVENNA / HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í HOLLANDI Reuter SigurgleAi Reuter Nýbökuðum heimsmeistara í flölþraut kvenna, Aurelíu Dobre, er hér hampað af þjálfara rúmenska landsliðsins eftir að ljóst var að hún hafði sigrað á HM í Rotterdam. Sigurgleðin leynir sér ekki í svip þeirra. Á innfelldu myndinni efst til vinstri sést Aurelia Dobre í æfingu á jafnvægisslá sem hún hlaut einkunnina 10.00 fyrir. Á myndinni hér til hliðar má svo sjá Kristie Phillips helsta von bandaríkjamanna á HM, en hún komst ekki í fjölþrautarúrslitin. Rúmensku stúlkumar unnu flokkakeppnina Hin unga Aurelia Dobre frá Rúmeníu sigraði óvænt ífjölþraut RÚMENSKU stúlkurnar stöðvuðu margra ára langa sigurgöngu sovóska liösins þegar þœr unnu upp forskot sovésku stúlknanna úr skylduœfingunum og sigruAu aA lokum meA 0.45 stiga mun. ÞaA er mjög sterkt HA sem þœr hafa um þessar mundir, meA hina margreyndu Ekaterinu Szabo sem fyrirliAa, Evrópumeistar- ann Danfelu Silivas, Eugeniu Golea, Cameliu Voinea og, síAast enn ekki sfst, nýbakaAann heimsmeistara í fjölþraut kvenna, Aureliu Dobre. Eg er yfir mig hamingjusöm," sagði Aurelia Dobre, sem verð- ur 15 ára í næsta mánuði, þegar hún hafði tekið við gullverðlaunun- ggm um ásamt félögum Jónas sínum í rúmenska Tryggvason liðinu. Sovéski skrifar landsliðsþjálfarinn, Andrei Rodionenko, kenndi reynsluleysi um þegar hann var spurður um ástæður fyrir ósigri sovésku stúlknanna. „Þetta er yngsta sovéska liðið sem hefur keppt á HM,“ sagði hann. Au8tur-Þjóðverj ar komu svo í þriðja sætið eins og í karlakeppninni, með mjög jafnt lið. Það má geta þess að 15 efstu stúlkur í liðakeppninni komu eingöngu frá þessum 3 lönd- um. Fjölþraut Keppnin í flölþraut var mjög spenn- andi og kunnu hinir fjölmörgu áhorfendur, sem fylltu Ahoy Arena íþróttahöllina í Rotterdam, það vel að meta. Aurelia Dobre, sem hafði forystu í forkeppninni, gaf ekkert eftir og sigraði örugglega með einni hæstu einkunn sem hefur sést í fím- leikum, 39.875 (10.00,9.975,9. 925,9.975). Aurelia er ekki alveg óþekkt í fímleikaheiminum því fyrir rúmu ári síðan deildi hún þriðja sætinu á EM unglinga í Karlsruhe ásamt Aleftinu Pijakhinu. Elena Shushunova (Sovétríkjunum) varð í öðru sæti í fjölþrautinni um helg- ina og hlaut 10.00 fyrir gólfæfing- ar, en eingöngu voru tvær tíur í Qölþrautarúrslitunum. Evrópu- meistarinn frá því í vor, Daníela Silivas, varð svo í þriðja sæti. Hin efnilega Svetlana Baitova (Sov- étríkjunum) varð í 4. sæti, og landi hennar, heimsmeistarinn síðan 1985, Oksana Omelianchik, lenti í 5. sæti. Þijár a-þýskar stúlkur komu svo í 6. - 8. sæti og þeirra á meðal hin reynda Martina Jentsch. Ekaterina Szabo (Rúmeníu) sem var í 5. sæti fyrir fjölþrautina hafn- aði í því 14. eftir heldur slaka. frammistöðu. Laura Munjos sem sigraði á Reykjavík Invitational í mars síðastliðnum, var í 18. sæti fyrir úrslitin en ég hef ekki frétt um lokastöðu hjá henni. ÚrslK á áhöldum Stúlkur frá Sovétríkjunum, Rúm- eníu og A-Þýskalandi hirtu öll verðlaunin fyrir einstakar æfíngar. Silivas og Shushunova sýndu full- komnun þegar þær deildu með sér gullverðlaununum fyrir gólfæfíng- ar, báðar hlutu 10.00 og höfðu 10.00 fyrir úr liðakeppninni. Stökk Shushunova var í góðu formi og sýndi mikla ró þegar hún sigraði af öryggi í úrslitum í stökki. Rúm- ensku stúlkumar Eugenia Golea og Aurelia Dobre komu næstar. Dobre hafði hlotið 10.00 fyrir stökkið sitt daginn áður en Golea hafði af henni silfrið. Tvfslá Daníela Silivas og Doerte Thumml- er (A-Þýskalandi) urðu efstar og jafnar með 19.925 og aftur keyrði Shushunova af stakri ró og lenti í 3. sæti. Dobre og Baitova komu svo í fjórða sæti. Jafnvæglsslá Aurelia Dobre hlaut 10.00 fyrir æfinguna sína á slánni og þar með gullið. Shushunova er iðin við kol- ann og tók silfrið hér þó svo að hún hafi verið í 4. - 5. sæti fyrir úrslit- in. Gamla kempan Szabo deildi bronzinu með Evrópumeistara ungl- inga síðan í fyrra, Svetlönu Bog- inskaja. Gótfaafingar Eins og fyrr sagði hlutu þær Shus- hunova og Silivas 20.00 samtals í gólfæfíngum. Aurelia Dobre kom svo í þriðja sæti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.