Morgunblaðið - 27.10.1987, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 27.10.1987, Qupperneq 10
10 B jH«rgmrf>IaÍii»> /IÞROTTIR ÞMÐJUDAGUR 27. OKIÓBER 1987 KNATTSPYRNA / ENGLAND OG SKOTLAND LIVERPOOL er enn ósigrað í ensku 1. deildinni fvetur. Liðifi lagði Luton að velli, 1:0, á gervigrasvellinum í Luton á laugardaginn. Liverpool tapaði tvívegis þar ífyrra, bæði í deild og bikar, og þvf var sigurinn sætur um helgina. Það var mið- vörðurinn Gary Gillespie sem skoraði eina mark leiksins. Þetta var þvf fyrsti leikurinn þar sem John Aldridge nær ekki að skora, eftir að hafa verið f byrjunarliði Liverpooll QPR vann einnig, og heldur öðru sætinu. í Skotlandi treysti Hearts stöðu sfna á toppnum. Aberdeen og Rangers mættust f úrslitaleik skosku deildarbik- arkeppninnar og tryggði Rangers sér bikarinn þrátt fyrir að í liðið vantaði Graeme Sou- ness, Terry Butcher og mark- vörðinn Chris Woods. Þeir voru allir f banni. Staðan var 3:3 eft- ir venjulegan leiktfma, en Rangers vann f vítaspyrnu- keppni. Það kom nokkuð á óvart að Ray Houghton, sem Liverpool keypti á dögunum frá Oxford, var strax í b)njunarliðinu. Craig Jo- hnston var settur út. Frá Bob Houghton stóð sig Hennessy nokkuð vel, sem og lEnglandi aðrir leikmenn liðs- °8Reu,er ins. Segja má að sigur Liverpool hafí verið sann- gjam, en þó var iiðið heppið því Luton fékk mjög góð færi. Til dæm- is átti Mick Harford hörkuskalla sem small í þverslá Liverpool- marksins aðeins fáeinum andartök- um áður en dómarinn blés til leiksloka. Áður hafði hann skotið í stöng og Ashley Grimes og Brian Stein klúðrað góðum fórum. Eina markið skoraði miðvörðurinn Gary Giilespie á 72. mín. með skalla eft- ir homspymu John Bames. Enn skorar Fonwtck Terry Fenwick, fyrirliði QPR, gerði sigurmark liðsins gegn Portsmouth fímm mín. fyrir leiksiok. Hann skor- Darren Jackson en Cyrelle Regis gerði eina mark Coventry. Jafnaði 1:1. Fyrsta mark Rlchardson Kevin Richardson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Arsenal á laugardaginn sfðan hann Var keyptur frá Watford í síðasta mánuði. Hann skoraði gegn Derby eftir aðeins 56 sekúnd- ur og bakvörðurinn Mitchell Thomas bætti öðm við á 10. mín. úr vítaspymu. Sex mín. síðar minnkaði Ándy Gamer muninn fyr- ir nýliðana og þar við sat. Litlu munaði að Derby jafnaði í lokin, en John Lukic varði þá meistaralega skot Nigel Cailaghan. Martin Foyle og Dean Saunders gerðu mörk Oxford í 2:1 sigri á Charlton. Mark síðamefnda liðsins gerði Andy Jones. Mark Reid, bak- vörður Charlton, var rekinn útaf í leiknum. Þá er ógetið leiks Sheffíeld Wednes- day og Norwich. Wednesday sigraði loks og skoraði Nigel Pearson eina markið í 1:0 sigri. Bikarinn tll Rangers Það var mikil spenna á Hampden Park þar sem úrslitaleikur skosku deildarbikarkeppninnar fór fram. 71.961 áhorfendur sáu Rangers vinna sigur í vítaspymukeppni. Eft- ir 90 mínútur var staðan 3:3. Jim Bett skoraði fyrst fyrir Aberdeen úr vítaspymu eftir níu mínútur en Davie Cooper og Ian Durrant svör- uðu fyrir Rangers. John Hewitt jafnaði 2:2, og Willie Falcner kom Aberdeen yfír á ný, 3:2. Þá vom aðeins átta mín. til leiksloka en sá tími dugði Rangers — þremur mín. síðar jafnaði Robert Fleck. Ekkert var skorað í framlengingu og því gripið til vítaspymukeppni og þar vann Rangers 5:3. Bett, Peter Weir og Hewitt skomðu allir fyrir Aberdeen en Peter Nicholas skaut yfír. Jim Leighton, markvörður Aberdeen, þurfti hins vegar að ná í knöttinn fímm sinnum í mark sitt — Ally McCoist, Davie Cooper, Fleck, Trevor Francis og Durrant skomðu hjá honum. Plcat hðSttlir Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson David Pleat, framkvæmdastjóri Tottenham Hotspur, sagði upp starfí sínu á föstudaginn. Hér er hann, til vinstri, ásamt Howard Wilkinson, stjóra Sheffíeld Wednesday, eftir leik liðanna á White Hart Lane í London fyrir skömmu þar sem Tottenham vann 2:0. Þegar myndin var tekin þótti Wilkinson valtari í sessi en Pleat en sá stðamefndi er nú atvinnulaus. aði þá beint úr aukaspymu frá vftateig — glæsimark. Þetta var þriðja mark í fímm leikjum, en hann leikur í vöminni. John Byme gerði fyrra mark QPR á 14. mfn. en Ian Baird jafnaði á 58. mín. Portsmo- uth var betra liðið í leiknum og var nær því að skora en QPR, þar til í lokin er Fenwick tryggði sigurinn. Alan Ball, stjóri Portsmouth, var í sviðsljósinu eftir leikinn. Hótaði þá að segja af sér, en vildi ekki segja hvers vegna. Sagði ástæðumar per- sónulegar og vildi ekki ræða þær frekar. Pleathættur David Pleat, stjóri Tottenham, sagði starfí sfnu lausu á föstudaginn og á laugardaginn steinlá liðið í Nott- ingham gegn Forest. Franz Carr, Neil Webb og Nigel Clough skoruðu í 3:0-sigri Forest. Heimamenn léku mjög vel og Lundúnabúamir áttu ekki mikla möguleika. David Pleat hefur átt í erfiðleikum í haust vegna frétta um einkalíf hans í ensku slúð- urblöðunum og talið er að það sé ástæðan fyrir uppsögninni. Líkleg- ur eftirmaður hans er talinn Terry Venables, sem þar til um daginn var stjóri hjá Barcelona á Spáni, en hann lék einmitt með Tottenham þegar liðið var upp á sitt besta. Á sunnudaginn gerðu West Ham ogManchesterUnitedjafntefli, 1:1, á Upton Park í London. Á lokasek- úndum fyrri hálfleiks komst United yfír. Colin Gibson tók aukaspymu, skot hans lenti í vamarmanni, breytti um stefnu og skaust í netið. Ray Stewart jafnaði svo með marki úr vítaspymu á 57. mín. eftir að Mark Ward hafði verið felldur í víta- teignum. Everton vann öruggan sigur á Watford, 2:0. Framhetjamir Adrian Heath og Graeme Sharp gerðu mörkin. Þá vann Southampton ör- uggan sigur, 3:0, á Chelsea á heimavelli sínum. Mörkin komu öll á sex mín. kafla í seinni hálfleik, það fyrsta á 69. mín. og það síðasta á 75. mín. Þau gerðu Graham Ba- ker, Colin Clarke og Danny Wallace. Newcastle kom mjög á óvart með því að vinna öruggan sigur í Co- ventry. Mörk þeirra röndóttu gerðu Paul Goddard, Paul Gascoigne og Loks sigraði Uverpool á gen/igrasinu í Luton Litlu munaði að Mick Harford jafnaði í iokin — átti þrumuskalla í þverslá Liverpool-marksins BELGÍA íslendingalið- in töpuðu bæði Anderlehct lá heima gegn nýliðunum „ÍSLENDINGALIÐiN" töpuðu bæði f belgísku 1. deildinni í knattspyrnu um helgina. And- erlecht fyrir nýliðum f deildinni en Winterslag fyrir Antwerpen, sem er eitt á toppnum. Anderlecht tapaði mjög óvænt fyrir St. Tmiden, liði sem kom upp úr 2. deild í vor, á heimavelli sfnum um helgina. Leikurinn fór 0:1 og skoraði Agt- en markið á 53. mín. Óvíst var fyrir leik- inn hvort Amór Guðjohnsen yrði með Anderlecht þar sem hann meiddist í Evrópuleiknum gegn Sparta í Prag í miðri viku. Kappinn lék þó og var með allan tímann. Guðmundur Torfason og félagar í Winterslag máttu þola stórtap á heimaveili, 1:5, fyrir Antwerpen. Jansen skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Winterslag á 27. mín. eftir góðan undirbúning Van Rooy og Guðmundar. En eftir það fór Ant- werpen í gang og vann öruggan sigur. Antwerpen er nú eitt á toppn- um með 19 stig eftir 12 leiki, Mechelen og FC Brugge koma næst m eð 18 stig og þar á eftir fylgja Anderlecht og FC Liege með 17 stig. Winterslag er í 13. sæti með 8 stig. ■ Úrsllt/BIS. ■ Staðan/BIB. Frá Bjarna Markússyni iBelgíu VESTUR—ÞYSKALAND / BIKARKEPPNIN Köln úr leik! Reuter Thomas Allofs, leikmaður 1. FC Köln, f leiknum gegn áhugamannalið- inu Viktoria um helgina. Það er vamarmaðurinn Aulbaeh sem reynir að komast í veg fyrir hann. Lið Kölnar, sem er taplaust í 1. deildarkeppninni og hefur leik- ið mjög vel í vetur, var slegið út úr bikarkeppninni á laugardaginn. Áhugamannaliðið Frá Viktoria frá Ashaff- Jóhannilnga enburg sigraði þá Gunnarssyni Kölnar-liðið 1:0. / Þyskalandi U(Jo tækni. legur ráðgjafi Kölnar-manna, verður því að setja bláu peysuna frægu í þvottavél. Hann hefur mætt í sömu peysunni á alla leiki liðs síns í vetur og sagðist ekki þvo hana fyrr en leikur tapaðist. Aðalleikur helgarinnar var viður- eign Borussia Mönchengladbach og Bayem Miinchen. Honum lauk með jafritefli, 2:2, og verða liðin því að mætast að nýju. Sá leikur fer fram í Miinchen. Michael Rummenigge náði forystunni fyrir Bayem á 70. mín. — skallaði þá knöttinn í netið eftir aukaspymu Brehme. Hoch- statter jafnaði átta mín. síðar og staðan var 1:1 eftir venjulegan leiktíma. Á sjöunda mín. í fyrri hálfleik framlengingar kom Dorfner Bayem yfír á ný, skallaði í netið eftir homspymu Brehme, en aðeins þremur mín. síðar jafnaði Gunter Thiele, sem hafði komið inn á sem varamaður. Thiel skallaði í mark eftir fyrirgjöf frá vinstri. Sigur áhugamannaliðsins Viktoria á Köln var ekki ósanngjamt. Eina mark leiksins var skorað á 83. mín. Höfer skallaði í mark eftir fyrirgjöf frá hægri kanti. Köln sótti stíft í lokin, Daninn átti m.a. skot í þverslá en liðið náði ekki að skora. Láms Guðmundsson lék fyrsta klukkutímann með Kaiserslautem gegn Blau Weiss Berlin í 4:3-sigri liðs síns. Hann náði ekki að skora, en Allievi, sem kom inn á fyrir Láms, skoraði hins vegar tvö mörk. Kohr og Hartmann gerðu hin mörk liðsins. Atli Eðvaldsson lék ekki með Uerdingen er liðið sigraði Hert- ha Berlin. Kuntz skoraði bæði mörk Uerdingen í 2:1 sigri. ■ Úrsllt/B15.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.