Morgunblaðið - 27.10.1987, Page 11

Morgunblaðið - 27.10.1987, Page 11
/IÞROTTIR ÞRWJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987 B 11 Morgunblaöiö/Bemharö Valsson Domlnlque Rochotau, framheijinn kunni í liðið Toulouse, sækir að marki París SG í leik liðanna fyrr í vetur. Til hægri er William Ayache. Toulouse gerði markalaust jafntefli við Auxerre um helgina, en PSG tapaði enn einum leiknum og þjálfarinn var látinn fara. KNATTSPYRNA / FRAKKLAND ÞjáKari París SG rekinn um helgina MÓNAKÓ er enn á toppnum í frönsku 1. deildinni eftir sigur, 2:1, ítoppslagnum gegn Nant- es. En ParísarliAin voru bæði í sviðsljósinu um helgina, PSG rak þjálfara sinn vegna slæms gengis og þjálfari Racing gerAi sér lítiA fyrir og tók tvo bestu leikmenn liAsins undanfarin út af eftir aðeins 25 mínúturl Frá Bemharð Valssyni iFrakklandi Það hefur fátt gengið svk. áætl- un hjá Paris Saint Germain það sem af er þessu keppnistímabili. í stað þess að rétta úr kútnum og vera í hópi þeirra fremstu situr liðið nú í 16. sæti deildar- innar og hefur tapað 9 leilqum af þeim 16 sem búnir eru. Til að ráða fram úr þessum vandræðum var stjómar- fundur hjá félaginu á sunnudaginn þar sem ákveðið var að þjálfarinn Gerard Houiller, sem gerði liðið að deildarmeisturum fyrir tveimur árum, skildi láta eftir stöðu sína til Erik Momiaerts, en sá hefur verið aðstoðarmaður Houiller undanfarin ár. Það sem lfklegast hefur fyllt mælinn hjá forráðamönnum félags- ins er að á laugardaginn tapaði PSG 2:0 á heimavelli gegn Metz. Leik- menn Parísarliðsins voru sem á nálum og eftir að Micciche hafði skoraði 1:0 fyrir Metz á 20. mínútu hrundi leikur liðsins endanlega til grunna. Það var því án vandræða sem Zenier inn'siglaði 2:0 sigur Metz í seinni hálfleik. í toppbarát- tunni hafði Mónakó betur gegn Nantes, 2:1. Leikmenn Mónakó sýndu í þessum leik að þeir geta leikið fast þegar þess þarf með, þeir tóku í upphafí leiks vel á móti Nantes og náðu með því að bijóta niður allt leikskipulag liðsins. Fyrra mark Mónakó kom á 12. mínútu er Hoddle sendi boltann á Sonor sem skoraði auðveldlega. í seinni hálfleik bætti Ferratge við öðru marki eftir sendingu frá Amoros. Það var skotinn Mo Johnston í liði Nantes sem minnkaði muninn á 75. mínútu. Það má segja að leikur Bordeaux og St. Etienne hafí einungis staðið yfír í 90 sekúndur en ekki 90 mínút- ur. Bordeaux hóf leikinn með látum og eftir eina og hálfa mínútu skor- aði Ferreri, besti maður liðsins, fallegt mark. En við þessa góðu byijun var vindurinn úr liðinu og það sem eftir var leiksins gerðist fátt markvert utan skemmtilegra tilþrifa Ferreri. Nýliðamir þrír voru heldur betur í essinu sínu um helgina og er knatt- spymuáhugamönnum nú orðið ljóst að velgengni liðanna er ekki einung- is tímabundin heppni. Niort sigraði Marseille 1:0 og batt þar með endi á langa sigurgöngu liðsins. Bour- doncie skoraði fyrir Niort á 6. mín. Montpellier, sem hefur endurheimt fyrirliða sinn, Blanc, burstaði Nice 4:1, og Cannes fór illa með Racing París í 3:l-sigri. Það vakti mikla athygli að á 25. mínútu tók þjálfari Racing, Portúgalinn Arthur Jorge, þá Luiz Femandes og Ben Mabro- uck útaf, en þeir hafa verið bestu menn liðsins undanfarið. Er blaða- menn spurðu Jorge hvers vegna hann hefði gert þetta svaraði hann því til að ekki væri hægt að taka ellefu leikmenn út af og því hefði hann einungis tekið þessa tvo. ■ Úrsllt/B16. ■ 8taAan/B16. SPÁNN Sex stiga forskot Real REAL Madrid burstaAi Valenc- ia, 4:0, um helgina og hefur nú sex stiga forystu f 1. deildar- keppninni á Spóni. Real hefur nú unniA fyrstu átta leiki sína f deiidinni, leikur frábæra knattspyrnu, og ekkert virAist geta stöAvaA liAiA. Real hefur. skorað 32 mörk í leikjunum átta en aðeins feng- ið 2 á sig. Uppselt var á leikinn, 90.000 manns tróðu sér inn á Bamabeu-leikvanginn og sáu mexí- kanska framheijann Hugo Sanchez, vamarmanninn Manuel Sanchis og miðvallarleikmennina Michel Gonzales og Rafael Martin Vazques skora sitt markið hvem. Valencia byijaði af krafti en það stóð ekki lengi yfír, leikmenn Real „skiptu um gír“ og unnu ömggan sigur. Þess má geta að þjálfari Valencia er Alfredo di Stefano, sem á sínum tíma var einn besti knattspymu- maður heims — stjómaði þá einmitt leik Real Madrid á sjötta áratugn- um. Á sama tíma og Real hélt áfram sigurgöngu sinni gekk keppinaut- um liðsins ekki eins vel. Átletico Madrid gerði markalaust jafntefli við Real Sociedad og þar var lands- liðsmarkvörðurinn fyrrverandi Luis Arconada í aðalhlutverkinu. Hann stendur nú í marki Sociedad og varði hvað eftir annað mjög vel frá leikmönnum Madrid-liðsins. At- letico Bilbao tapaði 0:1 á útivelli gegn Real Valladolid. Þá gerði Barcelona aðeins jafntefli um helgina, 2:2, á heimavelli gegn Real Mallorca. Barcelona lék raunar mjög vel að þessu sinni en uppskar þó aðeins eitt stig. Leikurinn þróað- ist meira að segja þannig að það var Barcelona sem jafnaði 2:2. Enski landsliðsframheijinn Gary Lineker skoraði sitt fyrsta mark deildarmark fyrir liðið í vetur sjö mín. fyrir hlé, en Marokkóbúinn Feddi Hassan jafnaði í byijun síðari hálfleiks. Miguel Nadal náði síðan forystu fyrir Mallorca-liðið en fimm mín. fyrir leikslok náði Gerardo að jafna. Markið var reyndar umdeilt, leikmenn Mallorca urðu æfír af reiði yfír því að dómarinn skildi ekki dæma Gerardo rangstaðan. En markið stóð og Barcelona náði því í eitt stig. PORTUGAL Portógefur ekkert eftir EVRÓPUMEISTARAR Portó leika vel þessa dagana. LiAiA hefur nú fjögurra stiga forystu í portúgölsku 1. deildinni eftir 2:0-sigur á Maritimo um helg- ina. Alsírbúinn Madjer og Sousa gerðu mörk Porto í auðveldum sigri. Porto hefur 15 stig og síðan koma sex lið með 11 stig, þar á meðal Benfica, sem sigraði 1:0 í Panafíel og virðist loks vera að ná sér á strik. Benfica er portúgalskur meistari, en hefur byijað illa í haust. Það var Brasilíumaðurinn Vanda sem gerði eina markið á 27. mín. Penafíel var taplaust í vetur. Sama er að segja um Sporting Lissabon — liðið hafði heldur ekki tapað leik og tapaði, öllum á óvart, á heimavelli gegn Warzim. Sporting sótti miklu meira en var samt 0:2 undir í leikhléi! Á 71. mín. náði lið- ið svo að minnka muninn en þrátt fyrir mikla pressu tókst því ekki að jafna. ■ Úrsllt/B16. ■ StaAan/B15. SVISS Sigurður skoradi í fyrsta leik eftir langa Ijarveru Ómar Torfason skoraði þrennu fyrir Olten í stórsigri á Old Boys í 2. deild Sigurður Grétarsson lék á sunnudaginn sinn fyrsta knattspymuleik með Luzem síðan 22. ágúst og skoraði fyrsta mark Ieiksins er Luzem Fráönnu lagði topplið sviss- Bjamadóttur nesku knattspym- /Swss unnar, Grasshopp- ers, 2:1. Sigurður skoraði á 6. mfnútu. Hann fékk fyrirgjöf af hægri kanti og þramaði boltanum í autt markið. Bæði liðin sóttu fast frá upphafí og leikurinn var hraður og spennandi. Luzem skoraði annað mark' leiksins eftir upphlaup á vinstri kanti á 34. mínútu. Eftir það bætti Grass- hoppers þriðja manni fremst í sóknina og tókst loks eftir mörg miáheppnuð tækifæri að skora mark nokkram sekúndum fyrir hálfleik. Luzem átti betri leik og sigraði sanngjamt. Þar sem Grasshoppers tapað er Xamax nú í efsta sæti. Tæplega 15.000 manns mættu á völlinn í Luzem. Liðinu gekk illa í upphafi deildarkeppninnar en hefur staðið sig betur að undanfömu og er nú í 8. sæti í keppninni. Nýtt fyrl rkomulag Svissnesku deildarkeppninni er nú þannig háttað í fyrsta sinn að liðin 12 sem eru í 1. deildinni keppa inn- byrðis heima og að heiman fyrir jól um átta efstu sætin og munu þau átta efstu keppa sfn á milli eftir jól. Fjögur neðstu liðin munu hins vegar keppa við efstu liðin í ann- arri deild í tveimur átta liða riðlum um sætin flögur í fyrstu deild. Það er því mjög mikilvægt fyrir Luzem að hafa komist upp í 8. sæti á sunnudag. Enda sagði Sigurður að liðið hefði unnið „stórsigur.“ Ómar Torfason, sem leikur með Olten í annarri deild, átti frábæran leik á laugardag. Hann skoraði þrennu í seinni hálfleik gegn Old Boys og leikurinn fór 6:2. Olten er í 11. sæti í annarri deild. Baden, gamla lið Guðmundar Þorbjöms- sonar, er í 12. sæti. SlgurAur góður af maiAslunum Sigurður hefur átt við slæm meiðsli á hné að stríða undanfama mán- uði. Hann var skorinn upp í apríl og hluti af liðþófa fjarlægður. Hann var farinn að æfa á fullu fyrir sum- arfrí en hnéð gaf sig í æfingabúðum í Austurlöndum fjær í ágúst. Hann var aftur skorinn og hnéð speglað með tölvutækni og hefur verið að ná sér síðan. „Ég fann ekkert til í hnénu f leikn- um í dag,“ sagði Sigurður eftir leikinn á sunnudag. Hann spilaði í 65 mínútur. „Þetta lftur vel út og ég vona að það sé komið í lag.“ I fjölmiðlum var mikið gert úr því að Sigurður myndi leika aftur með liðinu og voru miklar vonir bundnar við hann. „Það fylgir þessu auðvitað ákveðin pressa," sagði hann. „En ég lifi við það og reyni að gera mitt besta.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.