Morgunblaðið - 04.12.1987, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1987
B 11
JOLADAGSKRAIN
Dagskrá Stöðvar 2 yfir jól og áramót ar nú fullmótuó. Hún
verður kynnt á Stöð 2 nœstkomandi sunnudagskvöld kl.
20.30, en hár er stlklað á stóru yfir það efnl sem Stöðin
býður á um hátfðamar.
Jólastemmningin á Stöö 2
hefst, að sögn Björns Björnsson-
ar, föstudaginn 18. desember
með beinni útsendingu frá tón-
leikum í Langholtskirkju. Á tón-
leikunum verða flutt jólalög, en
flytjendur eru kór Langholtskirkju
ásamt einsöngvurum og hljóð-
færaleikurum.
Innlent efni
Einþáttungurinn „Sá yðar sem
syndlaus er" eftir Valgeir Skag-
fjörð, er fyrsta dramatíska verkið
sem Stöð 2 laetur gera. Höfundur
og Christopher Plummer og
„Back to the Future" eða „Aftur
til framtíðarinnar" , gamanmynd
framleidd af Steven Spielberg
með Michael J. Fox í aðalhlut-
verki. Bíómyndin „Going in Style"
verður einnig sýnd á jóladag.
Meðal þeirra mynda sem sýnd-
ar verða á annan dag jóla eru
tvær myndir með Shirley Temple.
Þær heita „Laumufarþeginn",
(Stowaway) og „Glatt á hjalla",
(Stand up and cheer). Þá verður
einnig sýnd myndin „Paris Tex-
as“, en hún hlaut gullpálmann í
Kolbrún Svelnsdóttlr og Quðjón Arngrímsson kynna Hátí-
Aardagskrána á sunnudag.
er einnig leikstjóri, en Margrét
Ákadóttir, leikkona fer með eina
hlutverkið í leiknum. Leikmynd
og búninga gerði Guðrún Erla
Geirsdóttir, en Gylfi Garðarsson
samdi tónlistina. Dagskrárgerð
annaðist Þorgeir Gunnarsson.
„Sá yðar sem syndlaus er" verður
á dagskrá sunnudaginn 27. des-
ember.
„Jólabörn" nefnist barnaþáttur
sem Stöð 2 lét gera í tilefni jól-
anna. Efni þáttarins er á þá leið
að afi býður ömmu til sín á jólun-
um og þau fara saman í ferðalag
aftur í tímann í leit að hátíðleik
jólanna. Á ferð sinni lenda þau í
ýmsum ævintýrum og hitta marg-
ar kynjaverur. „Jólabörn" verður
frumsýnd á jóladag. Handrit
gerðu Guðrún Þórðardóttir, sem
einnig er leikstjóri, Saga Jóns-
dóttir, Guðmundur Ólafsson og
Maríanna Friðjónsdóttir. Leikarar
eru Örn Árnason, Saga Jóns-
dóttir, Guðmundur Olafsson,
Margrét Ólafsdótti og Eyþór
Árnason. Tónlistina samdi Jón
Ólafsson.
Lokaþáttur „Heilsubælisins í
Gervahverfi" verður sýndur á
gamlárskvöld, en eftir miðnætti
verður sýndur þátturinn „Hana-
stél", með gríni frá liðnu ári.
Á þrettándanum, 6. janúar,
verður sýnd mynd gerð af Hilm-
ari Oddssyni og nefnist hún „Nú
er hún Snorrabúð stekkur".
Myndin er um Þingvelli og tillögur
um framtíðarskipulag þjóðgarðs-
ins.
Bíómyndlr
yflr hátíóarnar
Það er af mörgu að taka í vali
á bíómyndum á Stöð 2 yfir jól og
áramót. Þrjár útgáfur af jólaævin-
týri Charles Dickens verða
sýndar, tvær leiknar myndir og
ein teiknimynd.
Á jóladag verða sýndar mynd-
irnar „Tónaflóð" (The Sound of
Music) með þeim Julie Andrews
Cannes fyrir nokkrum árum. Sam
Shepard skrifaði handritið, en
leikstjóri er Wim Wenders. Harry
Dean Stanton og Natstassja
Kinski eru meðal leikara. Gaman-
mynd fyrir alla fjölskylduna,
„Smokey Mountain Christmas",
með söngkonuna Dolly Parton í
aðallhlutverki er einnig á dagskrá
26. desember.
Á milli jóla og nýárs verða
m.a. sýndar myndirnar „Body
Heat" með William Hurt og Kat-
heleen Turner, James Bond
myndin „Octopussy" „Christmas
Coleman Miracle" með Kurt
Russel og „Blazing Saddles" eftir
leikstjórann Mel Brooks.
Tvær gamanmyndir verða sýndar
á nýársnótt og eru það „Bachelor
Party" og „National Lampoon's
Vacation".
Aðrar myndir í hátíðardag-
skranni eru „Romancing the
Stone" með Michael Douglas og
Kathleen Turner og „St. Elmos
Fire" með Rob Lowe. Mynd Wo-
ody Allens „A Misummer Night’s
Sex Comedy" með honum og
Miu Farrow í aðalhlutverkum
verður sýnd 2. janúar. James
Bond myndin „For Your Eyes
Only'' með Roger Moore verður
síðan á dagskrá á þrettándanum.
Framhaldsþættir
Fastir framhaldsþættir verða á
sínum stað í hátíöardagskránni
og nokkrir nýjir bætast við.
Ný þáttaröð úr framhaldmynda-
flokknum „Lagakrókar", (L.A.
Laws) hefst fyrir jól og einnig
þáttur sem ekki hefur áður verið
sýndur á Stöð 2 og nefnist „Hoo-
perman".
Nokkrir styttri framhaldsþættir,
eða „míníseríur", verða sýndir á
Stöð 2 um jólin. Goði Sveinsson,
dagskrárstjóri sagði að sá háttur
yrði hafður á að sýna hvern þátt
á nokkrum dögum svo áhorfend-
ur þurfi ekki að bíða eftir framhaldi
í heila viku. Þættirnir eru
„Nutcracker" og „Chiefs" frá
Bandaríkjunum, ástralska myndin
„Sword of Honour" og „Out On
a Limb", byggð á samnefndri bók
Shirley MacLaine, en þar leikur
MacLaine sjálfa sig.
Þættirnir sem sýndir verða úr
myndaflokkunum „Klassapiur",
„Hasarleikur" og „Geimálfurinn"
eru allt sérstakir jólaþættir.
Tónlist
Tónlistinn fær sinn skerf á Stöð
2 um jólin og 27. desember verð-
ur sýndur Gala konsert úr Royal
Albert Hall. Söngkonan Kiri Te
Kanawa ásamt söngvurunum Jer-
emy Irons og Warren Mithcell og
Lundúnarsinfóníunni koma fram
á þessum tónleikum. Flutt verða
verk eftir Mozart, Bizet, Verdi og
Puccini og lög úr söngleiknum
„My Fair Lady".
„Leðurblakan", ópera eftir
Strauss verður sýnd 2. janúar,
en stjórnandi er Placido Dom-
ingo. Á nýársdag verða sýndir
tónleikar Alheimssinfóníunnar,
en í henni eru fulltrúar frá 60 lönd-
um. Guðný Guðmundsdóttir
fiðluleikar er fulltrúi íslands.
í íslenska listanum 26. desem-
ber verða eingöngu flutt íslensk
jólalög sem komu út fyrir þessi
jól. Erlendi annáll listans verður
sýndur á gamlárskvöld, en inn-
lendi annállinn 3. janúar.
Á gamlárskvöld verða Prince
Trust tónleikarnir 4. desember
sýndir, en kynnir á þeim er leik-
konan Jane Saymour. Elton John,
Bee Gees og Pointers Sisters eru
meðal þeirra sem koma fram.
Tónlistarþáttur með söngkonunni
Diana Ross verður á dagskrá 3.
janúar, en gestir þáttarins eru
þeir Michael Jackson og Larry
Hagman.
Hlýleg giöf
/
ryrir í.ðyu.- Kronu]
Álafoss værðarvoðir
í fjölbreyttum litum.
Ódýr og skemmtileg gjöf.
Verð frá krónum 1.270,-
/llafossbúðin
Vesturgötu 2, Reykjavík S 13404
ULLARFATNAÐUR, GJAFAVÖRUR, GARN
% ELFA SKAPAREKKAR
OG HILLUR
— nýta plássið og koma á röð og reglu
Ótrúlega sniðug lausn á plássleysi. Á heimilinu, á
vinnustöðum og í bílskúrum.Eigin smekkur ræður
útliti en notkunarmöguleikar eru óteljandi.
RR BYGGINGAVÖKUR HE
Suðurlandsbraut 4, Simi 33331
• • ••
ORKIN/SIA JB ÓSA/SÍA