Morgunblaðið - 17.12.1987, Page 3

Morgunblaðið - 17.12.1987, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987 C 3 er svipuð og verið hefur á fyrri bók- um. Viðamesti kafli bókarinnar fjallar um keppnina í 1. deild þar sem hverri umferð eru gerð skil fyrir sig. Á sama hátt er fjallað um keppnina í 2. deild en þó farið fljót- ar yfir sögu. Þegar fjallað er um 3. og 4. deild er einungis stiklað á því stærsta. Kafli er um kvenna- knattspymuna og kemur þar fram að Víðir _ hefur notið aðstoðar Hjördísar Árnadóttur íþróttafrétta- manns við hann. Sérkaflar eru síðan um bikarkeppni KSÍ, Evrópuleiki félagsliða og leiki allra landsliða íslands í knattspymu. Helsta viðbót við fyrri árbækur er umijöllun Víðis um einstaklinga og lið. Þannig er t.d. kafli um Ian Ross, þjálfara ís- landsmeistara Vals, um Amór Guðjohnsen og Pétur Ormslev auk sérkafla um lið Leifturs frá Ólafs- fírði sem Víðir velur „lið ársins" og geta flestir án efa tekið undir það val hans. Texti bókarinnar býður ekki upp á mikil tilþrif eða stíllistir höfundar. Meginmarkmið bókarinnar er sýni- lega að geyma upplýsingar og úrslit. En þar sem Víðir leggur eitthvað sjálftir til málanna kemur vel fram að hann á auðvelt með að skrifa góðan texta. Hann sparar sér meira að segja hástemmdar lýsingar svo sem þeir sem fjalla um íþróttavið- burði eru gjamir að grípa til. Þegar á heildina er litið verður ekki annað sagt en að „íslensk knattspyma 1987“ sé vönduð bók. Fjölmargar ljósmyndir gefa bókinni aukið gildi og þar, eins og í textan- um, hefur verið lögð mikil vinna í að tína saman myndir úr ýmsum áttum í stað þess að fara auðveld- ustu leiðina. Nokkrar litmyndir em í bókinni, m.a. af öllum er hlutu íslandsmeistaratitil í knattspymu 1987, svo og af kunnum knatt- spymugörpum í hitanleiksins. milli ástar á foreldrum og elskunni til alls og allra baminu erfið, því að hún veit ékki fyrr en löngu síðar, að foreldramir vissu lengra nefi sínu, gamall, vitur hundur hafði vakið gmnsemdir í brjósti þeirra um að leyndarmál væri í kolli dótt- urinnar. Móðirin tók að auka matarskammtinn og pabbinn forð- aðist að spyija þannig, að bamið kæmist í valstöðu milli sannleika og lygi. Höfundur lýsir mjög vel sam- skiptum telpunnar og yrðlingsins, hvemig henni tekst að eyða tor- tryggni hans og hljóta vináttu í staðinn. í sögunni haustar og byssuglaður maður heldur í fyallið í leit að einhveiju til þess að drepa, hittir Grábotna, yrðlinginn, og nýtir sér spekt hans og skýtur. Grátandi situr telpan með vin sinn í faðmi og efa í hug um hvort leikur hennar í sakleysi og fegurð sumarsins sé orsök þessara döpm endaloka. Þannig finnur faðir henn- ar hana. Sagan er vel sögð, mjög vel. Þó fínnst mér að höfundur þurfi að gæta sín á að seilast ekki til of torskilinna orða í bamabók. Böm skilja til dæmis ekki lengur gömlu eyktarmörk dagsins, Þau hefði þurft að skýra neðanmáls. Próförk er ekki nógu vel lesin. Myndir Hans em ákaflega fíngerðar, falla listavel að efni og em því bókarprýði. Prentverk allt mjög vel unnið. Þökk fyrir góða bók. Þykkva&œjm því raatt er fitor jólanna Rauðklæddír jólasveínar setja svip sínn á bæ og borg og bjóða rauðu jólaeplín sín - stórí jólakötturínn setur í örvæntíngu upp rauða slaufu og mínnír þanníg á tílvist sína - já, sumir eíga bágt. Víð hengjum skínandí rauðar jólakúlur á rauðgrenítréð - prýðum jólaborðið með rauðum kertum, berum fram rauða jólahangíkjötíð eða steíkína ásamt rauðkáli og rauðrófúm, e.t.v. rauðum drykk og að sjálfsögðu... .með rauðum Þykkvabae}ar þessum jólajarðeplum sem sjaldan eða aldreí hafa veríð jafn falleg og þétt og núna. Gleðíleg „rauð“ jól! - Þar vex sem vel er sáð - AUK hf. 101,14/SlA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.