Morgunblaðið - 17.12.1987, Síða 6

Morgunblaðið - 17.12.1987, Síða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987 Grafík frán en sagoö Tidigmre var det inte sá vanligt, att svenskar begav siff till Island. Trots att denna sagoA i Atlanten haft en speciell utstrál- ninff i fler hánseenden. Men undantag fanns. Sjál- vaste Albert Engström for dit och rítade och berátta- de dárom i sin bpk Át Hácklefjáll (1913). I vár egen tid ár situationen en annan - Island har blivit nágot av ett turístland. Alltsedan andra várldskri- gets slut har Island med all ratt velat hávda sin ege- nart. Inte minst i kultu- rellt avseende t ex pá kon- stens omriHe, Situationen ár inte unik men ándá lika fascinerande varje gáng. man stálls infor den. Pá Island finns ett riktig kulturarv att förvalta - tánk bara pá den márkliga eddadiktningen. Pá grund av gerografiska isole- ríngen dröjde det ánda in pá tjugo- och trettiotalen, innan impulsema frán vad man kan kalla modern grafik nádde den islándska konsten. Sá var det dags för den nödvándiga och frúktbara dialogen mellan gammalt och nytt, mellan in- nemskt och utlándskt. Den norröna konsten skulle pá all- var tráda in pá den europeiska scenen. Hur resultatet har blivit kan man t ex ta del av pá Kristian- stads lánsmuseum, dár t o m den 4 oktober visas grafik av fem islánningar, tre kvinnor och tvá mán, som stár mitt uppe i deras gáming som ska- pande konstnárer. Jag impo- neras av gruppens tekniska kunnande liksom av friheten och de fyndiga varíationerna i ■itforandet. F.n kvinte'.t grafí- ker vars verk ocksá gör mig ny- fiken. God konst ger alltid mersmak. Expon arrangeras i KrSti'alSláf Sá nágra rader om var och en av dessa islánningai' - för sá- kerhets skull i bokstavsord- ning, áven offl jag tycker, att de tre kvinnoma stár starkast i konstnáriigt avseende. Johanna Bogas litografier i fárg dokumenterar ettsam- band med det dramatiska báde vad gáiler saga och natur pá Is- land. Hennes motiv nármast exploderar fram med en med- ryckande frodighet pá gránsen till mardrömmar eller visioner. Edda Jonsdottir ár mera sofis- tikerad i positiv mening. Hon renodlar sina uttrycksmedel i puristisk riktning pá temat tvá- faldighet. Och den islándska stenen blir till grafiska smyc- ken i de etsade strukturema. Ragnheidur Jonsdottir har av allt att döma den langsta ei- farenheten som grafiker. Det márks ocksá. Jag tánker mi|’ det hela sá, att de eruptiva men ocksá det episka för att inte sa- ga mytologiska i Islands natur tolkas av Ragnheidur med stor inievelse. Men ocksá med dis- tans, som máste till, för atl e.i motivvárld skall kunna gestal- tas pá ett personligt sátt. De trásnitt, som Jens Krist- expressionistiska, sá det Íor slár. Trots det dramatiska ai slaget, har han hela tiden kon troll över sin motivgestaltning Övertonerna stár den nordiska nqturmystiken för. Som alltsá kan trivas ocksá i ett sjcogslöi.t land som Island. Jon Reykdnl Ull sist ár kolorist av renaste vatten. Hans seriegrafier vitt- nar om detta med all önskvárd tydlighet. Dárför bör man inte glömma bort att apostrofera hans suverána och nármast ar- kitektoniska uppbyggnad eller komposiUon av moUven. Tyvárr har jag ánnu ej kun- nat besöka Island. Men is- lándsk grafik frán vár egen tid finns alltsá att byskáda pá v&rt lánsmuseum. Och det ár ju en tröst. bát wig oekaá fá ftátwiann íim BENKT OLÉN Kristianstads lánsmuseum: Fem islándska grafiker, Sam- largrafik: Sven Bunnel. Land I, æting og akvatinta. Grafík frá sögueynni Arngerðareyri við Djúp, djúpskurður. Áður fyrr fóru ekki margir Svíar til íslands þrátt fyrir að ýmislegt hafi þótt heillandi við þessa söguey í Atlantshafínu. Þó voru á þessu undantekningar. Jafnvel Álbert Engström fór þangað og ritaði um ferðina bókina „Át Hácklefjáll" („Frá Heklu“) (1913). En nú eru tímamir breyttir — og ísland orðið allmikið ferðamannaland. Frá lok- um síðari heimsstyrjaldarinnar hafa íslendingar haldið á lofti sérein- kennum sínum, ekki síst á sviði menningar, t.d. í listum. Þetta er ekkert einstakt en alltaf jafnheillandi fyrirbæri. íslendingar eiga ríkan menningararf — þótt ekki sé nefnt annað en hin athyglis- verðu Eddukvæði. Vegna land- fræðilegrar einangrunar landsins var það ekki fyrr en á þriðja og fjórða áratug aldarinnar að áhrifa frá því sem nefna mætti nútíma- grafík fór að gæta í íslenskum listum. Þá loks hófust hin nauðsyn- legu og árangursríku samskipti milli hins gamla og hins nýja, milli innlendrar og erlendrar listar. Nor- ræn list hóf fyrir alvöru innreið sína í Evrópu. Hver árangurinn hefur orðið er t.d. hægt að sjá í lénssafninu í Kristianstad, en fram til 4. október nk. eru þar til sýnis grafíkverk eft- ir fímm íslendinga, þrjár konur og tvo karla, sem standa á hátindi fer- ils síns sem skapandi listamenn. Ég hreifst af tæknilegri kunnáttu fímmmenninganna og einnig ftjáls- legum stíl þeirra og snjöllum stflbrögðum. Þessir fímm grafík- listamenn vekja upp forvitni hjá mér. Góð list verður þess ævinlega valdandi að maður vill meira. Þessi listsýning er haldin í samvinnu við samtök listamanna í Kristianstad. Nokkur orð um sérhvem þessara íslendinga — og til öryggis hef ég þá í stafrófsröð, þó að mér fínnist konumar vera komnar lengra á listabrautinni. Jóhanna Boga vinnur litógrafíur og skráir í litum tengslin við hina átaka- og áhrifamiklu sögu íslands og náttúru. Það liggur við að segja megi að myndefni henni ryðjist fram með hrífandi auðgi sem er á mörkum martraðar eða hugsýnar. Edda Jónsdóttir er heimsborg- aralegri í jákvæðri merkingu. Hún hreinræktar tjáningarmiðil sinn með formfestu og þemað er tvö- feldni. Og íslenskt berg verður að grafískum djásnum í ættum form- um hennar. Ragnheiður Jónsdóttir sýnist mér á öllu að hafi mesta reynslu sem grafíklistamaður. Það er aug- Tvennd, æting. ljóst. Ég tel að Ragnheiður túlki af mikilli innlifun hið ofsafengna og epíska, nánast goðsagnakennda eðli íslenskrar náttúru. Hún heldur sig þó í nokkurri fjarlægð frá henni, svo sem eðlilegt er, til þess að geta skapað sér sitt eigið persónulega myndform. Tréskurðarmyndir Jens Krist- leifssonar eru expressjónískar í meira lagi. En þrátt fyrir drama- tíska drætti hefur hann alltaf stjórn á myndsköpuninni. Yfírbragðið ber vott um dularblæ norrænnar nátt- úru sem einnig er fyrir hendi í skóglausu landi eins og íslandi. Litir eru aðal Jóns Reykdals. Myndraðir hans bera því ljóst vitni. En þó megum við ekki líta fram hjá allsráðandi formunum í mynd- byggingu hans sem minna helst á húsagerðarlist. Því miður hef ég ekki enn kom- ist til íslands. En nú er sem sagt íslensk grafík til sýnis á lénssafninu okkar. Það er þó alltaf huggun í því. Álftir í glergarði, steinþrykk. Öræfaslóð, sáldþrykk. Aðventuhátíð í Stykkíshólmskirlgu Stykkishólmi. FJÓLMENNI var á aðventu- hátíð sem haldin var í Stykkis- hólmskirkju sunnudaginn 13. desember sl. Milli 300 og 400 manns, bæði böm og fullorðnir, mættu til hátíð- arinnar sem hófst með því að Unnur Jónasdóttir flutti nokkur inngangsorð og stjómaði síðan dagskránni. Dagskráin hófst með því að þijár fermingarstúlkur kveiktu á aðventukertunum og fóru með ljóð sem tilheyrðu þess- ari stund. Þá lék Lúðrasveit Stykkishólms undir stjóm Daða Þ. Einarssonar hátíðarlög en í lúðrasveitinni eru nú 38 félagar. Ellert Kristinsson forseti bæjar- stjómar minntist jólahalds gamalla tíma með orðum Stefáns frá Hvítadal. Kirkjukórinn söng undir stjóm Jóhönnu Guðmunds- dóttur en hann skipa nú 40 manns. Bamakórinn söng einnig en í kómum em um 40 börn. Séra Gísli H. Kolbeins flutti síðan hugvekju. Þessi stund var hin hátíðleg- asta. Að lokinni athöfninni í kirkjunni var kaffí og súkkulaði sem sóknarnefnd Stykkishólms- kirkju sá um. Morgunblaðið/Ámi Helgason Lúðrasveit Stykkishólms lék undir stjórn Daða Þ. Einarssonar hátiðarlög.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.