Morgunblaðið - 17.12.1987, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.12.1987, Blaðsíða 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987 Hvað færðu með heita vatninu? eftir Sigríði Lillý Baldursdóttur Ágæti Reykvíkingur, hafðu það hugfast í hvert sinn sem þú greiðir reikning Hitaveitu Reykjavíkur næstu 3—4 árin að einungis hluti hans er gjald fyrir þá orku sem þú færð frá veitunni. í sérhvert sinn sem þú greiðir fyrir orkuna þá mátt þú gjöra svo vel að reiða af hendi fé til byggingar veitingahallar uppi á Öskjuhlíð. Á næsta ári munu að jafnaði 7% af þeim peningum sem þú greiðir hitaveitunni fara í byggingu veitingahúss, 1989 verð- ur hitareikningurinn þinn 14% hærri en ella vegna þessarar veit- ingahallar og 1990 verður styrkur þinn til veitingahússins 6% af hita- reikningum þínum hverju sinni. Veitingahöll Síðastliðinn föstudag ákváðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks, sem skipa meirihluta í stjórn veitustofn- ana, að Hitaveitu Reykjavíkur skuli byggja veitingahöll fyrir 508 millj- ónir á næstu 3 árum. Bygging þessi er í engum tengslum við rekstur eða framkvæmdir hitaveitunnar, því eins og forsvarsmenn hennar hafa margítrekað þarf veitingahöll- in alls ekki að rísa jafnhliða þeim tönkum sem hitaveitan er nú að ljúka við að reisa á Öskjuhlíð og engin ástæða er til að hitaveitan standi fyrir þessum framkvæmdum frekar en einhver annar. Hlutverk Hitaveitu Reykjavíkur Með þessari samþykkt sjálfstæð- ismanna finnst mér Hitaveitu Reykjavíkur vera gert að fara langt út fyrir starfsvið sitt. Því hveijum dettur í hug bygging og ef til vill rekstur veitingahúss þegar hvarflað er huganum til hitaveitunnar? í reglugerð fyrir Hitaveitu Reykja- víkur segir raunar ekkert beint um verksvið hennar. En ég vænti þess „Bygging þessi er í eng- um tengslum við rekst- ur eða framkvæmdir hitaveitunnar, því eins og forsvarsmenn henn- ar hafa margítrekað þarf veitingahöllin alls ekki að rísa jafnhliða þeim tönkum sem hita- veitan er nú að ljúka við að reisa á Öskjuhlíð.“ Sigríður Lillý Baldursdóttir að það sé vegna þess að almennt hafi verið talið augljóst hvert það ætti að vera. Og ég býst við að flest- ir séu þeirrar skoðunar að hennar hlutverk sé og skuli vera öflun heits vatns og feijun þess til notenda á sem næst kostnaðarverði. Vissulega getur skapast sú staða að eðlilegt sé að verðið á heita vatninu fylgi ekki algerlega kostnaði, því miklar sveiflur á gjaldskrá veitunnar geta haft óæskilegar hliðarverkanir. Hitaveitan greiðir árlega arð í borg- arsjóð. Á næsta ári er gert ráð fyrir að arðgreiðslumar verði 126 millj- ónir. Með hækkun eða lækkun þessara arðgreiðslna er hægt að hafa áhrif á verð heita vatnsins og koma í veg fyrir tap eða óeðlilegan hagnað hitaveitunnar af vatnssöl- unni. Því er engin ástæða til að fínna henni ný verksvið til að eyða í tilbúnum hagnaði. Hvað vilt þú fá fyrir peningana þína? En ég er ekki einungis á móti því að hitaveitan taki sér þetta verk vegna skilgreiningar á verksviði hennar heldur ekki síður vegna •þess að ég tel að með þessum hætti sé verið að koma þessum fjármun- um framhjá eðlilegum samanburði við önnur útgjöld borgarinnar. Hita- veita Reylq'avíkur er eign Reykjavíkurborgar og þar með borgarbúa allra, en hún skal sam- kvæmt reglugerð rekin sem sjálf- stætt fyrirtæki með eigið reiknis- hald. Borgarstjóm Reykjavíkur fer með yfírstjóm hennar og þarf að samþykkja árlega framkvæmda- og fjárhagsáætlun hennar. Þannig að vissulega fær borgarstjóm tækifæri til að taka afstöðu til þess hvort byggja skuli þetta hús. En ég ótt- ast að 508 milljónimar, sem ætlaðar eru til byggingar veitingahallarinn- ar næstu árin, fái ekki þá athygli og vikt sem þeim ber, þar sem hætt er við að þær falli í skuggann af 3.600 milljónunum sem hitaveit- an ætlar í framkvæmdir á Nesja- völlum á þessum sama tíma. Verk sem þetta á að meta á sama hátt og aðrar byggingarframkvæmdir á vegum borgarinnar og um borgar- sjóð eiga greiðslur til þess að renna þegar og ef fulltrúar borgarbúa telja ástæðu til að eyða fé þeirra á þennan hátt. Svo þú getir betur áttað þig á því hversu stóra upphæð er hér um að ræða vil ég nefna nokkur dæmi um fjárveitingar úr borgarsjóð til framkvæmda. Áætlun næsta árs er ekki frágengnin, því tók ég tölur úr áætlun ársins sem er að líða, en til að samanburðurinn verði marktækur reiknaði ég tölum- ar upp til sömu vísitölu og notuð er í áætlun hitaveitunnar. Fjárveiting til skólabygginga: 132 milljónir. Fjárveiting til stofnana í þágu aldraðra: 142 milljónir. Fjárveiting til byggingar leigu- húsnæðis á vegum borgarinnar: 24 milljónir. Fjárveitingar til leikskóla og dagheimila: 72 milljónir. Fjárveiting borgarinnar til bvggingar verkamannabústaða: 36 milljónir. Og meti nú hver fyrir sig: Hvað vilt þú fá fyrir peningana þína? Höfundur er i atjórn veitustofnana fvrir Kvennalistann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.