Morgunblaðið - 17.12.1987, Síða 19

Morgunblaðið - 17.12.1987, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987 C 19 kvöldið á fund og þar sem allir aðrir fundarmenn höfðu verið for- setar félagsins gerðu þeir mig að forseta! Þar með var ég kominn af stað. Við börðumst fyrir bættu vegakerfí og bættum kjörum físki- mannanna. Vandi þeirra í þá daga var sá að þeirra orð voru að engu höfð á hinum stærri mörkuðum eða við ákvörðun um markaðsverð. Mín vandamál sem læknis voru raunar léttvæg, því ég gat lagt harðar að mér við vinnuna eða fengið mér aðstoðarfólk, en þau félagslegu vandamál sem steðjuðu að ýmsum sjúklinga minna ollu mér miklum áhyggjum. Þú skalt ekki láta þér detta í hug að félagslegar aðstæður hafi þá verið sambærilegar við það sem gerist í dag. Ef við tökum dæmi þá var ekki til sjúkrabíll á öllu svæðinu svo að minn bíll, bíll einhvers vinar eða jafnvel sjúklings- ins varð að duga sem sjúkrabíll og oftast urðum við að bera sjúkling- ana í fanginu. Gimli Kinsmen leystu að lokum þennan vanda þegar þeir keyptu sjúkrabíl og ráku hann á eigin spýtur. Ég ætlaði mér raunar aldrei út í stjórnmálin. Sá sem í upphafi örv- aði mig til þátttöku, dr. S.O. Thompson, varð svo til þess að fara í framboð á móti mér. Hann vildi hverfa frá störfum og örvaði mig eindregið, en svo vorum við í fram- boði hvor á móti öðrum og það leiddist mér óskaplega, því við vor- um svo góðir vinir. Ég sagðist vera til með að taka sæti á fylkisþinginu ef ég næði kosningu og beijast fyr- ir héraðsmálum þar nyrðra. En svo æxlaðist til að formaður míns flokks var beðinn að mynda stjóm og fyrr en varði var ég beðinn um að taka að mér ráðherraembætti í heilbrigð- isráðuneytinu. Það embætti hafði ég í nokkur ár og varð síðar menntamálaráðherra. Maður ánetj- ast því að starfa fyrir fólkið og að vinna að þeim markmiðum sem maður sjálfur setur sér. Mín gæfa var sú að starfa að lausn mála með hæfu fólki. Það vom miklir breyt- ingatímar á sjöunda áratugnum og svo mörg verkefni sem þurfti að takast á við. Fólkið vildi breyting- ar, það krafðist breytinga. Betri skóla, betri menntunar, bættrar heilsugæslu. Forsætisráðherra okk- ar, Duff Roblin, var stórkostlegur leiðtogi og studdi okkur í hvívetna. En dr. Johnson hvarf aftur til læknisstarfsins. Hvað lá þar að baki? „Jú, ég saknaði þess alltaf, sakn- aði sjúklinganna. En lífið er nú einu sinni þannig að maður getur ekki fengið það besta af öllu. Ég gaf því ekki kost á mér til framboðs árið 1969 og fór í nokkurs konar endurhæfingu áður en ég tók aftur til starfa sem læknir. Það hefði verið gott að komast aftur til Gimli, en bömin voru öll komin í háskóla og við búin að koma okkur fyrir í Winnipeg. Ég undi mér vel við læknisstörfin eftir að hafa verið ráðherra í 11 ár frá 1958—1969, en tíu árum síðar fór ég aftur til starfa í heilbrigðisráðuneytinu. Talið berst að íslandsferð sem farin var árið 1961 meðan dr. John- son var enn heilbrigðisráðherra. „Heimsóknin var því miður allt of stutt,“ sagði fylkisstjórinn. „Við Doris fórum til Bretlands og Skand- inavíu að kynna okkur heilbrigðis- mál. Við hittum á ferðum okkar íslenska konsúlinn í Osjó sem lagði að okkur að fara til íslands. Við komuna til Reykjavíkur var okkur boðin þátttaka í hátíðahöldum vegna 50 ára afmælis Háskóla Is- lands. Jóhann Hafstein var þá heilbrigðisráðherra og var sérstak- lega gaman að fá tækifæri til að kynnast honum og konu hans. En dvölin var stutt og við vildum gjam- an fá tækifæri til að heimsækja landið aftur. Frá ráðherratíð minni eru mér og minnisstæðar heimsókn- ir þeirra Ásgeirs Ásgeirssonar, forseta íslands, og Bjama Bene- diktssonar. Doris sagðist hafa mikinn áhuga á að kynnast betur verkum Gunn- laugs Blöndal, sem hefði verið náinn ættingi hennar. Hún kvaðst eiga nokkrar eftirprentanir af verkum hans og sagði það draum sinn að fá listaverk eftir hann í Govem- ment House. Dr. Johnson er frægur fyrir að segja skemmtilegar sögur og þá sérstaklega af samskiptum sínum við íslendingana á Gimli á þeim ámm sem hann var þar læknir. Hann sagði: „Ég sé alltaf eftir að hafa ekki gefið mér betri tíma til að læra og endumýja íslenskuna. Mér hafa oft orðið á hroðalegar skyssur og verið strítt vegna mis- notkunar á því máli. Eitt sinn fór ég um þrjátíu mílna veg í læknisvitjun til náunga nokk- urs. Mér tókst að gera að sárum hans og hann var mér ákaflega þakklátur en hann vildi fá mig aft- ur til sín næsta dag. Ég sagði honum að til þess væri engin ástæða — það yrði allt í fínu lagi með hann og þetta væri sextíu mílna leið fyr- ir mig báðar leiðir. Ég sagði honum líka að ég þyrfti að fara í margar aðrar vitjanir og sjúkrahúsið væri fulit af sjúklingum. En hann suðaði í mér að koma aftur næsta dag. Ég lét undan að lokum og sagði: „Allt í lagi, ég skal koma afturábak á morgun." Ég hélt að ég væri að segja að ég ætlaði að koma til baka á morgun, en þú sérð hvemig þetta mistókst hjá mér. Nú, þau hlógu öll einhver ósköp á heimilinu og ég skildi ekki hvers vegna. En strax næsta dag var sagan flogin um all- ar sveitir. En svo að við snúum okkur að alvarlegri málum þá'urðu margir frumbýlinganna hér að yfírstíga marga raun og þrenging- ar. Foreldrar mínir og foreldrar Dorisar fundu til djúprar samúðar með því fólki sem þola mátti slíkt harðræði. En við njótum þess í dag að flestum innflytjendanna tókst að laga sig að þeim aðstæðum sem hér vom fyrir hendi og lifa þar með af. En áður en við ljúkum þessu spjalli langar mig til að benda á eitt mikilvægt atriði. Ég er stoltur af hinum íslenska arfi og veit að Doris er það líka. En ættland okkar er Kanada og _á það leggjum við mesta áherslu. í Kanada býr saman fólk frá mörgum mismunandi þjóð- um. En okkar land — Kanada — sameinar okkur öll. Við setjum öll sameiginlega stolt okkar í að vinna því landi vel og höfum þar með bætt nýjum þætti í líf okkar allra. Það er okkar arfur — og það er hann sem mun vara.“ Brávallagata 92 á snældu ÚTVARPSSTÖÐIN Bylgjan hef- varpað á Bylgjunni á tímabilinu ur gefið út snældu með 18 þáttum júní til ágúst og á snældunni er 90 af Brávallagötu 92. mínútna efni af heimili þeirra Hall- Þessum þáttum hefur verið út- dórs og Bibbu. Nidar Bergene gott gott gæða konfekt á góðu verði M / M M/M * * * íslens'7//// Ameríska Módelsmíði er heillandi tómstundagaman, sem stunduð er af fólki á öllum aldri. Vönduðu plastmódelin frá REVELL fást nú í geysilegu úrvali: Flugvélar, bílar, mótorhjól, bátar, geimför, lestirog hús í öllum mögulegum gerðum og stærðum. Póstsendum um land allt í FRÁBÆRU ÚRVALI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.