Morgunblaðið - 17.12.1987, Side 20

Morgunblaðið - 17.12.1987, Side 20
20 C MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987 Hluti þátttakenda og gesta á hátíðardagskrá Amnesty. Morgunblaðið/Sv^rrir Ævar Kjartansson formaður ís- landsdeildar Amnesty Intern- ational. Amnesty International: Mannréttindadags Sam- einuðu þjóðanna minnst ALÞJÓÐLEGUR mannréttinda- dagur Sameinuðu þjóðanna var 10. desember siðastliðinn og í tilefni af þvi gekkst Amnesty International fyrir hátíðardag- skrá og listmunauppboði á Hótel JBorg. A liðnum árum hefur Islandsdeild Amnesty International haldið þenn- an dag hátíðlegan með opinberum samkomum til að minnast þess að þá var Mannréttindayfirlýsing Sam- einuðu þjóðanna undirrituð árið 1948. Samtökin vilja minna al- menning á efni sáttmálans og vekja athygli á starfi Amnesty Internatio- nal, en það byggist á þessari yfirlýs- ingu. Ævar Kjartansson formaður Is- landsdeildarinnar setti hátíðina en síðan flutti Thor Vilhjálmsson rit- höfundur ávarp. Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanóleikari og Sig- urður Bragason barítón fluttu nokkur lög og einnig Bubbi Morthens. Þá annaðist Gallerí Borg uppboð á verkum sem margir kunn- ir myndlistamenn höfðu gefíð til styrlrtar starfí Amnesty. Stjömustælar er þriðja bók Andrésar um Eyjapeyjann. eldhressa, Jón Agnar Pétursson, sjálfstætt framhald af hinum tveimur. Nú hyggst Jón Agnar spreyta sig á leiklistinni. Hann fær hlutverk í kvikmyndinni Hjartagosanum en margt fer öðruvfsi en ætlað er. Björnínn er ekki unninn þó að Barði kvikmyndaleikstjóri haldi því fram að hann sé fæddur leikari. Þó fer gamanið fyrst að kárna þegar í Ijós kemur að hann á ekkí að leika hetju i anda Sylvester Stallone heldur ástarhlutverk á móti þessari stelpu frá Akureyri. Fyrirsjáan- legt er að það verða ekki góð tíðindí fyrír Ragnhildi, hina einu sönnu. En úr öllum flækjum má greiða með kænsku og smástæl- um. . . Stjömustælar er 196 bls. Verð: 1.375,- lEEa Mal og menning Ea Andrés tndriðason þarf vart að kynna fyrir íslenskum börnum og unglingum. Hann hefur á undanförnum árum unnið sér sess sem einn afkastamestí og vandvirkasti unglingabókahöfundur hér á landi. Bækur hans hafa verið með afbrigðum vinsælar og nægir þar að nefna Fjórtán bráðum fimmtán, Töff týpa á föstu, Með stjömur augum og svo bækurnar um Jón Agnar Pétursson, Bara stælar! og Enga stæla!. Nú koma út tvær nýjar bækur eftir Andrés Indriðason. Húsin að Holti, Borgarhreppi, þar sem Þroskahjálp Vesturlands hefur rekið sumardvalarheimili fyrir þroskahefta síðastliðin tvö sumur. Vesturland: Afmælisfagnaður Þroskahjálpar Borgarnesi. NÝLEGA efndi Þroskahjálp Vesturlands til afmælisfagnaðar í Hótel Borgarnesi i tilefni af tíu ára afmæli félagsins. í ávarpi Einars Jónssonar, formanns fé- lagsins, kom fram að starfsemi sumardvalarheimilisins að Holti, Borgarhreppi, hefði gengið mjög vel síðastliðið sumar. í ávarpi sínu gerði Einar Jónsson grein fyrir tilurð félagsins og til- gangi og markmiði þess. Þá rakti Einar sögu þeirrar uppbyggingar sem félagið hefur staðið fyrir að Holti. Sérstaklega minntist hann í því sambandi Benjamíns Ólafsson- ar, fyrrum bónda að Holti, sem er nýlega látinn. Hefði Benjamín reynst félaginu ómetanlega. Hefði Benjamín ánafnað félaginu jörðina Holt og einnig lagt fram fé til upp- byggingar á staðnum. Sagði Einar að gert hefði verið við gamla íbúðar- húsið að Holti 1984 og árið 1986 hefði verið byrjað á nýbyggingu sem vígð hefði verið í maí 1987. Að Holti hefði nú verið starfrækt sumardvalarheimili fyrir þroska- hefta sl. tvö sumur og hefði sú starfsemi gengið mjög vel. Þá sagði Einar að framundan væri áformað öflugt innra starf hjá félaginu og stefnt yrði að áframhaldandi upp- byggingu aðstöðunnar að Holti. Leikhópur frá þjálfunarskólanum Stjömugróf kom í heimsókn á af- Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson Einar Jónsson, formaður Þroska- hjálpar Vesturlands, flytur ávarp á tíu ára afmæli félagsins. mælisfagnaðinn og flutti tvo leik- þætti við mikinn fögnuð afmælis- gesta. í tilefni afmælisins barst félaginu 20 þúsund króna gjöf frá Sambandi borgfírskra kvenna. - TKÞ Morgunblaðið/Árni Helgafion Jólatréð sem Drammen i Noregi gaf Stykkishólmi er stórt og fallegt. Stykkishólmur: Kveikt á jólatré Stykkishólmi. KVEIKT var fyrir skömmu á jólatré sem vinarbær Stykkis- hólms í Noregi gaf bænum. Það er Drammen í Noregi sem sendir Hólmurum jólatré ár hvert. Jólatrénu var komið fyrir í Hólm- garði, skrúðgarði Stykkishólmsbúa, og önnuðust það Högni Bæringsson og Guðjón Jóhannsson. — Arni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.