Morgunblaðið - 17.12.1987, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987
€ 21
Jólablóm og meðferð þeirra
eftir Óla Val
Hansson
Hér í blaðinu var nýlega vikið
að tveimur stofuplöntum sem þykja
mjög vinsælar fyrir jólin, nóvemb-
erkaktus og jólastjörnu. Nú skal
farið nokkrum orðum um önnur
blóm sem notuð eru mikið um jólin,
til að gera hátíðahaldið sem
ánægjulegast og minnisstæðast.
Þar eru efst á blaði laukblóm. A
þessum tíma hafa þau eitthvað það
við sig umfram annað sem gerir
þau hvarvetna vinsæl og mikils
metin.
Sem jólablóm eru það fyrst og
fremst litmildar og ilmríkar hýas-
intur, bleikar, hvítar eða bláar, sem
gegna aðalhlutverkj í lifandi borð-
skreytingum. Hvað þetta snertir
eiga þær mjög vaxandi hóp aðdá-
enda.
Hýasintublóm eru ætíð seld á
lauk en hann nærir þær nokkuð og
þær blómgast lengur fyrir bragðið.
Þær eru einnig fáanlegar í pottum,
en þannig geta þær staðið í blóma
aðeins lengur en þær fyrri, sem eru
án moldar og hafa lítið af rótum á
lauknum. Það verður því að gæta
þess með þær síðari að vökva þær
aldrei það mikið í senn að laukurinn
standi að staðaldri í vatni. Þó þarf
ávallt að haldast jafn raki umhverf-
is laukinn. Er því ráð að setja vott
af mold undir laukinn og síðan
mosa umhverfís hann sem haldið
er vel rökum. Fylgist síðan daglega
með rákanum. Hýasintur úr pott-
um sem standa í mold þola að þoma
svolítið milli þess að vökvað er, en
þó aldrei þannig að mold verði
skraufþurr á yfírborði. Standi hýas-
intur að staðaldri við venjulegan
stofuhita teygir blómklasinn sig
fljótt og neðri blómin sölna skjót-
lega. Komið þeim því fyrir á svölum
stað á næturnar, þá endist fegurð
þeiira mun lengur.
Önnur laukblóm jóla og vetrar
eru afskorin. Þar ber mest á lit-
fögrum túlipönum. Þeir fá sérstaka
meðferð til þess að unnt sé að fá þá
í blóma fyrir jól. Fallegur vasi með
túlipönum hefur löngum vakið
hrifningu, samanber hlutverk þeirra
í óteljandi listaverkum málara.
Ekki má heldur gleyma hinni
unaðsfögru riddarastjörnu, sem
þarf háan vasa til þess að njóta
sín. Önnur hátíðablóm sem sjást
fyrir jól eru fjölblóma janúarliljur
eða blendingar þeirra. Eins er jafn-
an ætíð nokkuð fyrir hendi af öðrum
blómum, chrysu, íris, gerberu, nell-
ikkum, rósum og sóllilju svo það
algengasta sé nefnt.
„Nú skal farið nokkrum
orðum um önnur blóm
sem notuð eru mikið um
jólin, til að gera hátíða-
haldið sem ánægjuleg-
ast og minnisstæðast.“
um bætir það einnig (séu stönglar
trénaðir) að skera dálítið lóðrétt upp
í stilkinn.
2. Setjið blómin í yljað vatn.
Komið þeim síðan fyrir á svölum
stað í 1—2 klst.
3. Gangið þar næst endanlega
frá þeim í hentugum, tandurhrein-
um vasa. Hafið vatnið volgt og
setjið í það skammt af blómafæðu
sem fæst í blómaverslunum og sjálf-
sagt víðar. Hún nærir ögn blómin
og tekur fyrir öra fjölgun örveru-
gróðurs í vatninu.
4. Látið vatnið aðeins ná 5—10
sm upp á stilkinn allt eftir tegund-
unum (5 sm á laukblómum) og
varist að láta blöð vera undir vatns-
borði. Þá fúlnar vatnið fljótt og það
dregur úr endingu blómanna.
5. Lítið daglega eftir vatninu.
Það eyðist ört við stofuhita, einkum
gildir það um túlipana. Bætið í vatni
í tæka tíð ásamt blómafæðu, en
sé hún ekki notuð verður að skipta
alveg um vatn daglega, því örveru-
gróður eykst fljótlega umhverfis
stilkenda og truflar vatnsupptöku.
Þannig geta blóm dáið af vatns-
skorti þótt þau standi í fullnægjandi
vatni, nái vatnið að fúlna.
6. Ef blómin slappast fljótlega
eftir að þeim hefur verið hagrætt
í vasa, endurtakið þá, atriði 1 og
sveipið þeim síðan í dagblað og
setjið mjög djúpt í volgt Vatn í fötu
í svalt umhverfí dálitla stund.
7. Forðist að láta blómin standa
við dragsúg eða nálægt ofnum þar
sem loft er jafnan á hreyfingu.
Mikil reykjarstybba styttir einnig
lífdaga þeirra. Sama gildir um
þroskaða ávexti í nærveru blóma.
8. Geymið ætíð afskorin blóm á
svölum stað að nóttu tll. Akjósan-
legur hiti er 4—5°, en ein og ein
tegund þarf þó aðeins hlýrra um-
hverfi, t.d. flammingóblóm, brönu-
gras, riddarastjama og kóralgrein-
ar, ca. 12°.
9. Afskornir jólatúlipanar eru oft
all stuttir en þeir lengjast-fljótt.
Þyki þeir verða of langir er ekkert
því til fyrirstöðu að stytta stilkenda
þeirra einstaka sinnum.
Höfundur er fyrrverandi garð-
yrkjuráðunautur.
HAUSTHÁPPDRÆTTI
'LOKKSINS 1987
VERÐMÆTIVINNINGA
SAMTALS KR. 4.000.000
DREGIÐ 18. DES. 1987
VERÐ KR. 300,00
Meöferð á af-
skornum blómum
Hér eru að lokum ábendingar
varðandi aðhlynningu og umhirðu:
1. Takið blómin strax úr umbúð-
unum þegar þau hafa verið fengin
því þau þola ógjaman bið. Sníðið
1—2 sm neðan af stilkendunum
undir vatni til að koma í veg fyrir
að þeir dragi upp loft. Sníðið á ská.
Þá verður stærri flötur fyrir vatns-
upptöku og aðeins bláendi stilksins
nemur þá við botn yasans, en það
er mikilvægt atriði. í sumum tilvik-
Kveikt á
jólatré
í Garðabæ
KVEIKT verður á jólatré við
Garðatorg laugardaginn 19. des-
ember kl. 15.30.
Sendiráðsritari Norðmanna af-
hendir jólatréð sem er gjöf frá
Asker í Noregi, vinabæ Garðabæj-
ar.
Jólasveinar koma í heimsókn.
Unnt er að greiða með greiðslukortum með því að hringja í síma 82900.
Skrilstoían er opin til klukkan 22.
Hringið á skrilstoíuna, gíróseðilinn í bankann, lítið við í Valhöll.
HAUSTHAPPDRÆTTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
-' HÓTH. ■ AIEXA.VÖRA ■ MatStóASTOf A