Morgunblaðið - 17.12.1987, Page 24
24 C
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987
Klukkan var níu að morgni
föstudaginn 4. desember síðastlið-
inn þegar lestin lagði af stað frá
King's Cross-brautarstöðinni í
Lundúnum. Meðal farþega var for-
seti íslands, Vigdís Finnbogadótt-
ir, og fylgdarlið hennar. Ferðinni
var heitið til Jórvíkur, sögufrægrar
borgar í norðausturhluta Eng-
lands.
Jórvík nútímans er ekki stór
borg á enskan mælikvarða; þar
eru íbúar nú álíka margir og íbúar
Stór-Reykjavíkursvæðisins. En
Jórvík er samt stórbrotin borg með
mikla sögu og fjölbreytta. Enn
má þar til dæmis sjá minjar frá
þeim tíma er Rómverjar sátu í
■borginni. Yfirráð þeirra stóðu allt
fram á 5. öld eftir Kristsburð er
Engilsaxar héldu innreið sína í
Jórvík. Þeir settu næstu aldimar
svip sinn á borgina sem varð
kirkjuleg miðstöð Norður-Eng-
lands auk þess að vera höfuðborg
Norðymbralands, eins hinna sjö
konungdæma Engilsaxa til foma.
Árið 866 náðu norrænir víking-
ar Jórvík á sitt vald og settust þar
að. Varð borgin um skeið mikil
miðstöð víkinga og verslunar og
blómatími fór í hönd. Jórvík varð
ein stærsta, auðugasta og fræg-
asta borgin í öllu Bretlandi, auk
þess að vera ein mikilvægasta
verslunarmiðstöðin í Evrópu.
Þeir norrænu menn, sem um
langt skeið settu svip sinn á Jórvík,
komu meðal annars alla leið frá
íslandi. Það var því auðvitað ekki
illa til fundið hjá Jórvíkurbúum
nútímans að bjóða í heimsókn ein-
um afkomenda þessara manna,
Vigdísi Finnbogadóttur, forseta
íslands. í fylgd með henni vom
meðal annarra: Ólafur Egilsson,
sendiherra íslands í Bretlandi og
eiginkona hans, Ragna Ragnars;
sendiherra Bretlands á Islandi
Mark Chapman og eiginkona hans
Patricia; Magnús Magnússon, sá
víðkunni rithöfundur og sjónvarps-
maður og eiginkona hans, Mamie;
og Sir David Wilson, forstjóri Brit-
ish Museum ásamt eiginkonu
sinni, Lady Wilson.
Eftir rúmlega tveggja klukku-
stunda lestarferð frá Lundúnum
var komið á áfangastað. Lestin
renndi í hlað á brautarstöðinni í
Jórvík, þar sem borgarstjórinn,
Malcolm J. Heppell, tók á móti
forsetanum, ásamt fleiri hefðar-
mennum. Heppell er jafnframt
forseti Fornleifastofnunar Jórvík-
ur (York Archaeological Tmst),
sem veg og vanda hafði af því að
undirbúa skoðunarferð Vigdísar
Finnbogadóttur um borgina. For-
stjóri Fomleifastofnunarinnar,
Peter Addyman, var einnig í mót-
tökunefndinni og vísaði gestum til
St. Saviour’s-kirkju, fornfrægrar
byggingar og glæsilegrar. Fyrir-
hugað er að þessi kirkja verði eins
konar fomleifamiðstöð, staður
sem almenningur getur sótt, fylgst
með og tekið þátt í starfi fomleifa-
fræðinga, handleikið foma muni
og komist þannig í snertingu við
liðna tíð. Það er hin öfluga Fom-
leifastofnun Jórvíkur sem stendur
fyrir þessum framkvæmdum en
starf þessarar stofnunar var nánar
kynnt forseta íslands og fylgdar-
liði hennar er höfuðstöðvamar
vom heimsóttar. Þar hefur verið
og er unnið geysilega mikið starf
í tengslum við varðveislu margví-
slegra fomminja, fomum munum
haldið til haga, teikningar og upp-
drættir gerðir að fomum mann-
virkjum, sem láta æ meir undan
síga, og þannig mætti lengi telja.
A vegum stofnunarinnar hefur
meðal annars verið unnið að útg-
áfu slíkra teikninga og uppdrátta
og í lok skoðunarferðarinnar í
höfuðstöðvamar afhenti Peter
Addyman Vigdísi forseta að gjöf
uppdrátt að kirkju einni, sem
Fomleifastofnunin hefur látið til
sín taka.
Víkingasafnið
Eftir að hafa kynnt sér starf
Fomleifastofnunar Jórvíkur héldu
forsetinn og fylgdarlið hennar til
hádegisverðar í boði borgaryfir-
valda en síðan hélt skoðunarferðin
um Jórvík áfram. í hjarta borgar-
innar er Víkingasafnið (Viking
Centre), vinsælasti ferðamanna-
staðurinn í Jórvík. Það var árið
1976 sem fomleifafræðingar tóku
að vinna að uppgreftri þar sem
Víkingasafnið er nú. Undir yfir-
borði nútímaborgarinnar var
komið niður á fjölbreyttar minjar
frá víkingatímanum, húsarústir og
margvíslega muni sem tilheyrðu
fólki því er þama bjó er Jórvík var
aðsetur norrænna manna. Þama
vom meðal annars ótrúlega vel
varðveittar leifar timburhúsa, auk
ýmiss þess er kom við sögu í dag-
legu lífí fólks frá þessum tíma.
Var þetta eins og gefur að skilja
mikill hvalreki á fjörur fomleifa-
fræðinga og vakti athygli víða um
heim. Meðal þeirra sem kynntu sér
uppgröft þennan, var þáverandi
forseti íslands, dr. Kristján Eld-
jám. Þjóðhátíðarsjóður veitti á
sínum tíma styrk til að létta undir
við kostnaðinn vegna rannsókn-
anna í Jórvík.
Á grundvelli minja þeirra, sem
fram komu við hinn umfangsmikla
uppgröft ákvað Fomleifastofnun
Jórvíkur að koma á legg veglegu
safni, sem veitt gæti nútímamann-
inum innsýn í það líf sem blasti
við í borginni fyrir þúsund árum
síðan. Árangurinn varð stórfeng-
legur og Víkingasafnið í Jórvík er
nú meðal mest sóttu safna í Eng-
landi. Hafa nú hvorki fleiri né
færri en þijár milljónir manna
kynnt sér það sem safnið hefur
upp á að bjóða frá því það var
opnað snemma á níunda áratugn-
um. Þama dvaldist forseti íslands
drykklanga stund ásamt fylgdar-
liði sínu og fékk innsýn í aðbúnað
og lifnaðarhætti fólks á víkingatí-
manum.
Að lokinni fróðlegri heimsókn í
Víkingasafnið var haldið í dóm-
kirkju Jórvíkur (York Minster),
geysimikla byggingu og glæsilega,
mnan jafnt sem utan. Kirkja þessi
var í byggingu allt frá þrettándu
öld og fram á þá fimmtándu og
er hin mikilfenglegasta að sjá.
Þama leiddu kirkjunnar menn
Vigdísi forseta um sali og bentu
Á brautarstöðinni í Jórvík. Á myndinni eru, frá vinstri: Peter Addyman, forstjóri Fomleifastofnunarinn-
ar, Ólafur Egilsson, sendiherra, Vigdís Finnbogadóttir, Komelíus Sigmundsson, forsetaritari, Malcolm
J. Heppell, borgarstjóri í Jórvík, A.R. Mitchei frá bresku járabrautunum.
Vigdís Finnbogadóttir við vegg, sem hefur að geyma brot af þeim minjum sem hafa fundist við upp-
gröftinn í Jórvík.
á helstu dýrgripi dómkirkjunnar
og djásn.
Heimsókn forseta íslands til
Jórvíkur lauk síðan á Royal York
Hotel. Þar hitti Vigdís meðal ann-
arra að máli hóp Islendinga, sem
búsettir em í Yorkshire og Hum-
berside og komnir voru gagngert
til Jórvíkur til að hitta forseta fóst-
uijarðar sinnar. Var það ánægju-
leg stund og hefðu samræður
vafalaust getað orðið langar en
Lundúnalestin beið. Fróðlegri for-
setaferð til Jórvíkur var lokið.
Forseti íslands slær mynt að foraum sið.
*
Forseti Islands
fer til Jórvíkur
TEXTI: Valdimar Unnar Valdimarsson
MYNDIR: Kristinn Ingvarsson