Morgunblaðið - 17.12.1987, Side 27

Morgunblaðið - 17.12.1987, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987 C 27 Rannveig Bragadóttir: „Frábært tækifærí að fá að vinna með þessu fólki“ — segir fyrsti íslendingurinn sem hefur samning við stúdío Vínaróperunnar TEXTI OG MYNDIR: ANNA BJARNADÓTTIR Milli tvö- og þijúhundruð ungir söngvarar reyna á hverju ári að komast á samning í svokölluðu stúdíói Vínaróperunn- ar. Þeir syngja fyrir dómnefnd og heyra frá henni seinna ef þeir eru meðal hinna heppnu. Tíu bestu söngvurunum er boðið að syngja fyrir hljómsveitarstjórann og óperustjórann í júní. Þeir velja fimm söngvara úr hópnum og veita þeim tveggja ára samning. Hinir mega eiga sig. íslenskir söngvar- ar hafa spreytt sig á prufusöng fyrir stúdíóið en aðeins einn, Rannveig Fríða Bragadóttir, hefur komist að fram til þessa. Hún byrjaði að starfa fyrir alvöru í haust. Og nú sést hún á mynd úr óperunni Iphigenie og Aulide eftir Gluck utan á einu fremsta óperuhúsi heims. „Ég söng fyrir dómnefnd stúd- unni,“ sagði hún, hálfvegis í gríni. „Ég hef ekkert gert til að koma mér á framfæri þar en auðvitað hefði ég áhuga á að taka þátt í tónlistarstarfinu heima. En ég er gift Austurríkis- manni og býst ekki við að búa á íslandi. Ég yrði þó mjög þakklát og hamingjusöm ef ég fengi tækifæri til að syngja þar. Ég steftii nú að því að koma mér upp efnisskrá og ætla að reyna að koma mér á framfæri hér. Ég hef miklar mætur á hlut- verkt Cherubino í Brúðkaupi Fígarós og Dorabellu í Cosi fan Tutte. Einnig hef ég mjög gaman af bamaóperunni Hans og Grétu eftir Humperdink sem er flutt hér á hveiju ári fyrir jólin. Mér var boðið hlutverk í henni í Þýskalandi núna en hafði ekki tíma til að taka því. Það var leið- inlegt en ég sætti mig við það af því að stjómandinn sagði að ég gæti sungið hlutverkið ein- hvem tíma seinna." Umboðsmenn fylgjast grannt með ungu söngvumnum í stúdíói Vínaróperunnar. Þeir sem kom- ast þar að og standa sig hafa íósins í janúar 1987,“ sagði Rannveig, en hún hefur verið í söngnámi í Vín í fimm ár. „Söngvarar sem hafa möguleika á að komast að em yfirleitt beðn- ir um að koma aftur í júní og syngja þá á sviði ópemnnar fyrir Abado, hljómsveitarstjóra, og Drese, óperastjóra. Ég fékk strax góðar viðtökur í dómnefndinni og Emst Marzendorfer, tónlistar- stjóri stúdíósins, hringdi í mig viku eftir að ég söng og bauð mér aðalhlutverkið í Telemaco eftir Gluck sem hann stjómaði í Hellbmnn í sumar. Ég tók því náttúmlega. Skömmu eftir að hann talaði við mig fór ég í söng- ferðalag með skólanum en þegar ég kom heim úr því var haft sam- band við mig aftur og mér boðið lítið hlutverk í nútímaópem eftir Peter Ronnefeld í tilraunaleik- húsi sem stúdíóið er með í Kunstlerhaus hér í Vin. Ein söng- konan hafði verið rekin og ég kom í hennar stað. Ég fékk því starf í stúdíóinu mánuði eftir að ég söng prafusönginn og þurfti ekki að syngja á sviðinu fyrir stjómendurna í júní. Ég fékk tveggja ára samning og byijaði að vinna á fullu í haust." Stúdíóið ræður ungt og efni- legt fólk og veitir því tækifæri til að starfa með reyndu, góðu fólki. Rannveig er 25 ára og næst yngst í stúdíóinu. Dagurinn hjá henni er svo þaulskipulagður að það er ekki hlaupið að því að hitta hana. Hún hefur söngæf- ingar af ýmsu tagi, ballet- og skylmingatíma og tilsögn í öndun og sviðshreyfíngum. „75 ára görnul kona, sem er margfaldur heimsmeistari í skylmingum, kennir okkur öndun og hreyfing- ar, þekktir söngvarar þjálfa okkur í túlkun og fyrsta flokks undirleikarar æfa með okkur hlutverk. Það er frábært tæki- færi að fá að vinna með þessu fólki,“ sagði Rannveig. Hún tek- ur nú þátt í sýningum á Iphigenie og Aulide í litlu hlutverki og er að æfa Valkyijumar eftir Wagn- er sem varasöngvari. Herbergið fylltist af sterkum tónum Hún leyfði mér að koma með sér í tíma með undirleikara sem var að æfa með henni hlutverk Waltraute í Valkyijunum. Við höfðum aldrei hist en mældum okkur mót við sviðsdyr ópemnn- ar. Rannveig kom hlaupandi nokkrum mínútum of seint og það hvarflaði að mér að þessi smávaxna, blíðróma stúlka gæti kannski ekki sungið á æfingunni af einskærri mæði. Við gengum eftir löngum, heldur óvistlegum göngum að stórri lyftu og tókum hana. Loks komum við inn í lítið, tjöldum klætt herbergi, þar sem hátt var til lofts og píanóleikari beið við stóran flygil. Rannveig stillti sér upp við púlt og raðaði nótnablöðum fyrir framan sig. Píanóleikarinn byrjaði að spila og allt í einu fylltist herbergið af sterkum, háum söngtónum. Ég hrökk við og átti bágt með að trúa að Rannveig byggi yfír slíkum raddstyrk. En margur er knár, þó hann sé smár. Þau fóm . „Ég myndi ekki vijja fórna fjölskyldu fyrir frægð og Rannveig bendir á mynd af sér í Iphigenie og Aulide utan á Vínaróperuhúsinu. hratt yfír hlutvek Waltraute. Píanóleikarinn raulaði hlutverkin í kringum hennar part en hún gaf ekkert eftir í sínu stykki. Hún þurfti nokkmm sinnum að endurtaka og píanóleikarinn sagði henni til en undir lokin sagði hann að hún hefði sungið hlutverkið mjög vel. „Þú ert með réttu röddina fyrir það,“ sagði hann. Rannveig hafði gaman af að syngja sem krakki. „Ég söng allt- af vel og byijaði snemma að syngja í kirkjukór Grensásssókn- ar,“ sagði hún. „Ég var síðan í kór Þorgerðar Ingólfsdóttur í Menntaskólanum í Hamrahlíð og söng einsöng með honum. Ég var í söngtímum hjá Má Magnússyni í fjögur ár og söng þá sópran. Það gekk aldrei mjög vel og ég var að hugsa um að hætta söng- náminu eftir stúdentspróf. Helene Caraso var þá með nám- skeið heima og ég fór á það. Þar kom í ljós á fyrsta degi að ég ætti að syngja mezzosópran og ég hef gert það síðan. Caruso vildi fyrst ekki taka mig í nám en fyrir tilstilli Más féllst hún á það og ég fór til Vínarborgar tveimur mánuðum síðar. Röddin var fyrst mjög stirð og ómöguleg en það lagaðist sem betur fer. Ég tók inntökupróf í tónlistar- háskólann um leið og Signý Sæmundsdóttir og Kristinn Sig- mundsson og við vomm öll tekin einróma inn.“ Rannveig á tvö ár eftir í skólanum og ætlar að halda náminu áfram með starfinu í ópemnni. „Skólinn hefur upp á mjög margt að bjóða og ég ætla að notfæra mér það,“ sagði hún. „Ég held til dæmis áfram í ljóða- söng.“ Uppfærslan á Telemaco í Hell- bmnn í sumar fékk góða dóma. Óperan var flutt á steinsviði í kastalagarðinum fyrir utan Salz- burg en ópera á þýsku var flutt þar í fyrsta skipti á 17. öld. Tel- emaco var miðpunktur Hell- bmnn-listahátíðarinnar. Hátíðin er haldin árlega fyrstu tvær helg- amar í ágúst. „Eg hef heyrt að við fengum mjög góða dóma,“ sagði Rannveig, „En ég hef því miður ekki séð neina nema í haustútgáfu enska blaðsins Op- era.“ Þar er hún nefnd sérstak- lega og sögð hafa haft gott vald á hlutverki sínu. Hefur ekki haft sig í frammi heima Rannveig hefur ekki sungið á íslandi síðan hún fór út í nám. „Ég myndi kvíða meira fyrir að syngja heima en hér í Vínaróper- Rannveig gaf ekkert eftir þegar hún fór yfir hlutverk Waltraute í Valkyij- llnilm því góða framtíðarmöguleika. „Það kemur fyrir að söngvarar úr stúdíóinu séu fastráðnir hér við óperuna," sagði Rannveig. „Það þykir þó ekki n\jög eftir- sóknarvert af þvi að þeir festast yfírleitt í litlum hlutverkum. Hér fá aðeins þekktir söngvarar sem hafa sungið annars staðar að syngja aðalhlutverkin. En þeim sem hafa verið hér í stúdíóinu gengur yfirleitt vel að fá störf í smærri ópemhúsum, til dæmis f Þýskalandi." Eiginmaður Rannveigar er bamakennari og listmálari. „Hann hefur mikinn áhuga á mínu starfi og vill að mér gangi vel,“ sagði hún. „Hann er skiln- ingsríkur og hjálpsamur á heimilinu. Samkeppni söngvara er mjög hörð og það er ekki nema öriítill hluti söngvara sem kemst áfram að námi loknu. Ég geri mér grein fyrir að það fer ekki saman að hefja söngferilinn og eiga böm um leið. Hér í Evrópu er það ekki hægt. Það tekur eitt til tvö ár frá söngstarfinu að eiga bam og það er erfitt að byija aftur nema maður hafí þegar skapað sér nafn. Það á eftir að koma í ljós hversu góð söngkona ég er og hvemig mér vegnar í starfi. En ég myndi ekki vilja fóma fjölskyldu fyrir frægð og frama. Ég vildi heldur missa röddina en að vera alltaf bam- laus.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.