Morgunblaðið - 17.12.1987, Page 29

Morgunblaðið - 17.12.1987, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987 C 29 Kristur sagði við Nikódemus: Sannlega, sannlega segi ég þér, ef maðurinn fæðist ekki af vatni og anda, getur hann ekki komist inn í guðsríkið. Jh. 3:5. Hér er ekki átt við vatn heldur orð Guðs. Eftir ráðsályktun sjálfs sín fæddi hann oss með sannleiksorði, til þess að vér skyldum vera nokkurs konar frumgróði skepna hans. Jk. 1:18. Þér____eruð endurfæddir ekki af forgengilegu sæði, heldur ófor- gengilegu, fyrir orð Guðs .., Og þetta er orð fagnaðarerindisins, er yður hefur verið boðað. 1. Pt. 1:23,25. Vatn hefur engan mátt til að kveikja líf í sálu sem er glötuð, en orð Guðs getur það, því að Kristur segir: Það er andinn, sem lífgar, holdið megnar ekkert. Orðin, sem ég hefi talað til yðar, þau eru andi og þau eru líf. Jh. 6:63. Orð Guðs er innblásið Heilögum anda, og Heilagur andi vinnur í hjörtum manna í gegnum orðið. Vatnið í fontinum er ekki hlaðið krafti til hjálpræðis, og verður aldr- ei að töfravatni, þrátt fyrir einlæg- ustu bæn prests, vegna þess að biblían segir að það sé orðið sem Guð hefur valið til þess að frelsa mennina. Því að þar eð heimurinn með speki sinni þekkti ekki Guð í speki hans, þóknaðist Guði að gjöra hólpna með heimsku prédikunar- innar þá, er trúa. 1. Kor. 1:21. Orð Guðs er náðarmeðal, og í því er allt sem þarf til frelsunar. Menn heyra orðið, trúa orðinu, fá hreinsun vegna orðsins, endurfæð- ast fyrir orðið, fá andlega fæðu úr orðinu (Mt. 4:4), og fá styrk til að sigra syndina í orðinu (1. JH. 2:14, Sl. 119:11). Það er ekki að ástæðulausu að menn tala um skím þjóðkirkjunnar sem kukl. Ef það sem Einar segir um skímarskilning kirkju sinnar er rétt — s.s. að bam endurfæðist, fær Heilagan anda, hlýtur fyrirgefningu synda og verður barn Guðs þegar prestur eys vatni yfir það áður en það veit nokkum hlut — þá er eng- in þörf fyrir réttlætinguna fyrir trú. En skím er í orði Guðs, og Krist- ur stofnaði hana. Sá, sem trúir og verður skírður, mun hólpinn verða, en sá, sem ekki trúir, mun fyrirdæmdur verða. Mk. 16:16. Það stendur ekki að þeir sem ekki láta skírast verði fyrirdæmdir, heldur þeir sem ekki trúa. í þjóð- kirkjunni er mönnum ekki heimilt að láta skíra sig fyrir aðra menn, og sömuleiðis getur enginn tekið trú á Jesúm Krist fyrir aðra. Allir þurfa að trúa á Krist sjálfviljugir, og að vera sér meðvitandi um það. Síðan að láta skírast eins og sagt er frá í Nýja testamentinu. í áttunda kafla Postulasögunnar lesum við um etíópiska hirðmanninn sem Filippus hitti á leiðinni til Gasa. Þessi maður las orð Guðs, en skildi það ekki. Filippus lauk upp munni sínum og tók til á ritning þessari og boð- aði honum fagnaðarerindið um Jesúm. En er þeir fóru áfram veg- inn, komu þeir að vatni nokkru, og hirðmaðurinn segir: Sjá, hér er vatn, hvað hamlar mér að skírast? En Filippus sagði: Ef þú trúir af öllu hjarta, er það heimilt. En hann svaraði og sagði: Eg trúi að Jesús Kristur sé guðs-sonurinn. Og hann lét vagninn standa við. Og þeir stigu báðir niður í vatnið, Filippus og hirðmaðurinn, og hann skírði hann. P. 8:35-38. Þeir stigu báðir niður í vatnið. Þetta var niðurdýfingarskím, og sú skím var heimil vegna þess að hann trúði. Þessi skím er heimil öllum sem trúa, og vantrúaðir eiga enga hlutdeild í henni. í dag er ekki minni þörf á réttlæt- ingu fyrir trú en var á dögum Lúthers. Það var kenningin um rétt- lætinguna fyrir trú sem kom siðaskiptunum af stað, og ég trúi því ,að enn sé mikill kraftur í henni. Guð gefi það að við eigum eftir að sjá hér á landi þann kraft sem býr í prédikun orðsins. Höfundur er prentari. HAFÐUALLTÁ HREINU FÁÐU ÞÉR &TDK ! rímlagluggatjöldin frá Þessi stórkostlegu gluggatjöld eru til í ótrúlegu litaúrvali, sem við framleiðum eftir máli. pílu gluggatjöld Suðurlandsbraut 6, símar: 83215 Q O' ö dd O' W Þd Þd BÓLU HJÁLMAR Dr. Eysteinn Sigurðsson HJALMAR Eysteinn Sigurðsson Uax Sít^awuv tftýyi -c , &*► wbtúfci (>kv- aWSSStófc /fffjf/rmrS!b/í >.% v.ift l»I ir. Jf Wí. þvú lr Þetta er bók um Hjálmar Jónsson frá Bólu, ævi hans og skáldskap. Höfundur segir í öllum meginatriðum ævisögu Hjálmars, en fjaUar einnig mikið um kveðskap hans, rekur hann sundur eftir tímabUum og yrkisefnum, skilgreinir verk skáldsins og leggur mat á þau. Ennfremur er útskýrt hver séu helstu stíl- og formeinkenni Hjálmars, alþýðu- skáldsins snjalla sem orti í sárri fátækt beinskeyttar vísur og dýr kvæði. ALMANAK OG ÁRBÓK Hins íslenska þjóðvinafélags 1988 Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóð- vinafélagsins hefur gefið út Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags 1988, en aðalhluti þess er Almanak um árið 1988 sem dr. Þorsteinn Sæmundsson stjarn- fræðingur hjá Raunvísindastofnun Háskólans hefur búið til prentunar. Annað efni Þjóðvinafélagsalmanaksins þessu sinni er Árbók íslands 1986 sem Heimir Þorleifsson menntaskólakenn- ari tók saman. ,-VLMANAK I98S ‘feöF Bökaúfgáfa, /MENNING4RSJOÐS SKÁLHOLTSSTÍG 7« REYKJAVÍK • SÍMI 621822

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.