Morgunblaðið - 17.12.1987, Page 36

Morgunblaðið - 17.12.1987, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987 4 36 C KRISTJÁN JÓHANN JÓNSSON UNDIR HÚFU TOUARANS Undir húfu tollarans er samtíðarsaga .úr Reykjavík, fjölskyldusaga, dæmi- saga úr íslensku þjóðfélagi. Segja má að hér eigi ólíkar stéttir og samfélags- hópar sína fulltrúa. Aðalpersónur eru bræður tveir, Karl kennari og Björn iðnaðarmaður. Karl og fjölskylda hans eru í forgrunni. Ýmis skyldmenni og vandamenn þeirra bræðra koma hér við sögu og er óhætt að segja að sam- skipti þessa fólks gangi mjög á misvíxl. Þjóðfélagið beinir fólki í ákveðna farvegi sem örðugt er að rífa sig upp úr. Öllu þessu margbreytilega mannlífi og samspili lýsir höfundur af kunnáttu og alúð svo að lesandinn fylgist með af lifandi áhuga frá upphafi tilloka... IÐUNN Höfum við ráð á ráðhúsi? Til Velvakanda Eftir fréttum fjölmiðla að dæma erum við í mikilli skuld erlendis, skuldum um eitt til tvöhundruð þúsund krónur hver einstaklingur. 1) Það eru ekki til peningar til að kaupa nóg af tækjum á spítalana né borga starfsfólkinu það kaup sem það getur lifað af. Flestir reyna að fá eins mikla aukavinnu og þeir geta, sem kemur sennilega niður á starfsþreki þeirra. 2) Það eru ekki til peningar til að borga fóstrum kaup sem hægt er að lifa af. 3) Það eru ekki til peningar til að prenta skólabækur barnanna okk- ar, kennarar telja sig einnig fá of lítið kaup. 4) Það eru ekki til peningar fyrir íþróttafélögin, áætlað er að lækka Qárveitingu til þeirra. Þó ekki séu til peningar til alls þessa þykir sjálfsagt að henda peningunum okkar í Tjömina við Tjamargötu til að byggja ráðhús. Ég veit um aðra tjöm sem ég vil heldur henda peningunum mínu í. Það er tjömin í Kringlunni því þeir peningar fara til Bamaspítala Hringsins. Einnig er meiningin að stækka Alþingishúsið svo að hver þing- maður hafi um hundrað fermetra vinnupláss. Styttan af okkar fyrsta Reykvíking, Ingólfí Amars- syni, fær ekki að standa í friði á sínum stað á Amarhóli, það á nið- urlækka hana og færa um set. Fyrst ég er byrjuð að skrifa þá vil ég einnig minnast á nýju sölu- skattslögin um söluskatt sem verður settur á nýtt grænmeti, ávexti og fisk en lækka söluskatt á varalit, rakspíra og ilmvatni. Hvor liðurinn er talinn nauðsyn- legri? Hví má ekki kjósa um ráðhúsið og bjórinn? * J I.D.K Móðurmál og „útseld vinna“ Til Velvakanda. Leyfíst mér að minna fjölmiðla- fólk á þá staðreynd að enn eru ekki allir Islendingar talandi né skiljandi ensku sem sitt móður- mál. Það gekk fram af mér á þriðjudaginn, að þurfa að horfa á Bandaríkjaforseta „míma“ sínar ræður, enskan heyrðist ekki einu sinni, en hvert orð Sovétleiðtogans var þýtt jafnóðum. í lokin sagði þulur síðan kæruleysislega: „Fyrir þá sem skilja ekki ensku skal tek- ið fram að Reagan sagði,“ (tvær setningar). Þetta kalla ég grófa móðgun bæði við íslendinga og Bandaríkjamenn. Fyrst ég er komin í ham má ég til að minnast á heilaga kú hér í okkar þjóðfélagi sem mér of- býður að ekki skuli vera búið að binda í bás. Hún heitir ÚTSELD VINNA. Sé fenginn iðnaðarmaður í vinnu er alveg sama hvað honum þóknast að skrifa á reikninginn, þó svo það væru 2000 kr. á tímann. Ef spurt er út í þvílíka kauptaxta, er svarið ÚTSELD VINNA, og tjóa þá engar mót- bárur. Einu virðist gilda hvort um er að ræða sveinstaula nýskriðna í gegnum hið háa iðnnám, tækja- lausa og húsnæðislausa, eða vel búin verkstæði. Þama trúi ég að sé ein af 18 ástæðum fyrir eymdarkjörum verkafólks. Því stærri hlut af þjóð- arkökunni sem sumar stéttir taka, þeim mun minni verður biti hinna. Góðir þjóðarstjómendur, hvem- ig væri að taka þama til hendi? R.K. Áskorun til Inga Bjöms Albertssonar — bjórdrykkja og íþróttir fara ekki saman Velvakandi góður. Það hafði mikil og góð áhrif á unga drengi að sækja fundi hjá séra Friðrik í KFUM í gamla daga. Mér hlýnar alltaf um hjartarætum- ar þegar ég huga til þessa dásam- lega uppfræðara um bindindi og góða siði. Á námsárum sínum í Danmörku kynntist séra Friðrik knattspymu og sá hvað hún hafði góð uppeldis- áhrif í sókn og leik í góðum félags- skap. Þegar heim kom stofnaði hann fótboltalið með drengjunum sínum, sem sóttu fundi í KFÚM, sem síðar varð Knattspymufélagið Valur. Þetta félag hefur verið í fremstu víglínu í nær öllum íþróttagreinum. Einn af dáðustu knattspymumönn- um Vals er Ingi Bjöm Álbertsson, nýkjörinn þingmaður Vesturlands- kjördæmis. í skörulega fluttri jómfrúræðu sinni hét hann því að vera skjól og skjöldur allrar íþróttahreyfingar- innar í landinu. En það samrýmist ekki að vera skjól og skjöldur íþróttahreyfingarinnar og jafn- framt að vera meðflutningsmaður frumvarps um innflutning og bruggun á sterku öli, sem á tíma- bili var aðalfótakefli okkar ungu knattspyrnumanna erlendis. Ég skora á þennan góða dreng og atgervismann í knattspymu að breyta um stefnu gagnvart marg- umtöluðu frumvarpi, landi og lýð til blessunar. Höskuldur Ágústsson Víkverji Hótel ísland, hinn glæsilegi skemmtistaður hjónanna Ól- afs Laufdal veitingamanns og Kristínar Ketilsdóttur, hefur verið opnaður við Ármúla í Reykjavík. Afmælisfagnaður Blaðamannafé- lags íslands var fyrsta skemmtunin sem haldin var á Hótel íslandi og þótti takast afbragðsvel. Ekki var annað að heyra á veizlugestum en að þeir væru mjög hrifnir af hinum nýja skemmtistað og þeim nýjung- um, sem hann hefur upp á að bjóða. Stærð skemmtistaðarins er með ólíkindum. Þar rúmast 2500 manns, þar af 1300 matargestir. Ef menn leika sér að tölum þá getur einn hundraðshluti íslenzku þjóðarinnar skemmt sér þama í einu! Tilkoma Hótel íslands mun óhjákvæmilega hafa í för með sér breytingar á íslenzkum skemmtana- og veitinga- markaði en of snemmt er á þessari stundu að spá um hveijar breyting- arnar verða. Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra flutti ræðu á afmælis- fagnaði Blaðamannafélagsins og sló rækilega í gegn. Voru menn á einu máli um að þeir hefðu sjaldan heyrt fyndnari tækifærisræðu. Þor- steinn sagði m.a. að ræðum stjóm- málamanna mætti skipta í femt. í skrifar fyrsta lagi væri það ræðan sem væri skrifuð fyrirfram, í öðru lagi ræðan sem væri flutt, í þriðja lagi ræðan sem ræðumaðurinn hefði viljað flytja og loks væri það ræðan sem blöðin segðu frá daginn eftir! Þorsteinn bað viðstadda sérstak- lega að sleppa fjórðu ræðunni að þessu sinni og verður því ekki frek- að sagt frá henni á þessum vett- vangi. En Víkverji tekur undir með einum veizlugesta sem sagði að þessi ræða hefði fremur átt erindi til þjóðarinnar en ýmsar aðrar ræð- ur ráðherrans! XXX Vaxtamál hafa verið til umræðu upp á síðkastið. Því er ástæða til að vekja sérstaka athygli á grein sem Gísli Konráðsson fram- kvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyringa ritar hér í blaðið ný- verið. Þar furðar Gísli sig á þeim blekkingum bankastofnana að blanda saman verðbótum og vöxt- um og auglýsa það sem ávöxtun. Það er auðvitað laukrétt sem Gísli segir að verðbætur eru aðeins við- bót við höfuðstólinn til þess að hann haldi verðgildi sínu í vörslu banka- stofnunarinnar og rými ekki en ávöxtun er aðeins þeir vextir, sem greiddir em umfram verðbætur. Það ætti að tryggja með lögum að blekkingum af þessu tagi verði ekki beitt. XXX Ráðhúsmálið ætlar að verða helsta skammdegismál Reyk- víkinga eins og við var að búast. Andstæðingar nýja ráðhússins í Tjöminni voru nær einráðir í um- ræðunni til að byija með en stuðn- ingsmenn þess hafa komið fram á sjónarsviðið hver af öðrum upp á síðkastið. Víkveiji var lengi vel á báðum áttum hvort hann ætti að styðja þessa byggingu en styður hana nú eindregið. Rök stuðnings- manna hússins em sterk en það vegur líka þungt að Víkveiji sér ekki betur en margir þeir sem skipa sér í hóp andstæðinga hússins hafi í gegnum árin verið andstæðingar margra framfaramála í borginni á undanförnum ámm. XXX Jólin nálgast óðfluga og ekki er laust við að Víkveiji sé að kom- ast í jólaskap. Margir gefa fé til líknarmála í jólamánuðinum og er það vel. Víkveiji vill að lokum hvetja menn til að gefa gauni að söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar til hjálpar bágstöddum í Eþíópíu. Þar er mikil vá fyrir dymm, eins og lesa mátti um í grein hér í blað- inu fyrir nokkmm dögum. 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.