Morgunblaðið - 17.12.1987, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 17.12.1987, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987 C 39 Pu Yi var þriggja árá þegar hann varð keisari. alla þá aðstoð sem völ var á. „Fyr- ir Kínveija er saga Pu Yi meira siðferðileg dæmisaga en sagn- fræði," segir Bertolucci. Hann vildi ekki gera aðra mynd í heimalandi sínu, ftalíu. „Eftir mína síðustu mynd þar, „Harm- leikur fáránlegs manns", var ég svo niðurdreginn útaf Ítalíu og því neysluþjóðfélagi sem það var orð- ið, að ég gat ekki gert þar aðra mynd. Eg vildi fara eitthvert þar sem ég fyndi innblástur. Það gleð- ur mig að gera mjmd um Kína vegna þess að Kínveijar trúa á sögu og breytingu. „Síðasti keisar- inn“ segir sögu um þjóðfélags- breytingu — hún nær frá lénstímanum til nútímans. Og hún segir frá umskiptum manns, Pu Yi, sem breytist úr keisara í venju- legan mann.“ Það er líka auðvelt að sjá hvers vegna Bertolucci dróst að þessari merkilegu sögu sem býður uppá fulla breidd fyrir óperukenndan stíl hans. Það er ekki nóg með að „Síðasti keisarinn“ sýni gjána á milli úrkynjunar yfírstéttarinnar og öreigabyltingar (baráttan í kjama kvikmyndarinnar „1900“) heldur flaliar hún um þema sem Bertolucci hefur lýst frábærlega í myndum eins og „The Conformist" og „Síðasti tangó í París“; baráttu sjálfsins við hið huglæga og sögu- leg öfl sem brengla það. Það má líka fínna hliðstæður í lífi kvikmyndmyndagerðarmanns- ins og keisarans sem glataði keisaradæminu og eyddi mörgum árum í örvæntingafullri leit að horfnum dýrðardögum. Með þrem- ur fyrstu myndum sínum („Before the Revolution" ’64, „The Spider’s Stratagem" ’70 og The Conform-' ist ’71) varð Bertolucci heims- frægur innan við þrítugt. Og með fjórðu myndinni, „Síðasti tangó í París“, sem hann gerði árið 1973 og var frábær, hneykslanleg og metsölumynd allt í senn, virtist það ekki fjarlægur möguleiki að Bertolucci, þá aðeins 32 ára, gæti gnæft yfír heimi kvikmyndanna fram að aldamótum. En það varð ekki. Eftir hið mikla ris fór allt á verri veg. Árið 1976 gerði hann rándýra mynd, „1900“, sem kolféll í bíohúsum, næsta mynd „La Luna“ (’79) var slys og „Harmsaga fáránlegs rnanns" (’81) var betri en ekki nógu betri. Um kvikmyndaveröld- ina gengu sögusagnir um bijálæði, listrænt tóm, furðulega sálfræði- meðferð. Fólk velti því fyrir sér hvort Bertolucci ætti nokkurn tímann eftir að gera aðra góða mynd. Með „Síðasta keisaranum" bauðst honum tækifæri til að slá sér upp í tangó í fyrsta skipti í meira en áratug. Peningamir voru miklir og sagan einnig. En þrýst- ingurinn á alla sem málið snerti var einnig mikill: Breska framleið- andann Jeremy Thomas („Mark- leysa“, „Gleðileg jól, herra Lawrence") sem enn hefur ekki átt mynd sem slegið hefur í gegn í Bandaríkjunum; bandaríska leik- arann John Lone („Ár drekans") sem leikur Pu Yi fullorðinn og vill sýna að hann veldur aðalhlutverki í stórmynd; Hemdale-kvikmyndafyrirtækið („Platoon") sem hætti nánast öllu til að kaupa kvikmyndaréttirtn á sögunni. Á milli ferða sinna til Kína leit- aði Bertolucci að leikurum í Kínahverfum heimsins. Vorið 1985 hitti hann John Lone sem hann valdi i hlutverk Pu Yi og svo komu þeir hver á fætur öðrum Kínveijamir í Vesturheimi; Joan Chen í hlutverk keisaraynjunnar, Ying Ruo Chen í hlutverk yfír- manns fangelsins, þar sem Pu Yi er endurmenntaður, og Victor Wong sem leikur fyrsta kennara keisarans. En fyrir vestræna áhorfendur er Peter O’Toole líklega sá sem markverðastur er af leikaraliðinu í hlutverki Regin- alds Johnsons, hins breska kennara keisarans. Bertolucci leit svo á í viðtali við Ainerican Film fyrir meira en ári, að sambandið á milli Pu Yi og hins kommúníska félaga sem sér um endurmenntun hans væri þungamiðja myndarinnar. „Oðru megin er maður sem veit að hann getur ekki breyst og hikar við að taka þátt í breytingunni; hinu megin stendur kommún- ískur hugsjónamaður með rætur í Konfúsíusi sem trúir því staðfast- lega að innst inni séu allir menn góðir og að í þeirri sannfæringu liggi vegurinn til frelsisins. Leik- stjórinn veit að hann er að gera mynd um Kína frá sjónarhóli Evr- ópumannsins. En hann hefur sökkt sér niður í kínverska menningu til að tryggja að mistökin sem hann gerir spretti ekki af vankunnáttu eða óvirðingu við söguna. Þegar Bertoloucci talar um Borgara Pu Yi (sem Maó kallaði einu sinni í gamni „forveri minn“) gerir hann svo með sjálfstrausti og alvöru — ánægjulegt merki um að einn af mestu leiksijórum heimsins hefur snúið aftur. „Með tímanum hef ég farið að líta svo á að Pu Yi sé persóna sem sagan hefur rænt og haldið fongn- um. Honum fínnst hann hafa verið svikinn, gerður óvirkur og hann hfí gleymst. í kommúnísku fang- elsi verður hann fyrirmyndarborg- ari sem er þrátt fyrir allt aðeins það sem honum var kennt að vera sem keisari. En það er líka hægt að líta á hann sem lirfu er breytist í fíðrildi með stóra, viðkvæma vængi, stígandi físlétt á vatnið. Hann horfir í augu kennara síns í endurmenntuninni og báðir hugsa það sama: Hefur hann breyst? Hefur hann virkilega breyst?“ Samantekt: - ai. Smekkleysa kynnir: jjií.ifli SYKURMOLARNIR - Ammæli ÁCD-disknumer aðfinna hið rosalega MotorCrash. BLEIKU BASTARNIR Bastamir leika það sem þeir kalla sýkadeliurokkabrlty SOGBLETTIR Sogblettir hafa sýnt það og sannað að þar fer ein ferska&ta og sterkasta rokksveit tandsins. JOHNNY TRIUMPH/SYKURMOLARNIR - Luftgítar lohnny Triumph hefur tryllt meyjar um land altt með eggjandi flutningi á laginu Luftgitar. Hann baetir um betur og flytur hér einnig lagið Stál- nótt. KOSTABOÐ „safnara-serían: 2LPÁVERÐI EINNAR.1 theCOllectjon j> o BUDDY HOLLY - The CoHection Ef þú hefur gaman af La Bamba tryggðu þér þó eintak af þessari. Öil gömiu lögin. ERIC CLAPTON - The Collect.on Farið yfir blúsár gítarsnillingsins Eric Clapton. Aretha Franklirt - The Collection The Mamas And Papas - The Collection Them - The Collecrion Moody Biues - The Collection Marianne Faithfull - The Collection Small Faces - The collection Black Sabbat - The Collection Kenny Rogers - The Collection Metal Killers - The Collection Status Quo - The Coliection Ten Years Aher - The Collection Thin Lizzy - The Coliection David Bowie -The Collection Frank Sinatra - The Collection Bob Marley - The Collection Jim Croce - The Collection White Boy Blues Johnny Cash - The Collection Eigum einnig fyrirliggjandi fjöl- breytt úrval afblues, rock'n-roll, soul.jazz, tónlistarbókum ofj. o.fl. SENDUM ÍPÓSTKRÖFU SAM- DÆGURS, SÍMI 12040. ,GÆDATONLISTA GÓÐUM STAÐU. gramm Laugaveg 17. Sfrni: 12040. MEGAS: LOFTMYND LP, KA&CD ★' ★ ★ ★ ★ GS - HP „Plata ársins“ - ÞHG Stöð 2 „ Efhægt erað tala um plötu ársins hérlendis þá erþetta hún." ÆÖJ - Þjóðv. AthlÁ geisladisknum eru að fínna S viðbótarlög. „Skotheld skffa, hvort sem litið erá lagasmíð'ar, útsetningar eða annað. “ ÞJV-DV „ Ljóst er að Bubba hefur tekist að gera plötu sem að minu mati erbetri en „Frelsið". GS-HP ♦ 4-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.