Morgunblaðið - 10.01.1988, Page 2

Morgunblaðið - 10.01.1988, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1988 BraggageLlumar skvera sig upp í brælunni; Sigrún Edda Björasdóttir og Hanna María Karlsdóttir Höfundarair, Iðunn og Kristin Steinsdætur (Morgunblaðið/Bjarni) SÍIDIN ER KOMIN Stcfánsson, Jón Hjartarson, Jón Sigurbjömsson, Karl Guðmunds- son, Karl Agúst Ulfsson, Kjartan Ragnarsson, Margrét Helga Jó- hannsdóttir, Ólafía Hrönn Jóns- dóttir, Pálina Jónsdóttir, Sigrún Edda Bjömsdóttir, Soffía Jakobs- dóttir, Valdimar Öm Flygenring og Þór Thulinius. Hljómsveitina skipa þeir Ámi Scheving, Birgir Bragason, Björg- vin Gíslason, Jóhann G Jóhanns- son, Pétur Grétarsson og fleiri. Sem áður segir hafa átt sér stað töluverðar breytingar á verkinu síðan Leikfélag Húsavíkur sýndi það, en hvaða breytingar og hvers vegna? „Það má eiginlega segjá að þetta hafi breyst úr gamanleik í söngleik," svaraði Iðunn, þegar ég hitti hana á æfíngu í Skemmunni á dögunum. „En þessar breyting- ar, þótt töluvert miklar séu, hafa komið smátt og smátt. Hér í Skem- munni em allt aðrir möguleikar en annars staðar til að sviðsetja verkið. Til dæmis þarf ekki að vera að hugsa um senuskipti, þannig að við höfum brotið upp senumar og þær eru nú fleiri og styttri en í fyrri útgáfu. Auk þess eru komin inn ný lög og nýir text- ar. í fyrri uppfærslu gerði ég texta við gamla slagara, en nú hefur Valgeir Guðjónsson samið alveg nýja tónlist fyrir verkið og skrifað textana líka. Þessa nýju söngva þurfti að fella inn í verkið og þeir eru ekki á sömu stöðum og slagar- amir voru áður. Það segir sig sjálft að í því felast töluverðar breytingar." En afhveiju síldarárin? „Afþví þetta er svo minnisstæð- ur tími. Við systumar vorum sjálfar í síld. Kristín upplifði stóru síldarárin þama upp úr ’60, en þá var ég reyndar farin að heiman. Þegar við vorum krakkar, heima á Seyðisfirði, var þar mikið at- vinnuleysi og þá heyrði maður oft talað um síldarárin upp úr alda- mótunum. Fólk var alltaf að biða eftir síldarárum aftur, bíða eftir að eitthvað færi nú að gerast. Svo kom síldin aftur...og fór. í leikrit- inu reyndum við bæði að draga upp þessa óvissu í kringum síldina og síðan stemminguna sem verður til þegar lítill bær fyllist af að- komufólki. Ég átti mín fyrstu ástar- ævintýri í sfldinni ÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR þreytir framraun sína í íslensku leikhúsi í „Sildin kemur.“ Ólafía útskrifaðist úr Leiklistarskóla íslands síðastliðið vor þar sem lokahlutverk hennar var Kyllikki í R„Rúnari og Kyllikki.“ í Síldinni fer hún með hlutverk Jöklu, sveitastúlkunnar sem kemur til þorpsins í síldarvinnu. Hún er ung og óreynd, en kannski ekki svo ýkja saklaus, eða hvað? „Jökla er íjalladís," segir Ólafía. „hún kemur úr Fjalladal - sveitapía sem veit þó alveg hvað hún vill og er mjög kröftugur kvenmaður. Hún er með allt og alla á hreinu og fær það sem hún vill. Hún er saklaus að því leyti að hún er ekki vön að taka þátt í bæjarlífi, með sfldarböll- um og tilheyrandi. Hún er ekki bein lífsreynd, en hún getur aldrei orðið eins og hinar tildurrófumar, því hún heldur sínu striki. Það sem stelpunum í verbúðinni fínnst stór- mál, fínnst henni ekkert mál. Þegar hún verður ólétt eru engar vífilengj- ur með það að hún giftist föðumum. Hinar trúa því ekki að henni takist að klófesta hann, en hjá henni sjálfri er aldrei efí. Hún er mjög blátt áfram. Fólkið í kringum hana er óvant slíku og þessvegna fínnst öll- um hún vera öðruvísi. Jökla lítur aldrei á óléttuna sem ógæfu, en stúlkumar að sunnan gera þetta að vandamáli, sérstak- lega Sigþóra sem hefur lent illa í því sjálf. Hún er sú reyndasta í bragganum. Þessar konur hafa allt- af litið niður á Jöklu, en þegar hún verður ólétt kemur samkenndin upp - það verða hvörf í samskiptunum, því þær vilja hjálpa henni. Jöklu fínnst hún hinsvegar ekkert þurfa á hjálp að haida og hjálpin verður bara að misskilningi." En nú fjallar leikritið um síldarárin, sem Hklega hafa gengið yfir fyrir þina tíð. Finnst þér ekkert óskiljanlegur mórall sem þaraa er á ferð? „Ég var í sfld á sumrum á Homa- fírði sem unglingur og kannast alveg við móralinn á planinu. Ég fór að salta með mömmu þegar ég var svona 14- 15 ára. Þótt það hafí ekki verið nein „síldarár," þá var mórallinn svipaður - að ætla bara að græða á sfldinni. Það var slegist um stæðin á planinu. Upp- haflega ætluðum við vinkona mín saman í sfldina, en fengum ekki pláss. Hinsvegar fékk mamma pláss afþví hún var fullorðin og ég fór með henni - svo var bara unnið og unnið. Svo þegar maður var svona 15-16 ára fór maður að spá í sfldar- strákana. Þá var beðið eftir að kæmi bræla, svo hægt væri að hitta þá. Þama átti ég mín fyrstu ástar- ævintýri. Árið 1977 lentum við í verkfalli og þá gerðist það sama og gerist í leikritinu: Það var lokað fyrir brennivínssölu og þetta stóð yfír í mánuð. Þá voru öll ráð notuð, fólk drakk dropa og allt sem flaut. Þetta var sérstaklega vont fyrir karlpen- inginn sem fékk ekkert brennivín. Bræla og þeir gátu ekki dotti í það. Þeir vissu ekki hvað þeir áttu af sér að gera. Veistu ég held að sfldarmórall sé alltaf og alls staðar eins." HHV (Morgunblaðið/Bjami) Ólafía Hrönn Jónsdóttir í hlutverki Jöklu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.