Morgunblaðið - 10.01.1988, Page 4

Morgunblaðið - 10.01.1988, Page 4
4 C MORGUNBLABIÐ, SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1988 Berserksgangur á vatnslítí í Gallerí Svart á hvítu stendur yfir sýning- á vatnslitamyndum eftir Guðmund Thoroddsen. Sýningin sem opnaði 8. janúar síðastliðinn, stendur yfirtil 19.janúar. Guðmundur Thoroddsen er Reykvíkingur, segist vera fæddur og uppalinn í Laugarneshverfinu „og ég gekk allt skólanám sem ætlast var til, fram yfir menntaskóia,“ heldur hann áfram. „Ég byrjaði í læknisfræði í Háskólanum hér, eins og ætlast var til, en entist nú ekki lengi þar. Fór síðan í Myndlistaskólann í Reykjavík til Hrings í tvö ár og var þá kominn með þetta gamla góða „út vil ek,“ og hef verið þar síðan. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Morgunbtaðið/Ámi Sæberg Eg fór í myndlistanám, fyrst í París í tvö ár. Eftir það flutti ég til Kaupmannahafnar og vann þar í þijú ár. Ég vann í hinu og þessu. Ég var með vinnustofu, þar sem ég dundaði mér af og til, en vann fyrir mér á alls konar stöðum; í kaupfélaginu, í málningarverk- smiðju og svoleiðis tegundum af vinnu. Ég vann einu sinni hjá gyðingum á klæða- strangalager. Þeir voru svo miklir klæða- menn og mér er mjög minnisstætt hvemig þeir þukluðu efnin með fíngurgómunum, afþví þeim þótti svo vænt um efni. Á þess- um tíma smíðaði ég skútuna mína. Hún hefur verið mikil „inspírasjón" í myndlist- inni. Þegar ég var lítill smíðaði ég mikið af sverðum. Einu sinni smíðaði ég bryntröll og barði svo í alla veggi, þannig að það stórsér ennþá á húsinu, 25 árum seinna. En það er kannski best að tala lítið um það, því systkinaböm mín búa þar núna og em ansi dugleg við að skemma, þótt þau hafí ékki enn verið svona stórtæk. í skólanum var ég, aftur á móti, fyrir- myndarbam, þangað til í landsprófí - þá gekk ég af göflunum og hef verið órólegur síðan - þangað til núna að ég er eitthvað að róast. Ég var alveg óþolandi á mennta- skólaárunum, allavega frá hlið kennara og skólayfírvalda. Ég hef siglt á þessari skútu út um allt, meðal annars hingað heim. Nú er hún á Bretagneskaga að bíta gras. Ég hef alltaf getað haft hana með mér þar sem ég hef búið. Eftir Kaupmannahöfn fór ég í Ríkis- listaakademíuna í Amsterdam. Þar naut ég leiðsagnar Peter Holstein í grafíkdeild- inni, meðal annars. Þar er grafíkdeildin svo frjáls að maður gat jafnframt málað og ég gat prófað mig áfram í gegnum flest- ar tegundir af gafík.“ Guðmundur lauk námi frá Ríkislista- akademíunni vorið 1985. Hann hefur tekið þátt í samsýningum á Kjarvals- stöðum 1983, Gallerí Magstræde 18 1983 og Galleri des Beaux-Arts í Borde- aux. Sýning hans í Galleri Svart á hvítu MARÍA SIGURÐARDÓTTIR, LEIKKONA: Maria Sigurðardóttir í hlutverki Deboruh í Einskonar Al- aska, sem Alþýðuleikhúsið er nú aftur að hefja sýningar á tíl Pinter fær mann að kafa djúpt í hugskotið Alþýðuleikhúsið frumsýndi i haust tvo einþáttunga eftir Ha- rold Pinter, Einskonar Alaska og Kveðjuskál. Ætlunin var að sýna verkin aðeins 10—12 sinnum í myndlistarsal Hlaðvarpans, en fljótlega varð að bæta við sýningum, vegna þess að aðsókn fór langt fram úr björtustu vonum. Ekki hafði verið áætlað að hefja sýningar aftur nú á nýju ári, en ýmsar aðstæður hafa breyst, og með tilliti til hinna mörgu sem urðu frá að hverfa, hefur verið ákveðið að halda sýningum áfram og verður sú fyrsta í þetta sinn fimmtudaginn 14. janúar kl. 20.30 í Hlaðvarpanum. Þær breytingar hafa orðið á hlut- verkaskipan, að Þröstur Guðbjarts- son, sem lék dr. Homby í Einskonar Alaska, er farinn norður í land, þar sem hann mun leikstýra áhugaleik- hópum á Skagaströnd og Hvamms- tanga, en í hans stað hefur Amar Jónsson tekið við hlutverkinu. Am- ar fer jafnframt með hlutverk Nikulásar pyndingameistara í Kveðjuskál. Þór Tulinius sem leikið hefur fómarlambið í Kveðjuskál verður heldur ekki með að þessu sinni, en í hans stað fer Viðar Egg- ertsson með það hlutverk. Með aðalhiutverkið í Einskonar Alaska, hlutverk sjúklingsins, De- boruh, fer María Sigurðardóttir. María útskrifaðist frá Leiklistar- skóla íslands vorið 1983 og hefur síðan aðallega leikið og starfað við Alþýðuleikhúsið. Hún lék þó í Dag- bók Önnu Frank í Iðnó fyrir tveimur árum og í kvikmyndinni Skamm- degi, sem sýnd var í íslenska ríkissjónvarpinu í desember síðast- liðnum. Hjá Alþýðuleikhúsinu hefur hún leikið í sýningu um Skaftárelda og kjamorkuógnina, sem farið var með í skóla, í Beisk tár Petru von Kant, Tom og Viv, Kettinum sem fer sínar eigin leiðir og nú Einskon- ar Alaska. Eftir frumsýningu þessara einþáttunga eftir Pinter var ljóst að gagmýnendur voru mjög 'svo sammála um að María hefði unnið mikinn leiksigur í hlutverki Deboruh, konu sem vaknar eftir að hafa sofíð í 29 ár. Reyndar fékk uppfærsla Alþýðuleikhússins á þessum verkum mikið hrós fyrir vandvirkni og skilning á viðfangs- efninu, en það hefur þó ekki alltaf nægt til að sýningar gangi. Ég fékk Maríu í smáspjall um Pinter og ein- þáttungana tvo og spurði hana hvemig hún skýrði þessa miklu aðsókn, sérstaklega í ljósi þess að Pinter hefur ekki verið talinn neitt léttmeti fyrir leikhúsfólk, hvað þá

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.