Morgunblaðið - 10.01.1988, Síða 8

Morgunblaðið - 10.01.1988, Síða 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1988 P É - LEIKHÚSIÐ ÍGAMLABÍO SÝNIR: Halldór Björnsson í hlutverki Joeys Heimkoman É—leikhúsið frumsýndi síðastliðið mið- vikudagskvöld, „Heimkomuna," eftir breska ieikskáldið Ha- rold Pinter, í Gamla bíói, í þýðingu Elísabetar Snorradóttur. Leikstjóri er Andrés Sigurvinsson, leikmynd er í höndum Guðnýjar B. Ric- hards, búninga sér Dagný Guðlaugsdóttir um og lýsingu, Alfreð Böðvarsson. Með hlut- verkin í sýningunni fara Róbert Arnfinnsson, sem leikur gamla skúrkinn, Max, Rúrík Haralds- son, sem leikur bróður hans, sjentíimanninn Sam. Syni Max leika þrei Hjalti Rögnvaldsson, Lenny, Halldór Bjömsson, Joey og Hákon Waage, Teddy. Ruth, konu Teddys, leikur Ragnheiður Elva Arnardóttir. Pinter þarf vart að kynna hér, því sýning Alþýðuleikhússins á tveimur verkum hans hefur hlotið gífurlega .athygli og aðsókn í vetur. Oft hefur verið talað um að Pinter skrifi sín leikrit ekki með áhorfendur í huga, en einhverra hluta vegna, virðist hann höfða mjög sterkt til leik- húsáhugafólks. Það hefur líka verið sagt um Pinter, að hann skoði, í leikritum sínum, fólk við tilteknar afmarkaðar aðstæður. Hvaða að- stæður er hann að skoða í Heim- komunni? „I raun og veru er hann að skoða aliar aðstæður," segir leikstjórinn, Andrés Sigurvinsson, „um leið og hann skoðar viðbrögð þeirra við breytingum á aðstæðum. Til dæmis við komu einhvers, eða brottför, við hlátur einhvers eða þögn. Þetta er galdurinn hjá honum. Málið er nátt- úrulega með Pinter, eins og hann er nú skemmtiiegur, að hann gefur manni ekki upp neinar forsendur, þannig að lifun leikarans verður að vera algjör. Til dæmis sér maður hvergi standa „er harmi sleginn" í „instrúksjónum" eða í sviga. I mesta lagi, eins og til dæmis í sam- bandi við Lenna; „er á náttfötum" eða „er í dökkum fötum." Margir tala um að þetta sé abs- úrd, en mér finnst þetta vera mjög nálægt raunveruleikanum. Fram- setningin er þó dálítið sérkennileg. Sumir vilja meina að leikritið sé um valdabaráttu kynslóða. Ég veit ekki hvort það á við rök að styðjast, en ef við bara tökum okkar kynslóð, milli þrítugs og fertugs, þá hefur engin kynslóð skitið jafn hressilega í buxumar, samanber ’68 uppreisn- imar og allt það. Þá á ég við, fyrst og fremst, þetta er fólk sem er orð- ið hvað harðast í lífslýginni; að réttlæta ríkjandi ástand og er fast í því. Það er kannski skiljanlegt, einfaldlega til að komast af. En mismunurinn á þessari kynslóð og þeim sem á undan komu, er bara aukin þekking og ný heimsmynd, með tilkomu fjölmiðla og annars. Andrés Sigurvinsson, leikstjóri En þessi kynslóð gafst upp á því að breyta og hefur á hættulegasta háttinn notað frasann „þetta hefur alltaf verið svona og verður alltaf svona,“ og er bytjað að dæsa af vanlíðan sem það kallar vellíðan. Farið að gjóa augum á bömin sín og segja „heimur versnandi fer.“ Er Pinter í þessu verki að skoða viðbrögð við mótsögnum og lífslygi og því hvað fólk ver lygina sína grimmt? „Það er svo varhugavert, finnst mér, að svara já og nei, miðað við það að forsendumar sem hver og einn gefur sér, hljóta að vera jafn- margar og einstaklingarnir sem vinna að þessu verki og sjá það - og niðurstöðumar í samræmi við það. Eða á góðri íslensku: Sitt sýn- ist hvetjum." Næsta sýning á Heimkomunni verður í Gamla bíói í kvöld. At- hygli skal vakin á því að þá eru aðeins níu sýningar eftir, því síðasta sýning verður 28. janúar. ssv (Morgunblaðið/Sverrir) Hákon Waage og Ragnheiður Eifa Arnardóttir í hiutverkum hjón- anna Teddy og Ruth Rúrik Haraldsson og Róbert Amfinnsson sem bræðumir Max og Sam

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.