Morgunblaðið - 29.01.1988, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988
B 5
Rás 2:
Billy Holklay
urinn í d;
þáttaröð.
■■■■ í dag verður fjallað
1 K00 um söngleiki í New
1« York á rás 2 og þátt-
er sá síðasti í þeirri
dag verður fjallað
um söngleikinn Lady Day at
Emersons Bar and Grill sem
sýndur var Off-Broadway
síðasta vetur.
Billy Holiday, sem hinn kunni
saxófónleikari Lester „pres"
Young gaf nafnið Lady Day, var
ein mesta jass- og blússöngkona
sem uppi hefur verið í Banda-
ríkjunum, en ekki varð það henni
til mikillar hamingju. Prá því
hún hóf að taka upp 1933 og
þar til hún lést 1959 tók hún
upp ótölulegan íjölda laga sem
ekki náðu þeirri almannahylli
sem vert væri en höfðu óhemju
áhrif á samtímamenn hennar í
tónlist og marga þá sem á eftir
komu. í þættinum í dag verða
leiknar lagasyrpur heilla laga sem hún tók upp og er þátturinn því
ekki síður kynning á Billie Holiday en kynning á söngleiknum Lady
Day at Emersons Bar and Grill.
Ríkisútvarpið:
Sagtfrá lan
McEwan
■■■■ í dag er á dagskrá ríkisútvarpsins þátturinn Örkin sem í
1 Q00 er fjallað um erlendar nútímabókmenntir. í dag fjallar
Aö-' umsjónarmaður Arkarinnar, Ástráður Eysteinsson, um
breska rithöfundinn Ian McEwan, sem er af þeim er gerst þekkja
talinn einn merkasti nútímahöfundur þarlendur. Fyrsta bók McEw-
an, sem fæddist 1948, bar heitið First Love Last Rites og vakti
mikla athygli. Hann hefur sent frá sér fjöld bóka í kjölfar hennar,
bæði ljóðasöfn og smásagnasöfn, en eitt ljóðasafnið, The Cement
Garden, kom út hjá bókaklúbbi Álmenna bókafélagsins 1987 undir
titlinum Sementsgarðurinn í þýðingu Einars Más Guðmundssonar. Á
síðasta ári kom síðan út fyrsta skáldsaga hans sem vakti ekki minni
athygli en þær bækur sem á undan höfðu komið.
Þess má geta að ekki gerir Ríkisútvarpið endasleppt við McEwan,
því næstkomandi fimmtudag kl. 21.20 les Ástráður Eysteinsson þýð-
ingu sína á einni af sögunum úr First Love Last Rites sem hann
nefnir Síðasti dagur sumars.
Rót:
Fyrsta útvarps-
stöð á íslandi
■^H1 í þættinum Mergur málsins f útvarpi Rót í dag minnist
1 £30 Pétur Pétursson þess að í dag, 31. janúar, hóf fyrsta út-
varpsstöð á íslandi útsendingar 1926. Stöðina áttu og
ráku þeir Ottó B. Amar og Lárus Jóhannesson.
Pétur ræðir m.a. við Halldór Kiljan Laxness í tilefni dagsins en
Halldór las upp í útvarpinu á árinu 1926. Því til viðbótar ræðir Pét-
ur við einn starfsmann stöðvarinnar og við hiustanda austur í
Landeyjum, en útsendingar heyrðust þangað.
HVAÐ
ER AÐO
GERAST!
15185 og á skrifstofu Alþýðuleikhússins,
Vesturgötu 3, kl. 14.00—16.00 virka
daga.
Leikfélag Akureyrar
Leikfélag Akureyrar sýnir „Pilt og stúlku"
föstudags- og laugardagskvöld kl. 20.30
og sunnudag kl. 16.00. Með aðalhlut-
verk fara Pétur Eggertz og Arnheiður
Ingimundardóttir. Leikstjóri er Borgar
Garðarsson.
Leikfélag Reykjavíkur
Bandaríski gamanleikurinn „Algjört rugl"
er sýndur í Iðnó föstudaginn 29. janúar
kl. 20.30, sunnudaginn 30. janúar kl.
20.30.
„Algjört rugl" er eftir ungan bandaríkja-
mann, Christopher Durang. Verk hans
hafa hlotiö athygli og unnið til verðlauna,
en þau eru öll flokkuö sem gamanleikir,
nánartiltekið „svartar kómedíur". Leik-
stjóri er Bríet Héöinsdóttir, en meðal
leikenda eru Kjartan Bjargmundsson,
Valgerður Dan, Guðrún S. Gísladóttir,
Harald G. Haraldsson, Jakob Þór Einars-
son og Þröstur Leó Gunnarsson.
Leikmynd gerir Karl Aspelund.
„Hremming" eftir Barrie Keefe verður
sýnt föstudaginn 29. janúar kl. 20.30 í
Iðnó.
Söngleikurinn „Síldin er komin'' eftir Ið-
unni og Kristínu Steinsdætur verður
sýndur í Leikskemmu L.R. við Meistara-
velli föstudaginn 29. janúar, laugar-
sunnudaginn 30., og þriðjudaginn 2.
febrúar, alla dagana kl. 20.00. Söngleik-
urinn er að stofni til hið sama og verk
þeirra systra „Slldin kemur, síldin fer"
sem Leikfélag Húsavíkursýndi sl. vetur.
Veigamiklar breytingar hafa þó verið
gerðar á texta leikritins auk þess sem
Valgeir Guðjónsson samdi við það tónlist
og söngtexta. Hlíf Svavarsdóttir og Auð-
ur Bjarnadóttir dansarar og danshöfund-
ar stýra dansi og hreyfingum í leikritinu.
Hljómsveit undir stjórn Jóhanns G. Jó-
hannssonar flytur tónlistina.
Leikstjóri er Þórunn Sigurðardóttir. Leik-
arar eru Alda Arnardóttir, Andri örn
Clausen, Bryndís Petra Bragadóttir, Eg-
gert Þorleifsson, Guðrún Marinósdóttir,
Guðrún Ásmundsdóttir, Hanna Maria
Karlsdóttir, HinrikÓlafsson, Hjálmar
Hjálmarsson, IngólfurStefánsson, Jón
Hjartarson, Jón Sigurbjörnsson, Karl
Guðmundsson, Kari Ágúst Úlfsson, Kjart-
an Ragnarsson, Margrét Helga Jóhanns-
dóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálína
Jónsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir,
Soffía Jakobsdóttir, Valdimar Örn Flyg-
enring og Þór H. Túlinius. Hljómsveitina
skipa Ámi Scheving, Birgir Bragason,
Björgin Gíslason, Jóhann G. Jóhannsson,
Pétur Grétarsson o.fl.
Leikurinn „Þar sem Djöflaeyjan rís'' í leik-
gerð Kjartans Ragnarssonar verður
sýndur i Leikskemmu LR við Meistara-
velli laugardaginn 30. janúarog miðviku-
daginn 3. febrúar, kl. 20.00 bæði kvöldin.
Dagur vonar eftir Birgi Sigurösson verður
sýndur laugardaginn 30. janúar kl. 20.00,
en sýningum á þvi verki fer óðum fækk-
andi.
Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið sýnir „Vesalingana",
söngleik byggðan á samnefndri skáld-.
sögu eftir Victor Hugo, föstudaginn 29.,
laugardaginn 30. sunnudaginn 31. jan-
úarog þriðjudaginn 2. febrúar, kl. 20.00.
Leikstjóri er Benedikt Árnason. Leikarar
eru Aðalsteinn Bergdal, Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Ása Svavarsdóttir, Edda
Þórarinsdóttir, Egill ÓLafsson, Edda
Heiörún Backman, Ellert A. Ingimundar-
son, Erla B. Skúladóttir, Guðjón P.
Pedersen, Helga E. Jósdóttir, Jóhann Sig-
urðarson, Símon Gunnarsson, Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir, Lilja Þórisdóttir,
Magnús Stein Loftsson, Ólöf Sverris-
dóttir Pálmi Gestsson, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Randver Þorláksson,
Sigrún Waage, Sigurður Sigurjónsson,
Sigurður Skúlason, Sverrir Guðjónsson,
Tinna Gunnlaugsdóttir, Valgeir Skag-
fjörð, Þórarinn Eyfjörð, ÞórhallurSigurðs-
son og örn Árnason. Karl Aspelund gerði
leikmynd bg búninga,
Uppselt er á sýningar af „Bilaverkstæði
Badda'' í janúar og fram í febrúar.
P-leikhópurinn
P-leikhópurinn sýnir „Heimkomuna" eftir
Harold PinteríGamla bíói. Leikarareru
Róbert Arnfinnsson, Rúrik Haraldsson,
Hjalti Rögnvaldsson, Halldór Björnsson,
Hákon Waage og Ragnheiður Elfa Arnar-
dóttir. Leikstjóri er Andrés Sigurvinsson.
Leikmynd gerði Guðný B. Richards.
Sýningum á verkinu er lokiö, en ein auka-
sýning, miönætursýning verður í kvöld,
föstudagskvöld, kl. 23.30.
EGG-leikhúsið
EGG-leikhúsið sýnir leikritið Á sama stað
íveitingastaönum Mandaríninn v.
Tryggvagötu á laugardag kl. 13 og þriðju-
dag kl. 12.
Á sama stað er nýtt leikrit eftir Valgeir
Skagfjörð í leikstjórn IngunnarÁsdísar-
dóttur. Leikritiö er samið sérstaklega til
sýninga i hádegisleikhúsi. Með eina hlut-
verk leiksins fer Erla B. Skúladóttir.
Myndlist
Gallerí Borg
í Galleríi Borg, Pósthússtræti og Austur-
stræti eru til sýnis verk hinna ýmsu
listamanna.
Galierí Gangskör
Gangskörungar halda sýningu í Gallerí
Gangskör, Amtmannsstíg 1. Sýningin er
opin alla virka daga frá kl. 12.00— 18.00
ogumhelgarfrákl. 14.00—18.00.
GalleríGrjót
Nú stenduryfirsamsýning á verkum allra
meðlima Gallerí Grjóts. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 12 til 18.
Gallerí 15
Gallerí 15 við Skólavöröustíg er opiö alla
virka daga frá kl. 14.00—18.00-. Þar
hanga uppi vatnslitamyndir eftir Auguste
Hákansson.
Gallerí Langbrók
Textílgalleríið Langbrók, Bókhlööustíg 2,
er með upphengingu á vefnaði, tau-
þrykki, myndverki, módelfatnaöi og fleiri
listmunum. Leirmunir eru á sama stað í
Gallérí Hallgerði. Opið er þriðjudaga til
föstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl.
11-14.
GalleríList
í Gallerí List, Skipholti 50 eru sýnd lista-
verk eftirýmsa listamenn. Grafik, vatnslit-
ir, olía og handgert blásið gler. Opið frá
kl. 10.00-18.00 og 10.00-12.00 laug-
ardaga.
GalleríNes
Myndlistaklúbbur Seltjarnarness sýnir í
Gallerí Nesi, Nýja bæ við Eiöistorg. Sýn-
ingeropinfrákl. 13.00—18.00.
Gallerí Svart á hvrtu
Galleri Svart á hvítu flytur í ný húsakynni
á Laufásvegi 17 og opnar þar sýningu á
verkum Ólafs Lárussonar 12. febrúar.
Glugginn
Föstudagskvöldiö 29. janúar opnar
Ragna Róbertsdóttirsýningu í Glugga-
num, Glerárgötu 34, Akureyri. Ragna
fæddist f Reykjavík 1945, útskrifaðist úr
Myndlista og handíöaskóla (slands 1970
og stundaði framhaldsnám við Konstfac
í Stokkhólmi 1970-71.
Ragna hefur alla tíð fengist við textíl, í
fyrstu á heföbundinn hátt en nú í seinni
tíð hefur hún getið sér gott orð fyrir nýst-
árlega skúlptúra sem þessi sýning
samanstenduraf.
Ragna Róbertsdóttir hefur sýnt reglulega
frá 1975, bæði hér heima og erlendis.
Hún var valin borgarlistamaður Reykjavík-
urborgar 1987. Sýning Rögnu stendur
til sunnudagsins 7. fébrúar.
Glugginn er opinn daglega frá 14 til 18,
•en lokað erá mánudögum.
Gullni haninn
Á veitingahúsinu Gullna hananum eru
myndirSólveigar Eggerztil sýnis. Mynd-
irnar eru landslag og fantasíur f rá Siglu-
firöi, unnar með vatnslitum og olíulitum.
Vinna og mannlrf
(Listasafni AS( stendur nú yfir sýningin
Vinna og mannlíf. Á sýningunni eru lista-
verk frá ýmsum tfmum sem öll eiga það
sameiginlegt að fjalla um mannlegar at-
hafnir, leikog störf. Meðal eldri höfunda
myndverka má nefna Gunnlaug Sche-
ving, Jón Engilberts, Jóhann Briem,
Þorvald Skúlason og fleiri. Einnig eru
verk eftiryngri listamenn, svo sem Gylfa
Gíslason, Þóri Sigurðsson og Ragnheiöi
Jónsdóttur, svo einhverjirséu taldir.
Með sýningunni vill Listasafn AS( kynna
nokkur af þeim verkum sem safnið hefur
eignast í gegnum tíðina, en með efnisval-
inu er ætlunin að minna i það að eitt
meginhlutverk listasafnsins er að skapa
tengsl milli myndlistar og daglegs lífs
alls þorra manna.
Sýningin eropin daglega frá 30. janúar
til 28. febrúar nk.; virka daga kl. 16.00
til 20.00, en um helgarfrá 14.00 til
20.00. Aðgangur er ókeypis og heitt
verðurá könnunni.
Ferstikla
Unnur Svavars er með Hátíðarsýningu i
Söluskálanum Ferstiklu í Hvalfirði. Unnur
sýnir 37 pastel- og olíumálverk. Þetta er
fimmtánda einkasýning hennar. Sýningin
stendur fram í janúar og er opin daglega
frákl. 8.00-23.30.
SJÁ NÆSTU OPNU.
VALHÖLL KYIMNIR
VIÐTALSTÍMA
ÞINGMANNA SJÁLF-
STÆÐISFLOKKSINS í
REYKJAVÍK
í dag verður til viðtals
í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
milli kl. 16 og 18,
Guðmundur H. Garðarsson
Einnig verður hægt að hringja á þessum tíma ísíma 82900.
Verið velkomin. - Heitt kaffi ú könnunni.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN