Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988
B 15
LOKASPRETTUR
útsölunnar
föstudag og laugardag
í Hjartanu
í Kringlunni
• Kverfawaöuf.:
°9 margt
Mðrgt fíeira
Guðaðá
skjáinn
Geturþúséðaf
bónda þínum?
Mánudagsmynd eftirsögu Grahams Greene
Á mánudagskvöldið nk. sýnir
ríkissjónvarpið bresku sjónvarps-
myndina „May We Borrow Your
Husband?" eða Getur þú séð af
bónda þínum? sem gerð er eftir
sögu breska rithöfundarins Gra-
hams Greene. Með aðalhlutverk-
ið, eldri rithöfund á frönsku
Rivíerunni, fer Dirk Bogarde en
myndin markar tvennskonar
tímamót á ferli hans. í henni
leikur hann í bresku sjónvarpi í
fyrsta skipti í 40 ár og handritið
að myndinni er fyrsta kvik-
myndahandritið sem hann skrif-
ar sjálfur.
Mótleikari hans er Charlotte
Attenborough, dóttir hins fræga
leikstjóra Sir Richards, en leik-
stjóri verksins er Bob Mahoney.
Myndin var tekin í Suður-Frakkl-
andi, þar sem bæði Bogarde og
Greene búa þótt þeir hafí aldrei
hist, og segir frá William Harris
(Bogarde), veiþekktum breskum
rithöfundi sem leitar að friði og
ró á litlu hóteli á Rivíerunni til
að ljúka við nýjustu bókina sína.
En hótelgestimir sjá svo um að
hann fær lítinn frið við skrif-
borðið. Meðal þeirra eru nýgfift
hjón, Peter og Poopy Travis
(Simon Shepherd og Charlotte),
af landeigendum komin sem réðu
mestu um giftingu þeirra. Þau
þekkja hvort annað ekkert sér-
lega vel og brúðkaupsferðin
verður ekki til að auka ástina á
milli þeirra. Rithöfundurinn
vingast við eiginkonuna ungu og
verður brátt ástfanginn af henni.
Myndin er gerð á vegum
Yorkshire Television í samvinnu
við Oliviu Tiomkin ekkju tón-
skáldsins Dimitri Tiomkin, sem
tryggði sér kvikmyndarétt sög-
unnar fyrir 20 árum. í kynningu
með myndinni segir að engin
verk 20. aldarinnar hafí verið
kvikmynduð eins mikið og verk
Grahams Greene fyrir bæði hvíta
tjaldið og skjáinn litla. í allt hafa
verið gerðar 23 bíómyndir eftir
sögum hans á 60 ára tímabili.
Getur þú séð af bónda þínum?
kom út á sjöunda áratugnum en
í handriti sínu færir Bogarde
sögusviðið til samtímans.
Bogarde hefur leikið í meira
en 60 bíómyndum og hann hefur
líka vakið athygli sem rithöfund-
ur. Eftir hann liggja þtjár
skáldsögur og fjögur bindi af
sjálfsæfísögu. En hann hefur
ekki leikið í bresku sjónvarpi
síðan árið 1946. Fyrsta verkef-
nið hans eftir stríð var að leika
í sjónvarpsuppfærslu og honum
leist svo illa á það að hann hét
því að gera aldrei slíkt aftur.
Seinna iék hann í sjónvarpsleik- •
ritum í Bandaríkjunum enda
meiri peningar í boði en hann
hélt heit sitt í Bretlandi í fjóra
áratugi.
Hann neitaði raunar í fyrstu
þegar leikstjórinn Bob Mahoney
og framleiðandi myndarinnar,
Keith Richardson, báðu hann um
að taka að sér hlutverk rithöf-
Dirk Bogarde og Carlotte Attenborough í sjónvarpsmyndinni
Getur þú séð af bónda þínum? sem sýnd verður nk. mánudags-
kvöld í ríkissjónvarpinu.
undarins. En freistingin að skrifa
handritið og leika var of mikil
og hann sló til. Graham Greene
er í hópi uppáhaldsrithöfunda
hans ásamt höfundum eins og
Jane Austen, Evelyh Waugh,
Olivia Manning, Anthony Trol-
lope og Laurens Van der Post.
Það var líka stutt fyrir Bogarde
að fara á tökustað í Suður-
Frakklandi þar sem hann hefur
búið í sl. 15 ár en ástæðan fyrir
því að hann samþykkti loks að
fara með hlutverkið var að hann
„fékk leyfí til að skrifa það sjálf-
ur og þá freistingu gat ég ekki
staðist".
-ai.