Morgunblaðið - 18.02.1988, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 18.02.1988, Qupperneq 1
Offramboð á hótelrými Talið hefur verið, að mikil framtið væri i ferðaþjónustu hér á landi og að þörf væri á fleiri hótelum til að efla hana. Staðreyndin er samt sú, að miklir erfiðleikar steðja að nýjustu hótelunum vegna offramboðs á hótelrými. O Fiskeldi 2 Fólk 2 Verslunarráð 3 Auglýsinga- hátíð 4 Hugbúnaður 5 EB 8 Þemadagar 9 Ráðgjöf 12 Sveitasvik hjá EB Það er áætlað að Evrópubandalagið tapi árlega 10-20% af öllum framlögum til landbúnaðar í vasa svindlara. Á vegum EB starfa nú 15 manns að því að kanna svik í landbúnaði og auk þess starfar fjöldi endurskoðenda fyrir bandalagið og aðildarríkin að þessum málum. Þarna eru líka verulega fjár- hæðir í húfi, því að það er álitið að Evrópubandalagið sé árlega rænt 130 milljörðum króna með því að óprúttnir menn nota sér veilurnar í landbúnað- arlöggjöf bandalagsins, eins og Kristó- fer Már Kristinsson rekur í grein _ í blaðinu í dag. 8 m«rj}MnWaí»ií) VIDSKlPn AIVINNULÍF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1988 BLAÐ Fyrirtæki Þróunarfélag íslands stofnar höndlunarhús ÍSLENSKT höndlunarhús (Trad- ing house) tekur til starfa í Ham- borg innan tíðar. Þráinn Þor- valdsson fyrrverandi forsijóri Útflutningsráðs íslands hefur unnið að undirbúningi stofnunar Undirverk- taknfyrir- tækistofn- aðvegna ratsjár- stöðvanna ÞESS hefur verið fari á leit við Ólaf Davíðsson fram- kvæmdastjóra Félags íslenskra iðnrekenda og Gunn- laug M. Sigmundsson fram- kvæmdastjóra Þróunarfélags íslands að hafa forgöngu um stofnun fyrirtækis sem hefði yfirumsjón með viðhaldi og rekstri á hugbúnaði fyrir rat- sjárstöðvamar á Gunnhólsvík- urfjalli og á Langanesi. Þróun- arfélag Islands verður meiri- hlutaeigandi þessa fyrirtækis en félagið mun einnig leita eftir samstarfi við erlenda aðila. Markmiðið með stofnun þessa fyrirtækis er að einn innlendur aðili hafí með höndum alla um- sýslu með hugbúnaðinum og beri ábyrgð á framkvæmd verksins gagnvart verkkaupa sem er Rat- sjárstofnun fyrir hönd NATO. Þróunarfélagið mun síðan draga sig út úr rekstrinum smám sam- an, með því að selja hluta til inn- lendra fyrirtækja sem munu taka við. Gert er ráð fyrir því að tugir kerfísfræðinga starfí við stöðv- amar og hefur komið til tals að Háskóli íslands mennti sérstak- lega fólk til þessa verkefnis. Ljóst er að hér er um verulega §ár- muni að ræða fyrir íslensk fyrir- tæki og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins getur velta num- ið á þriðja hundrað milljóna íslenkra króna á ári. fyrirtækisins fyrir hönd Þróun- arfélags íslands sem er meiri- hlutaeigandi en gert er ráð fyrir að erlendir aðilar taki einnig þátt í rekstrinum. Enn er óvíst hverjir það verða. Að sögn Gunnlaugs Sigmunds- sonar framkvæmdastjóra Þróunar- félagsins er tilgangur fyrirtækisins að koma íslenskum vörum á erlend- an markað. „Hér er um nokkurs konar heildverslun að ræða en munurinn liggur í því að fyrirtæk- inu er ætlað að finna hver þörfín er á markaðnum og síðan að upp- fylla hana með því að hafa milli- göngu framleiðenda og markaðar.“ Höndlunarhúsið mun skipta bæði við erlenda og innlenda fram- leiðendur og er ætlunin að nýta þau tengsl sem skapast í gegnum er- lenda framleiðslu . til að koma íslenskri vöru á framfæri. „Enn fremur er gert ráð fyrir að fyrirtæk- ið geti samið við íslensk fyrirtæki um framleiðslu á ákveðinni vöru sem markaður er fyrir á hveijum tíma“, sagði Gunnlaugur að lokum. Áætlað hlutafé höndlunarhúss- ins sem enn hefur ekki hlotið nafn, nemur tæpum tíu milljónum íslenskra króna. Innlán banka og sparisjóða 70,0 Milljarðar króna (47,7%) ISLENSKI FJÁRMAGNS- MARKAÐURINN 1987 (ÁÆTLUÐ STÆRÐ) Utistandandi verðbréf 24,1 (16,5%) Fjármögnunarfyrirtæki Qnnur 1,9(1,3%) Fjárfestingarlánasjóðir fyrirtæki 'WT „ 0,4 (0,3%) 0,6 (0,4%) IVr • Kr. Kr. Þrátt fyrir mikinn vöxt verðbréfa- sjóðanna á síðasta ári, (198,8%), eru þeir aðeins lítill hluti af fjármagnsmarkaðinum í heild FJÁRMAGN — Gunnar Helgi Hálfdánarson, framkvæmdastjóri Fjárfestingafélagsins gerir í viðtali í viðskiptablaðinu í dag harða hríð að ýmsum hugmyndum viðskiptaráðherra vegna væntanlegrar töggjafar um starfsemi á flármagnsmarkaði. Einkum iýst honum illa á hugmyndir um bindiskyldu og lausa- fjárkvaðir gagnvart verðbréfasjóðum. Jón Sigurðsson sagði í viðskiptablaðinu fyrir viku að vöxtur innláns- stofnana hefði verið 36% meðan verðbréfasjóðir hafí vaxið um 186%. Gunnar segir hins vegar að verð- bréfasjóðir séu aðeins lítill hluti af fjármagns- markaðinum í heild. Hart sé einnig að verðbréfasjóðir skuli einir látnir sæta bindiskyldu og lausafjárkvöð- um, þegartekið sé tillit til að bankabréfaútgáfa veðdeilda innlánsstofnana hafi vaxið enn meira en verðbréfasjóðir eða um nær 250%. Sjá viðtal B10. Lánamarkaður Landsvirkiun sparar 120millj. í vaxtagjöldum - með nýrri 800 millj. kr. lántöku hjá Norræna fjárfestingabankanum UNDIRRITAÐUR verður í dag samningur milli Landsvirkjunar og Nórræna fjárfestingarbank- ans um nýja lántöku Landsvirkj- unar hjá bankanum samtals að fjárhæð um 30 milljónir svissne- skra franka sem samsvarar um 800 milljónum króna á núver- andi verðlagi. Lánið fer til skuldbreytingar og mun spara Landsvirkjun um 30 milijónir króna í vaxtagreiðslur árlega á næstu fjórum árum eða um um alls 120 mil(jónir. Að sögn Halldórs Jónatansson- ar, forstjóra Landsvirkjunar, er gengið til þessara samninga við Norræna fjárfestingabankann að undangenginni könnun á mögu- leikum á alþjóðlegum fjármagns- markaði og reyndist tilboð Norr- æna fjárfestingabankans hagstæð- ast. Lánið er til fjögurra ára með 4.25% föstum vöxtum á ári og greiðist upp með einni greiðslu í lok lánstímans. Engin þóknun er heldur samfara þessu láni. Halldór segir að nýja lánið fari til að greiða upp skuldabréfalán í sömu mynt, sem tekið var með sérstakri skuldabréfaútgáfu árið 1982 vegna virkjunarframkvæmda og var þá til 8 ára með 8% vöxt- um. Þetta lán greiðist nú upp þrátt fyrir að fjögur ár séu eftir af lánst- ímanum og við það segir Halldór að vaxtagjöid Landsvirkjunar næstu Qögur árin muni lækka um 30 milljónir króna á ári eða um 120 milljónir ef miðað er við allan lánstímann. Samninginn í dag undirrita af hálfu Landsvirkjunar þeir Jóhann- es Nordal, stjómarformaður Landsvirkjunar og Halldór Jónat- ansson, forstjóri en af hálfu Norr- æna fjárfestingabankans þeir Þór- hallur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri og stjómarmaður hjá bankanum og Þorsteinn Þorsteinsson, starfs- maður hjá lánasviði Norræna fjár- festingabankans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.