Morgunblaðið - 18.02.1988, Síða 2

Morgunblaðið - 18.02.1988, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, VtÐSHFTI/AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1988 Verslunarráð Mikilvægtað verðbréfa viðskipti fái að þróast áfram - segir í ályktun aðalfundar Verslunar- ráðs íslands AÐALFUNDUR Verslunarráðs Islands var haldinn síðastliðinn þriðjudag í átthag-asal Hótel sögu. A fundinum var auk venju- legra aðalf undarstarfa fjallað um eflingu hlutabréfa- og verð- bréfamarkaðar hér á landi. Aðal- ræðumaður fundarins var Jó- hannes Nordal, seðlabankastjóri en ræða hans birtist I heild sinni á öðrum stað í blaðinu í dag. I ályktun fundarins er lögð áhersla á að verðbréfaviðskipti fái að þróast áfram og að þau verði ekki bundin á klafa ofstjómar- og forsjárhyggju. Jafnframt er varað við framkomnum hugmyndum um óeðlilegar takmarkanir og skilyrði af hálfu stjómvalda fyrir fjármagn- sviðskiptum. Nokkrar umræður urðu um verð- bréfa- og hlutabréfaviðskipti á eftir ræðu Jóhannesar m.a. um skatt- lagningu á hlutafjáreign. Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri Fé- lags íslenskra iðnrekenda, sagðist telja að að veita þyrfti eigendum hlutabréfa skattalegar ívilnanir vegna þess að ekki væri unnt að búast við að hlutabréf myndu skila þeirri ávöxtun sem nú er á skulda- bréfum. Mikið væri í húfí að fá áhættufjármagn inn í íslenskan at- vinnurekstur og þyrfti því að gera skattkjör hlutafjár betri. Gunnar Helgi Hálfdánarson, framkvæmdastjóri Fjárfestingarfé- lags íslands varaði eindregið við löggjöf sem hindraði verðbréfavið- skipti. Það væri t.d. varhugavert að binda verðbréfasjóðina niður með bindiskyldu en hann væri hlynntur samræmdri löggjöf sem tryggt gæti framþróun á þessum markaði. I svari við fyrirspumum um þetta efni sagði Jóhannes Nordal að hann teldi að hlutafé ætti að veita betri skattaleg kjör vegna áhættu. Taldi hann hins vegar að það væri brot á grundvallarreglum um skattlagn- ingu að undanskilja spamað þar sem skattlagning ætti að vera al- menn. Þetta hlyti að koma til endur- skoðunar þegar raunvextir væru orðnir háir. Breyting á skattlagn- ingu hlutafjár færi eftir því hvort unnt væri að fínna pólitíska og tæknilega lausn á hvemig eigi að skattleggja peningalegar eignir. Jóhannes nefndi einnig að einka- væðing gæti ekki átt sér stað fyrr AÐALFUNDUR flytur ræðu sína. Morgunblaðið/Þorkell Dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjjori en virkur hlutabréfamarkaður kæmist á. I ræðu sinni gerði framkvæmda- stjóri Verslunarráðs Islands grein fjúir starfsemi Verslunarráðsins frá síðasta aðalfundi. Kom fram að starfsemin hefur verið með hefð- bundnu sniði en ráðið væri hags- munasamtök fyrirtækja, vettvang- ur fyrir samstarf fyrirtækja og þjónustuaðili á ýmsum sviðum t.d. í miðlun upplýsinga. Verslunarráðið hefur á sl. ári fjallað um almenn efnahagsmál en ráðið gerði úttekt á stefnuyfírlýsingu ríkisstjómarinn- ar, kannaði þjóðhagsáætlanir fyrri ára og gerði auk þess úttekt á síðustu þjóðhagsáætluri. Þá greindi Vilhjálmur frá starfí Verslunarráðsins í skattamálum og samstarfí við önnur atvinnureken- dasamtök varðandi umfjöllun um skattamál fyrirtækja. Jafnframt Bankar Góður hagnaður hjá sparisjóðunum REKSTUR stærstu sparisjóð- anna á landinu gekk vel á síðasta ári, líkt og hjá viðskiptabönkun- um. Reikningsuppgjör hjá spari- sjóðunum er þó ekki eins langt komið og hjá viðskiptabönkun- um, svo að i þeim tölum sem Morgunblaðið gat aflað sér um hagnað sparisjóðamia á síðasta ári á eftir að reikna með sköttum og en á hinn bóginn hefur verið reiknað með um 10% framlagi vegna lífeyrisskuldbindinga sjóð- anna vegna starfsmanna, en jafn- vel eru horfur á að sparisjóðirn- ir eða hluti þeirra leggi meira til hliðar af þessum sökum. Samkvæmt þessum upplýsingum er hagnaður Sparisjóðs Hafriar- flarðar fyrir skatta 65,9 milljónir króna en þá hefur verið reiknað með 10% framlagi vegna lífeyris- skuldbindinga og 1.4 milljónum til veðdeildar. Hagnaður Sparisjóðs vélstjóra er um 43 milljónir fyrir skatta eftir að tekið hefur verið frá 10% fyrir lífeyrisskuldbindingum en þar munu vera uppi hugmyndir um að mæta lífeyrisskuldbindingum enn frekar, en þar er um verulegar fjárhæðir að ræða og við það mun hagnaður sparisjóðsins lækka nokk- uð. Hagnaður Sparisjóðs Reykjavík- ur mun vera um 33,9 milljónir fyr- ir skatta en auk þess hafa um 9 milljónir farið til veðdeildar sjóðs- ins. Sparisjóður Kópavogs er með um 12 milljón króna hagnað fyrir skatta og Sparisjóðurinn í Keflavík með um 3,2 milljónir fyrir skatta eftir að hafa lagt til hliðar um 400 þúsund vegna veðdeildar sjóðsin. í öllum tillfellum hefur um 10% fram- lag verið tekið frá vegna lífeyris- skuldbindinganna. Sparisjóðimir voru með meiri innlánsaukningu á síðasta ári en viðskiptabankamir eða um 37,4% á móti um 35,3% innlánsaukningu hjá bönkunum, samkvæmt nýjustu upplýsingum. Forsvarsmaður eins sparisjóðsins sagði í samtali að þrátt fyrir góðærið á síðasta ári hefði innlánsaukningin í för með sér að sparisjóðimir næðu tæpast að halda í það hlutfall sem gert væri ráð fyrir í lögum um innláns- stofnariir um eigið fé sjóðanna. fjallaði verslunarráðið um þær um- fangsmiklu tolla- og söluskatts- breytingar sem áttu sér stað um síðustu áramót. Verslunarráðið tók þátt í nefnd- arstörfum um gjaldeyrismál sem leiddi til þess að bankastimplun var afnumin en Vilhjálmur taldi að sú ráðstöfun hefði ekki gagnast sem skyldi. Önnur verkefni hafa verið verðlagmál, auglýsingamál, kredit- kortamál og málefni innflutnings- verslunarinnar. I lok fundarins var tilkynnt um kjör stjómarmanna og var formað- ur Verslunarráðsins, Jóhann J. 01- afsson, endurkjörinn. Síðast var ályktun fundarins samþykkt. Bankastarf semi Millibanka- viðskipti formlega hafin ÞROUNARFELAG íslands vinnur að stofnun fyrirtækis í milli- bankaviðskiptum. Að sögn Gunn- laugs M. Sigmundssonar fram- kvæmdastjóra Þróunarfélagsins mun starfsemi fyrirtækisins fel- ast í því að fullnægja lausafjár- hlutfalli viðskiptabankanna með þvi að koma á beinni lánastarf- semi milli þeirra án þess að Seðla- banki eigi þar hlut að máli. Þann- ig geti þeir bankar sem hafi fé til aflögu lánað þeim sem striða við lausafjárvanda. Viðskiptabankamir hafa þurft að nýta sér yfírdráttarheimild hjá Seðlabanka til að uppfylla kröfur um lausafjárhlutfall og greiðslu- skuldbindingar og hafa vextimir verið mjög háir, allt að 100%. Vísir að millibankaviðskiptum hefur verið hér á landi milli einstakra banka en nú verður í fyrsta sinn stofnað til þeirra með formlegum hætti. Seðlabankinn hefur unnið að stofnun samskonar fyrirtækis í nær þtjú ár og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins þykir Seðlabanka mönnum sem hér sé verið að seilast inn á svið hins opinbera. Iðnaður Sýning í Hannover FÉLAG íslenskra iðnrekenda hefur ákveðið að efna til hóp- ferðar á tölvu-, skrifstofu- og upplýsingatæknisýningu CeBIT ’88, sem haldin verður í Hanno- ver í Þýskalandi dagana 16.— 23. mars nk. Um 2300 fyrirtæki frá 40 löndum munu sýna vörur sínar. Búist er við um 400.000 gestum á sýninguna. Þar til fyrir nokkmm ámm var CeBIT hluti af iðnsýningu í Hanno- ver en var brátt gerð að sjálfstæðri sýningu vegna þess hversu umsvifa- mikil hún var orðin. Sýningin er talin með helstu árlegu viðburðum á sínu sviði. Bif reiðaverkstæði Á þessari sýningu er m.a. tæki og tækni til skrifstofuhalds og bankaþjónustu, öryggiskerfí fyrir tölvu- og bankastarfsemi, hug- búnaður, vélbúnaður, gagna- og samskiptatækni, fjarskipti, tölvuv- ædd hönnun og framleiðsla, rann- sóknir og þróun á sviði upplýsinga- tækni. Hópferðin er skipulögð í sam- vinnu við ferðaskrifstofuna Atlantik og verður farið út 17. mars, fimm dögum varið til þess að skoða sýn- inguna og haldið heim 23. mars. Þar sem hótelgisting er ekki fá- anleg á þessum tíma verður gist á einkaheimilum í borginni. Verðlækkun á tækjum tilbíla viðgerða í KJÖLFAR tollabreytinganna um áramót voru tollar og vöru- gjöld af tækjum og búnaði fyrir bifreiðaverkstæði almennt felld niður en þessi gjöld voru áður í kringum 70%. Þessi niðurfelling hafði í för með sér verðlækkun á bilinu 30-40% sem leitt hefur Of) SAMVINNA GERIR GÆFUMUNINN Ef þú þarft aö vinna mikið viö Ijósritun bygg- ist árangurinn ágóöri samvinnuviö Ijósritunarvélina þína. Ernokkuösem þreytirþigmeirentföar bilanir og löng biö eftir viögeröarmanni? Meö Nashua Ijósritunarvélerþessum áhyggjum af þér létt. Lág bilanatíðni Nashua og fljótog örugg viögeröar- þjónusta Optima gerir gæfumuninn. a VERÐLÆKKUN! SuöurlandsbrautlO — Simi 84900 til aukinnar eftirspurnar eftir búnaði fyrir bifreiðaverkstæði. Samkvæmt upplýsingum Jónasar Þórs Steinarssonar, framkvæmda- stjóra Bílgreinasambandsins, má nefna sem dæmi að tiltekin gerð af réttingabekkjum kostaði áður um 1.000.000 kr. en kostar nú um 700.000 kr. Verð á hemlaprófunar- tæki lækkaði úr 900.000 kr. í 700.000 kr. Þá lækkaði verð á einni gerð af stillitölvum úr 600.000 kr. í 490.000 kr. Jónas taldi að þessar breytingar hefðu mikla hagræðingu í för með sér fyrir bifreiðaverkstæði auk þess sem þau hefðu aukna þörf fyrir tækjabúnað vegna flóknari viðgerð- arverkefna í framtíðinni. Sagði hann að þegar hefði orðið vart auk- ins áhuga á ýmsum tækjum og hjá einum umboðsaðila hafí sala á rétt- ingabekkjum verið jafnmikil það sem af væri árinu og frá því inn- flutningur á þeim hófst fyrir 7 árum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.